Góðan daginn
Adam Smith var göfugur maður, hann sannaði það að markaðurinn leiti alltaf að besta verði gagnvart neytanda með því að vera með virka samkeppni, neytandinn fái alltaf besta verðið ef markaðurinn er 100% frjáls og þannig finni markaðurinn sjálfur besta verðið. Þessi kenning hans teygir sig langt í lífinu, t.d. hjá mér, þar sem ég hef ákveðið að loka þessu bloggi á samkeppnisgrundvelli. Já, blogspot er að reyna að rukka mig um alls konar hluti sem ég fæ frítt á öðrum "host-um" þannig að á þessum samkeppnisgrundvelli ákvað ég að flytja bloggið yfir á
www.blog.central.is/champinn
Það er með þó nokkrum trega sem ég lýk hérna síðastu skrifum mínum á þessari síðu, hún hefur reynst ágætlega þessi ár, en því miður hafa upp á síðkastið eilíf vandræði með þetta gert það að verkum að skrifunum fór mjög fækkandi. Það mun vonandi ekki eiga sér stað á hinu nýja bloggi!!!
Ég bið ykkur að taka vel á móti á
www.blog.central.is/champinn
Wednesday, December 06, 2006
Saturday, November 18, 2006
Það er bara ein leið til að lysa því hversu dapur ég hef verið í að skrifa hér á síðuna, já ég er búinn að vera bloggarahaugur!!!
Skilgreining á bloggarahaug:
"Maður er hefur ekki skrifað í 2 mánuði á bloggið, hefur ekki enn neitt til að skrifa um, er í massivu sjokki eftir að hafa verið of lengi í Saudi-Arabíu og er farinn að ýta of oft á " ' " takkann á lyklaborðinu í stað " ð "-takkans".
Jæja, reynum aðeins, eins og sést á skrifum flugbróðursins frá KL þá er hann í fínu formi þar ásamt spússu sinni og dauðöfunda ég manninn fyrir að vera þarna í tærri snilld. Ekki er leiðinlegt heldur að skoða myndirnar hans á myndasíðunni og fær hann hrós fyrir að vera svona öflugur með cameruna! Kveðjur til Hjaltans og Maju frá Champanum og Lilju!
Ég ætlaði að vera massa duglegur síðustu daga og reyna að þvo bílinn og taka bílskúrinn í gegn en hvað gerist þá, stormur með öllu tilheyrandi, m.a.s. landsliðsmennirnir flugu ekki til Íslands í 2 daga af 3!!! Svo leit nú út í morgun að það væri veður, mæti ég út og hvað þá, jú, -13 gráður á mælinum!!!!!!! Veðrið hérna er óþolandi dapurt dag eftir dag og rússinn bíður eftir því að ég kveiki á honum og komi honum í loftið alveg eins og Rudolph sem bíður eftir sveinka en hann þarf nú að bíða í nokkrar vikur enn! Að lokum er ljóst að karlinn er farinn að nálgast 100 kg í bekkpressunni og farinn að hlaupa 5 km á nálægt 25 min, ekki slæmt!!! Jæja, kveð í bili og lofa bloggi hér aftur MJÖG fljótlega!
Kv. Champinn

Sunday, September 10, 2006
DHACA, BORG BORANNA, MÓTMÆLA OG ÞREYTU + FRAMLEIÐSLA METANGASS
Hmmm, skrýtin fyrirsögn gæti einhver maður hugsað sér, tja, veit ég nú ekki, en menn verða að gera það upp hver fyrir sig.
Er nú staddur í Bangladesh, nánar tiltekið borginni Dhaca. Hér er allt á iðandi skriði og ekki hægt að sofa hér á hótelinu vegna framkvæmda, já, það er einhver indverskur Bangladesh-i að bora eins og vindurinn í herberginu fyrir ofan mig hér á hótelinu og svo er hann með ca. 10 álíka snillinga hamrandi nagla og ég held svei mér þá bara að þeir hamri bara allt sem fyrir hamar geti orðið. Þ.a.l. er lítið um svefn þessa dagana hérna og allt á suðupunkti í hausnum á mér. Já, ekki laust við að það hafi myndast þrumuský yfir höfuðinu á karlinum þegar kom í ljós að ekki væri hægt að skipta um herbergi.
Jæja, í aðra sálma. Þegar við mættum á svæðið hérna, var okkur tjáð að við myndum líklega ekki fljúga til baka í nótt (sl. nótt) eins og áætlað var því pólitískt ástand í þessu landi er á suðupunkti líka (eins og höfuðið á mér), í dag er STRIKING DAY, og það á allt eftir að verða vitlaust víst hér seinna í dag, ég bara óskaði þess að þeir vissu hvað þetta þýddi á ensku, því þá væru mennirnir sem bora hér á fullu ekki að VINNA! Skilst mér reyndar að þetta eigi nú bara við um helming þeirra sem hér búa og á að vera eitthvað þvílíkt dæmi gagnvart ríkisstjórninni. Er við athuguðum þetta betur, kom í ljós að búið er að setja vegatálma víðs vegar í kringum borgina og ljóst að við komumst ekki út á flugvöll í dag fyrir miðnætti vegna þessa. Ég sagði nú svona í gríni við einn, "hvað er þetta maður, er ekki bara gaman að fara út og kíkja á þetta, lenti í þessu í Buenos Aires einu sinni og það var bara fjör, allir dansandi og hressir", hann svaraði fljótt, "þetta er ekki Buenos Aires", og sagði þetta með þannig tón að ég ætla ekkert út af hótelinu í dag. Hvað sem því líður, þá er svolítið gaman að sjá þetta land, ýmislegt til hérna, og gjaldmiðillinn er 69 á móti dollar, sem minnir óneitanlega á ísl. krónuna og þ.a.l. finnst mér ég bara vera kominn heim (eða þannig).
Ég ákvað að skreppa í morgunmat hér í morgun. Já, það hefði ég betur látið ógert, því óneitanlega verður að viðurkennast að mikil aukning hefur orðið á heildarmagni metangass á jörð eftir þennan morgunmat. Ég fór auðvitað að hugsa um hvernig nýta mætti þessa auðlind, jú, hvað með metan í stað bútan, fylla á kveikjara og svoleiðis, svo gæti ég gert samning við B.S. (Er það ekki nýja nafið fyrir strætó?)??? Er það ekki snilld. Ég reyndar vona að ég fari að hætta að rappa fljótlega, því þetta er orðið full mikið af því góða og enn ein góð ástæðan til að skipta um herbergi sem ekki fæst!
Það er þó einn plús hérna sem verður að fá að komast að, ég prófaði mango-ís hér í gær, mikið andskoti rosalega er hann æðislega góður, þvílíkt og annað eins, verð að athuga hvort þetta sé til heima, er enn að sleikja út um eftir að hafa fengið tvær kúlur af þessu hér á hótelinu, massa fínt, þannig að maður er nú ekki bara negativur eins og sumir mættu ætla af þessum skrifum mínum. Að lokum fannst mér svo freistandi að kaupa minjagrip hér eins og ég gerði í Baku í Azerbaijan, þ.e. 2 vodkaflöskur (200 mil) á 5 kr. En þá rann upp fyrir mér að ég gæti það ekki því auðvitað er ég á leið til Jeddah aftur og þá þýðir ekkert að vera með það með sér.
Annars er ljóst að við förum héðan eftir miðnætti í kvöld, ekkert mál, og enginn annar en Hjalti snillingur að koma með vélina hingað, sækja karlinn og svo fær hann þess heiðurs njótandi að vera farþegi hjá mér, óskandi reyndar að við værum fljúgandi saman, en það styttist í það með hverjum deginum (hvor svo sem verður kafteinn á undan, skiptir ekki máli, Hjalti, "you can be my wingman any time" :D).
chao for now

Sunday, September 03, 2006
Salama Leikum, Allah Akhbar og allt það!
Jæja, kominn til Jeddah hér í Saudi og bullið tók ekki nema 5 minútur að byrja er ég mætti. Nenni nú ekki að fara að bölvast yfir því, þá verður maður bara pirraður.
Jæja, en þar sem það er svo lítið að gera hérna, verð ég bara að leirast og bulla eitthvað svona mér til gamans (ekki mikið gaman hér).
Jeg er nú til Jeddah kominn,
jeminn eini hugsa nú,
Hér er enginn áfengissopinn,
Ekki heldur Kristin trú
Svin og sukk fást ei hér,
Svíður suma hart,
Allir hérna hugsa sér,
að hafa sig á burt, snart!
Í nótt flýg ég til Íran, nánar tiltekið Izfahan, hef farið þangað áður, en á bakaleiðinni þurfum við að koma við á “skemmtilegasta og besta stað veraldar”, nei ég er ekki að tala um Kópavog, hvað þá, jú, ekkert annað en Medinah!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Þar sem bacon-ið er framleitt úr úlföldum (að ég held), þar sem vínið er búið til úr kartöflum (óáfengt að sjálfsögðu) og heilarnir búnir til úr sandi (það veit ég fyrir víst).
Skólinn er byrjaður hjá Liljunni og allt farið af stað sem tilheyrir haustinu. Vonandi tekst okkur að klára íbúðarskiptin næst þegar ég kem heim, lítur allt ljómandi vel út og vonandi verðum við algerlega flutt af Fálkagötunni um mánðarmótin. Já, lífið er yndislegt þessa dagana, nema eitt, þ.e. að Lilja er heima en ég úti og það er ekkert sérstaklega skemmtilegt, ástin mín, sakna þín!
Á næstunni er von á smásögu hér á blogginu um Kára og Kulda , vonandi tilbúin næst!
Shukran (takk fyrir).

Wednesday, August 30, 2006
Buenos Tartez
Jæja, nú er maður farinn út aftur og heimveran búin í bili. Hins vegar var tíminn heima nýttur heldur betur og karlinn búinn að gera við allar sprungur og mála allt glæsilega á þessum tíma í nýju íbúðinni. Ég verð bara enn og aftur að leirast!
Já, það liggur við að maður sé enn sveittur, þreyttur, en beittur og vel skeintur eftir þetta allt saman.
Mér héldu engin bönd, lagði á íbúð lokahönd og hélt svo aftur af stað út í lönd, verð vonandi sólbrúnn í framan.
Á meðan öllu þessu stóð, Liljan upplýsingum í sig hlóð, fór í próf og fékk sjö í einkunn!
Eftir það var gaman, því saman, fengum við málningu í framan, svo á innflutningspartýi verður engin seinkun.
Jæja, nú er nóg komið af bulli.
Það hefur mikið gengið á upp á síðkastið, Lilja brilleraði í hjúkkunni, reyndar sama hvað hún gerir, alltaf brill hjá henni.
Það er búið að ljúka öllu í T23 og næst á dagskrá er að flytja inn dót þegar ég kem heim eftir þessa útiveru.
Ég náði þó nokkrum sinnum að taka frí frá spasli o.þ.h. og fór t.d. að sjá snilldar tónleika með Messoforte á Menningarnótt. Þeir voru svo góðir að það fór nánast hrollur um mann þegar þeir spiluðu. Nokkur golfmót voru einnig á dagskrá og fór maður nú nokkrum sinnum ekki tómhentur heim, 2 bikarar komnir í safnið, var kominn tími á þá þar sem hinir voru orðnir full gamlir, þið skiljið. Jájá, heldur betur gott tímabil síðast. Reyndar er gaman að segja frá því að myndir eru af karlinum á www.golfmyndir.is, svolítið skrýtinn vefur, en venst og er í raun þvílíkt flottur, mæli með honum.

Eins og sjá má á myndinni skín einbeitingin úr augum manns, eye-of-the-tiger!!!
Ég verð nú einnig að minnast á það að ég kíkti ásamt Bertel, Hjalta og Grétari hjaltapabba, á landsleikinn um daginn, Ísland - Spánn, helvíti gaman á leiknum þó að 0-0 hefði verið niðurstaðan. Ég og Hjalti þeyttum lúðra eins og vindurinn en mikið óhapp átti sér stað í seinni hálfleik þegar hlutar af lúðri Hjalta rifnaði, þetta reyndist þó mikið happayndi því þá braut einn Spánverjinn gróflega af sér og nýttist þá lúðurinn til þess að púa á viðkomandi allan tímann eftir það, þannig að ef menn vilja púa einhvern niður í spað, þá mæli ég með að fá lúðurinn hans Hjalta lánaðan.
Leiðin liggur til Jeddah á föstudaginn, en á meðan hangi ég hér í Brussel þangað til. Von á Hjalta og Benna hingað á morgun og vonandi náum við aðeins að kíkja út á lífið (reyndar ekkert vonandi!!!).
Heyrumst öll hress fljótlega!

Tuesday, August 01, 2006
Guten Abend Damen und Herren
Jæja, þá er karlinn mættur til Frankfuhrt og urðu miklir og rosalegir endurfundir hjá mér, Hjaltanum og Rúnu. CNN var á svæðinu og tók myndir, því ég hafði ekki séð Hjaltann í heilar 2 vikur, þótti þetta mjög fréttnæmt og mikilvægt málefni og skilst mér að þetta verði sýnt á sama tíma og þegar sýnt verður frá endurfundum Norður- og Suður-Kóreubúa.
Rúnuna hafði ég hins vegar ekki séð mjög lengi og var gaman að sjá hana eldspræka og hressa í gær, því miður vorum við nú ekki alveg eins spræk í dag eins og vonir stóðu til en það verður bætt úr því fljótlega.
MIKIÐ ROSALEGA ER GOTT AÐ FÁ EITT SVONA ALVÖRU SCHNITZEL af og til!!! Það var svo ljúft í gær að það hálfa væri nóg, bara snilld að geta dottið í svona mat annað slagið. Svo miikið var étið að ég þurfti að fara í gym-ið í dag til að vega upp gagnvart áti gærdagsins. Annars er maður farinn að sakna heimahaganna, togar alltaf í mann þegar heimferð nálgast og ætla ég að gera allt sem ég get til að koma ástinni minni á óvart er heim er komið. Já, það verður eitthvað sniðugt.
Í dag var setið Emergency námskeið hérna hjá Atlanta, það var í fínu, frekar þurrt efni, en alltaf gott þegar svona er búið, á morgun fáum við svo að vita hvernig við komumst inn í flugvélina og svoleiðis, já, opnum hurðir, rennum okkur á rennibrautum og slökkvum elda og margt fleira, aksjón á morgun. Næstu dagar á eftir bjóða upp á fleiri námskeið með öllu tilheyrandi, það er í fínu lagi, sérstaklega á meðan Hjaltinn og Rúna eru í þessu líka. Snilld.
Maður er nefndur Mási, hringir allt í einu og þykist vera besti vinur manns, lætur ekki í sér heyra í marga mánuði, svo dúkkar bara upp símtal hérna í Frankfuhrt, hmmmm, eitthvað býr að baki hugsaði ég með mér, jújú, mikið rétt, karlinn ætlar auðvitað að sækja gleraugu fyrir systur hans á leðinni heim, ekki málið, en svo fór ég að hugsa málið, hmmm, ef ég læt systur Mása fá gleraugun, þá á hún auðvitað eftir að fá þvílíkt sjokk þegar hún sér Másann í réttu ljósi, nú er þetta stór spurning hvort þetta sé vinargreiði ;) Nú ætla ég að láta ykkur dæma hvað ég á að gera!
Systir hans sér hann svona í dag:

En ef ég læt hana fá gleraugun, þá sér hún loks hvernig Mási er sem er hér:

Jæja, þá hef ég lokið bullina af í bili! Kveðjur!

Sunday, July 30, 2006
Jæja, gott fólk
Þá er karlinn staddur í Brussel en er á leið til Frankfuhrt á morgun sem betur fer, því hér hundleiðist mér! Hér er ekki kjaftur enda sýndi það sig að ég og Hjalti héngum á skype í 3 klst viðstöðulaust og töluðum um nákvæmlega ekki neitt, en það sannar enn og aftur að Hjaltinn er alltaf að brjóta karlmannslögin sem hann bjó sjálfur til :-)
Jæja, Birkir var að svara einhverjum pósti hérna hjá mér og virtist liggja mikið niður fyrir, hann varð greinilega sársvekktur þegar ég uppljóstraði um fjölda bringuhára hans, þeim sannleika hefur hann átt erfitt með að kyngja síðustu misseri, en ljóstraði þá upp öðru sem ég ákvað að spara að nefna, en verður þó nefnt hér. Já, hann mætir í spandex í klassann, rosalegur, maður verður bara að leirast!!!
Spandex-kappinn í Classann mætir,
kokhraustur og frár,
Pósar og pjattast svo engu lagi sætir,
en peyjinn hefur engin bringuhár!
Í örvæntingafullri tilraun hans til að koma í veg fyrir áframhaldandi orðspor ákvað hann að fara í photoshop (forrit til að breyta myndum fyrir þá sem ekki vita) til að reyna að sýna fólki að þetta væri ekki rétt, en því miður Birkir, það virkaði ekki.
Þakka þér samt fyrir að líkja mér við hálendi landsins því það er nú svo fallegt að það er mikið hrós ;)
Annars verð ég að viðurkenna að Birkirinn er drengur góður og góður æfingafélagi og engu yfir að kvarta þegar kemur að hans character, liggur við að lágkúra hafi verið hjá mér að byrja á þessu, en stundum verður maður að krydda tilveruna ;)
Að öðru, heimferð er vonandi 6. ágúst, kannski 7. Það verður að koma í ljós, og hlakkar í manni að koma heim og hitta elskuna mína og hafa það "nice". Það skýrist vonandi á allra næstu dögum hvað verður.
Andlegur undirbúningur er hafinn fyrir framkvæmdir á nýju íbúðinni, konan hefur auðvitað fullt af hugmyndum sem þarf að koma í gagnið, auk þess sem spasl og sprunguviðgerðir fara í gang. Það verður auðvitað bara stuð, og svo er auðvitað snilld að Hjalti sé búinn að brjóta karlmannslögin svo illa að refsingin hans verður auðvitað að skúra hjá mér, og kannski að halda á ryksugunni á meðan ég bora ;)
Jæja, hættur að bulla í bili, óska Sigmundi Einari Mássyni til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn í golfi, snilld hjá gaur, gerði vel og pakkaði liðinu saman, það hefði kannski ekki verið svo auðvelt ef ég hefði verið á landinu ;)
Chao for now!

Friday, July 28, 2006
Góða kvöldið
Jæja, þá er maður staddur í Houston Texas. Reyndar fer ég heðan í nótt, þannig að ekki eru margir klukkutímar eftir af veru minni hér. Það er ágætt, því hér erum við á flugvallarhóteli sem er reyndar ágætt en hér er því miður ekkert að gera, netið er þó frítt sem er mikil bæting á því sem oft hefur verið.
Houston er reyndar ekki mikið frásögu færandi, ekki glæsileg borg í neina staði, hef reyndar komið hingað áður og fannst mér þá þessi borg vera í töluvert lægri klassa heldur en t.d. San Antonio, Beumont, Dallas og Austin, en þó er hún mun betri heldur en El Paso, en hvað um það.
Flugvöllurinn hér ber frægt nafn, reyndar ekki upp á marga fiska þó, því hann heitir George Bush airport!!!! Það er reyndar allt í lagi, háir mér ekki neitt, en ég verð þó að viðurkenna að allt annað nafn en þetta hefði komið í huga mér ef ég ætti að hafa skírt þennan völl einhverju nafni, hver veit!
Nú styttist í verzlunarmannahelgi heima fyrir og svíður sárt að koma heim akkúrat þegar hún er búin, það verður væntanlega mikið stuð bæði í borginni og út á landi, ég og Lilja eigum svo margar góðar minningar úr Eyjunum að það er hálf sorglegt að missa af þjóðhátíð í þetta skiptið! Hugurinn verður þar þegar að því kemur!
Í nótt held ég til Brussel, verð þar víst í 2 daga áður en ég fer til Frankfuhrt, sjáum til hvort að það verði raunin, en heimkoma er sem fyrr áætluð heim þ. 7. ágúst og hlakka ég til þess að styðja elskuna mína í próflestrinum auk þess að gera nýju íbúðina fína á meðan maður er heima í næsta mánaði.
Vona að allir hafi það gott og kveðjur í bili!

Wednesday, July 26, 2006
Hvernig kemstu af í New York!
Gaur: How are you doing?
Ég: cheers
Gaur: How´s it going?
Ég: cheers
Gaur: There you go.
Ég: cheers
Gaur: Want another one?
Ég: cheers
Gaur: Can I help you?
Ég: cheers
Gaur: Are you ok ?
Ég: cheers
Gaur: cheers!
Ég: cheers.
Auðvelt ekki satt!!! :)
Jájá, ekki vandamálið, bara snilld að vera kominn til N.Y. aftur, átti reyndar ekki að gista hér, en þar sem ekki fékkst flug til Houston þá var bara skellt sér á einn auka dag hérna.
Ég tók Oestend út með glæsibrag í fyrrakvöld og gærmorgun! Fór ekki á hótel í Brussel heldur beint inn á herbergi til Hálfdáns flugvirkja í Oestend. Spiluðum pool og drukkum bjór og höfðum það nice, miklu betra heldur en að vera einn í Brussel og vita ekkert hvað maður á að gera. Tær snilld.
Oestend er skrýtið pláss, allt brjálað að gera þar á sumrin en breytist í draugabæ á veturna. Falleg lítil borg, ögn minni en Reykjavík. Bara gott mál. Var Valdi fl.vlrki þarna líka og skemmtum við okkur konunglega þarna.
Ljótt var að lesa um tepruskapinn hjá Hjaltanum í fyrrdag, agalegt að brjóta svona af sér gagnvart karlmennskulögunum, ég sting bara upp á því hér og nú að hann verði "baseraður" í Gatwick í framtíðinni og geti leikið sér með pungfreyjunum þar, það er minn dómsúrskurður :-)
Annnað mál, Birkir kominn með kaskeiti. Það var eitthvað storka minnimáttarkenndinni hjá honum að eiga ekki svoleiðis dót og nú fagnar hann sem aldrei fyrr, kannski að hann verði bara hjá Excel að eilífu vegna þess, svo stoltur er hann að allt í einu er hann ekki barn lengur, heldur kominn með 26 feit! bringuhár sem telst nú töluvert á þeim bænum (að mig minnir engin fyrir ;), hann fer væntanlega beint í world class þegar hann kemur heim og pósar sig þar í speglunum ásamt vinum hans sem hafa líklega ekki fleiri en 25 bringuhár, sjáum til, en ég óska honum til hamingju að vera kominn í bringuháraklíkuna ;) Ég hugsa nú að hann tapi bringuhárakeppninni þegar hann fer að pósa sig með Tyrkjunum þarna í Dalaman, þeir eru loðnari en górillur á besta aldri, ROSALEGT!!!
Nú fer orðleysið að nálgast, og þá er best að kveðja,
CHEERS!!!!!

Sunday, July 23, 2006
Barabb babb babbarabb barabb babb rabbarabb ba babb babb daddarabb barabb babb búbbidei .......
Stars spreading the news,
I´m leaving today,
I want to be a part of it, New York Ne-e-e-w York
....
I want to wake up
in a city that doesn´t sleep
.......
Ne--e---e-w York, Ne-w Y-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-orrrrrk!!!!!
Jamm, staddur í New York, borginni sem sefur aldrei, þetta er búið að vera hrein snilld að vera hér á Manhattan í 2 daga, skoðaði Empire State Building (fór þó ekki upp í þetta skiptið, of mikið að gera!) og kíkti á Rockefeller Center auk alls konar dæmis sem hægt er að tralla hérna. Tær snilld.
Hótelið statt hjá húsi Sameinuðu Þjóðanna (100m í burtu), og auðvelt að komast á milli staða á tveim jafn fljótum. Það var hins vegar ekki alveg eins auðvelt í dag, þar sem að ég keypti Drvier (Ping G5) ásamt vatnsbyssu til að hreinsa bíla og að lokum massa regnjakka sem þarf í golfið einnig.
Það er hreint ótrúlegur munur á að vera hér frekar en á Long Island þar sem borgin sefur nánast allan daginn!
Nóg um það!
Þarf því miður að fara héðan í nótt til baka til Brussel, verð þar í 2 daga áður en ég flýg aftur hingað, en þá staldra ég ekki lengi við hér heldur fer strax til Houston í framhaldinu. Þar á maður víst að vera í 2 daga áður en til Brussel verður haldið aftur þaðan. Það er ekki laust við að það hlakki í manni að fara til Frankfuhrt um mánaðarmótin og hitta "Rosalegasta mann norðan alpafjalla" í góðri stemmningu í nokkra daga, verður tær snilld.
Heimkoma verður svo 8. ágúst og þá tekur við meira golf og vinna í nýju íbúðinni en það þarf að spasla, mála, fá sér bjór, spasla meir, bjór, spasl, bjór, bjór, spasl, bjór, bjór, bjór, smá spasl, meiri bjór o.s.frv. ;)
Svo er auðvitað stefnt á gott innflutningspartý þegar að því kemur, það fyrsta var gott á Fálkagötunni, bíðið bara eftir því næsta!!! Það verður rosalegt!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Að lokum,
Guten Abend Damen und Herren!

Thursday, July 20, 2006
Jæja, þá er maður mættur til Brussel. Það gekk þó ekki ævintýralaust fyrir sig því önnur eins ferð út hefur sjaldan komið upp á yfirborðið. Fyrst þegar komið var til Keflavíkur, var full út út dyrum og ég ætlaði bara aldrei að komast að skrifstofu Iceair til að ná í flugmiðann, svo "check-a inn " í framhaldi af því. Eftir nokkur olnbogaskot og læti komst ég þó að skrifstofunni og náði í miðann, þá tók við 5000 manna biðröð, ég var þó heppinn, sá mér færi á að nota nýjustu tækni og "checkaði mig inn" sjálfur, en það var þá ekki betra en það að "baggage drop off" hjá Iceair tekur lengri tíma en "check-in"!!! Ég stóð í 40 min einungis til þess að láta Iceair fá töskuna mína, jafnvel þó að ég væri búinn að "check-a inn"!!! Óþolandi!
Leiðin lá til Amsterdam og er ég kem þangað þá kemur í ljós að búið var að bóka flug á mig sem ég gæti aldrei náð, þannig að þá fóru rúmir 3 tímar í ekki neitt á Schiphol flugvellinum. Jæja, loks kemst maður nú í flug og rúllar yfir til Brussel. Þá var bara eitt eftir, EKKERT HÓTEL!!! Jájá, ekkert hótel handa karlinum og við tók 1,5 klst í að bíða eftir einni lítilli staðfestingu um það að ég ætti aið gista hérna fram á föstudag. Þetta var óneitanlega pirrandi, enginn kvöldmatur (mátti kannski alveg við því ;), dagurinn og kvöldið orðið handónýtt. Frekar pirrandi, en ég er núna á fínú hótelherbergi og hóteli í Brussel, lítur allt ljómandi vel út og svo á ég að fljúga á morgun til N.Y. Það átti að vera í dag, en smá seinkun (sóllarhringur) er á því flugi.
Nú að skemmtilegri hlutum :)
Þau stórmerkilegu tíðindi hafa átt sér stað að ég og Lilja eru búin að festa okkur kaup á nýrri höll!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Höllin er staðsett í Tröllaborgum 23 í Grafarvogi (ekki nóg pláss fyrir svona höll í miðbænum ;) er 120 fm með bílskúr, á efstu hæð (3. hæð) með útsýni alveg til Norðurs og Vesturs, geggjað dæmi. Stefnt verður að undirbúiningi til flutnings í lok ágúst, þ.e. kem heim 8. ágúst og spasla væntanlega í 2 vikur og mála áður en við rúllum okkur þar inn.
Kveðjur á frónið sem mér skilst að hafi lagað veðrið akkúrat þegar ég og Hjalti fórum burt.

Saturday, July 15, 2006
HOLA Í HÖGGI!!!!!!!!!
Jæja, nú er glatt á hjalla, heldur betur, karlinn smellti holu í höggi á 2. braut á Nesvellinum þ. 11.07 nýverið.
Það er ekki ónýtt að uppgötva það að maður sé á meðal þeirra bestu í þessari grein :)
Höggið var slegið með SW (Sand Wedge), og var þetta hreint magnað golfhögg!!!!!!!
Annars verður maður nú að byrja að afsaka ótrúlegt bloggleysi upp á síðkastið, hrein ritstífla í gangi og ekkert markvert gerst þannig.
Ísraelar komnir í sannkallað banastuð, orð að sönnu, því nú vilja þeir bana Hizbollah (ekki skrýtið), olíuverð hækkar og allur pakkinn.
Það er ljóst að ég fer út næsta miðvikudag, er förinni heitið til Oestend í Belgíu, verð baseraður þar næstu vikur, fljúgandi þaðan til N.Y. og Houston.
Reyndar í lok mánaðarins fer ég til Frankfuhrt á upprifjunarkúrs ásamt fleiru því tengdu, og kannski að maður fái að opna hurðir o.þ.h. til tilbreytingar á vélinni.
Birkir var með skot um að ég væri á reynslulausn á blogginu hjá honum, það er eðlilegt en á næstunni mun maður vera skárri með skrifin.
Sumrið hér er ekki glæsilegt, reyndar eitt það lélegasta sem ég man eftir langa lengi, hvar eru dagarnir sem maður getur setið úti og drukkið kaffi niður
á austurvelli með öllu tilheyrandi, hvar er blíðviðrið, þetta eina sanna sem Ísland var orðið svo frægt fyrir, nú fer maður að vera hræddur við veturinn fyrst sumarið er svona, agalegt!
Næst á dagskrá er golfmót í Garðabæ á morgun, auk þess sem reynt verður að fljúga Yak-inum eitthvað næstu daga áður en haldið verður út til Belgíu.

Sunday, May 14, 2006
Lallalaralla, larallalallaralla larallalalla lala, darúddí dí daddí darúddíd dí daddí, og svo "því vér erum hraustir menn!!!, látum þá alla, sverfa til stáls" eða eitthvað þannig!
Eins og sjá má er þetta upphaf að hinu vinsæla lagi Hraustir menn, en það á vel við þessa dagana þar sem gym-ið er tekið svoleiðis í bakaríið hérna að það hálfa væri nóg, enda ekki nóg með það heldur er spilað golf á fullu líka þannig að ekki ætti mann að vanhaga hreysti þessa dagana!
Luxembourg er fínasti staður á þessum árstíma, gott að spila golf þó dýrt sé að vísu, snilld að hafa Siggeir snilling sem bílstjóra, en ég hef aðeins pælt í því þó að fá mér bíl og hafa hérna einhvers staðar í Evrópu, jafnvel hér.
Heimför er áætluð á þriðjudaginn, kannski degi fyrr, sjáum til með það, hins vegar fréttist af einum massa gröðum sem skellti sér heim 2 dögum fyrr vegna mikillar stíflu sem safnaðist á einungis 3 dögum hjá honum, hefur honum verið ráðlögð sálfræðiráðgjöf, því hann eins og Michael Douglas hafa greinilega fengið kynlífssýki eftir allt þetta Basic Instinct dæmi :-)
Heil og sæl!

Saturday, May 06, 2006
Góðan og blessaðan daginn!
Jæja, nú hefur margt gerst frá síðasta bloggi, heldur betur.
Ég fékk mér morgunmat hér á Hilton og endaði hann með þvílíkri matareitrun
að það hálfa væri nóg, ældi og spældi eins og vitlaus væri.
Það er nú loks almennilega gengið yfir og nú tekur ræktin við enn á ný. Hún verður
samtvinnuð golfinu sem maður mun heldur betur spila hér næstu dagana.
Skrapp til Azerbajan í fyrrakvöld, var þar í heilan dag, gekk um bæjinn og leiddist
það ekki, en ekki mun ég segja að þetta sé falleg borg, breytist m.a.s. í svona
"ghosttown" á kvöldin því þeir eru ekkert að spandera pengene í ljósakostnað.
Hlýnaði þó um hjartarætur við að sjá leigubílana, sem 90% voru bara gömlu góðu
Lada-bifreiðarnar, í vægast sagt misjöfnu ásigkomulagi, en sumir voru þó ansi grand
á því þarna og búnir að setja álfelgurnar á þær fyrir sumarið!
Á hótelinu hitti ég frægan mann, þori vart að segja frá því en Ahmediani (eða hvað
sem hann heitir) forseti Írans var þarna á hótelinu á orku-fundi með öðrum leiðtogum
landanna þarna í kring. Horfðum við hvor á annan augliti til auglitis og var ég ekki
frá því að dead-lookið mitt hafi komið honum í opna skjöldu. Kannski að vitkist
eitthvað karlinn við þetta! Af kaupum úr þessari ferð varð ekki mikið, 2 DVD diskar, annar diskurinn tónleikar með Sheryl Crow og hinn myndbönd með Tinu Turner, er hægt að hugsa sér það betra? Held ekki! Eitthvað verður maður að hafa hérna í Lux þegar lítið er um að vera (sem er nokkuð oft!). Hins vegar get ég ekki kvartað yfir þessu núna því Siggeir gamli snillingur Sverrisson hefur tekið mig í leiðsögn um Luxembourg og nú þegar karlinn er kominn á bílinn sinn aftur hérna höfum við lagt Lux undir fót (eða hjól) og skellt okkur í miðborgina og tekið aðeins út dæmið hérna. Hrein snilld, en ég mæli með því til allra að bíllaus hér í þessu landi er ómögulegt að vera!

Wednesday, May 03, 2006
Matareitrun með meiru!
Góðan dag, hjá mér hefur hann ekki verið of góður, svaf ekkert í nótt vegna gubbupestar og niðurgangs, allt í boði Hilton hótelsins hér í Lux. Já, ég kenni Hilton um þetta því ég borðaði hér í fyrrakvöld, og varð strax slæmur í vömbinni eftir það, svo ágekkst þetta í gær, þannig að´í nótt var maður gersamlega dauður!!! Ældi og og gerði númer 2 til skiptis í alla nótt! Þannig að Hilton hótelið hér býður upp á stofufangelsi og matareitrun!!!
Er aðeins að braggast sem er eins gott því ég á að fara til Baku á morgun, kem svo til baka hingað á laugard. og verð þá hér stuck í viku án þess að gera neitt, golf og meira golf ef heilsan leyfir!

Tuesday, May 02, 2006
Góðan dag góðir bloggaragestir!
Jæja, nú er lag, búinn að taka simmann í bakaríið í Frankfuhrt og allt í fínum gír. Það var auðvitað haldið upp á það með pompi og prakt á sunnudagskvöldið og endaði það með smá þynnku daginn eftir.
Karlinn svo sendur með Siggeiri snillingi Sverrissyni til Luxembourg og er þar nú. Hér er ekkert að gera án bíls, þ.a.l. leigðum við félagarnir einn í dag og komum okkur út úr stofufangelsinu sem er í boði Hilton, það er ekki einu sinni hægt að éta þar vegna brauðs sem er jafn hart og tvíbökur ásamt fleiru.
Jæja, nóg af því, spilaði golf í dag og haldið þið að ég hafi bara ekki rekist á haug af Íslendingum á vellinum, þeir voru frá KB Banka (ég kalla hann reyndar núna KGB Banka ;) og voru í fínum gír, reyndar 4 samtals og þ.a.l. gat ég ekki spilað með þeim, svo hitti ég Birgi Leif, margfaldan Íslandsmeistara og atvinnumann í golfi, hann var við æfingur og ég var ekkert að trufla hann því hann þarf að gera betur ef hann vill eiga roð í mig ;)
Golfið gekk annars fínt, glæsilegur dagur, sól og alles, og ekki laust við að maður hafi náð sér í smá brúnan lit, sem allir vita að mér finnst svo fallegur ;)
Náði sem sagt að eyða deginum í sumri og sól og át svo með Siggeiri á fallegum ítölskum restaurant en fékk mér nú ekkert fallegra en pizzu.
Aftur golf á morgun, svo flug til Baku í Azerbajan á fimmtudag. Maður tekur það place út almennilega og kem svo aftur hingað á laugardag til að hanga og gera ekki neitt í heila viku, held ég fari bara í golf ;)
Kveðjur á frón og ákskorun á Birki um meira blogg!!!

Tuesday, April 18, 2006
Góðan dag gott folk nær og fjær sem endranær
Jæja, maður gekk til mín í dag, fullur af gasi (ekki að tala um sjálfan mig ;) og sagði mér að hann væri svo góður í ballskák að það hálfa væri nóg, nú væri svo komið að ég þyrfti að mæta og spila við hann því hann ætti harma að hefna síðan síðast (sem ég persónulega mundi ekki eftir). Jæja þá, eftir feitan kaffibolla á Thorvaldsen var ákveðið að ég og þessi maður myndum útkljá þetta mál eftir kvöldmat. Ég mæti á svæðið og sé þá þetta líka þvílíka professional gaur, með eigin kjuða og alles, m.a.s. eigin krít!!! Ég sá fyrir mér mikið og erfitt verkefni því þessi maður virtist vera þvílíkt heitur (að hans eigin sögn). Jæja, það er byrjað, gaurinn segir “þú færð fyrsta “break-ið” félagi” og ég opna fyrsta rammann með stæl, opnaði reyndar með svo miklum stæl gaurinn gersamlega átti ekki séns, jæja, 1-0 sagði hann og gerði ráð fyrir því að þetta væri nú ekki alvarlegt, svo leið tíminn og það varð 2-0, 3-0, 4-0, 5-0, 6-0, þegar þarna var komið við sögu var gaurinn orðinn svolítið pirraður en ég reyndi að róa hann og sagðist gefa honum mjólkurglas ef hann ynni einn leik ;) Jæja, áfram gakk, 7-0, varð nú gaur orðinn verulega sár, “ég fer ekki fyrr en ég er búinn að vinna einn leik”, 8-0, “hættur”!!!!!!! Tekið skal fram að á endanum bauð hann mér svo heim í kaffi sem eru auðvitað bestu verðlaun sem hugsast getur ;) Takk fyrir það félagi!
Að öðru, styttist nú í að karlinn eigi afmæli, það verður ekki haldið upp á það með bingó-kvöldi eins og mér sýnist Birkir vera að plana sitt ;) Það verður eitthvað gert en það verður tilkynnt síðar.
Kærlig hilsen!!!

Thursday, March 30, 2006
Góðan dag góðir hálsar
Jæja, lítið að frétta af karlinum sjálfum en þó eitthvað, jú, maður puðar og puðar í "gym-inu" alveg eins og ég veit ekki hvað því jú eitthvað verður maður að sýna einkaþjálfaranum þegar maður kemur heim á skerið ;)
Annars vil ég þakka fyrir prýðisþátttöku í spurningaleiknum steinasteik þar sem sumir kanditatar fóru fram úr björtustu vonum í stigagjöfinni, má þar nefna mömmu, Bjarna Rafn, og Birki megamassa! Já, þetta kom bara vel út og aldrei að vita nema annað svipað kunni að læðast á þetta blogg seinna meir, verst er að nú hef ég verið krafinn um verðlaun í þessari keppni, verðlaun!!! Ég lagðist í þunga þanka hver verðlaun í svona magnaðri keppni ættu að vera og komst að því að það má ekki vera neitt slor, því þetta jafnast auðvitað á við "Meistarann" sem Logi Bergmann stýrir á Stöð2 ;) Þ.a.l. hef ég ákveðið að verðlaunin séu fyrir alla sem tóku þátt, þau eru ábending á þetta skemmtilega lag "Ballantines" sem sungið er af Valgeiri Guðjóns og Köntrísveit Baggalúts!!!! Geri aðrir betur :)
Þetta er snilldar lag sem aldrei verður of oft spilað ;)
Annars virðist heimurinn vera að fara fjandans til þessa dagana, Ítalir að sýna gestrisni (síðan hvenær!!!!) með því að bjóða Afghana friðhelgi þar, Apple er í máli við Apple, fjöldamótmæli í USA gegn lögum um ólöglega innflytjendur sem endar á því að nýr hálfgerður Kínamúr verður settur á milli Mexico og USA 1000km langur takk!!! Ekki í fyrsta skipti sem Kaninn fer í ruglið sem sést best á því að John Livingston Borgarstjóri Lundúnaborgar er æfur í sendiherra Bandaríkjanna í Bretlandi því hann neitar að borga umferðarskatta sem allir greiða þegar þeir fara á eigin bíl inn í London, er þetta ekki týpískt dæmi um bullið, sérstaklega þar sem þessi álfur er nú mikill vinur Georgs gírlausa þarna í Camp David!!!
Hins vegar er margt gott, eins og tvennir stórtónleikar heima fyrir sem maður missir af, Katie Melua á þar efsta sætið ásamt Baggalútsmönnum, já, Baggalútur á NASA annað kvöld á miðnætti, og Katie Melua verður í höllinni að ég held ?
Nú er maður farinn að hlakka til að koma með sólina á klakann og skella sér í góðan gír með elskunni, og taka eitt próf þ. 7. apríl í skólanum. Fínt mál og hlakka til að sjá ykkur öll!
Auf Wiedersehen

Wednesday, March 29, 2006
Góðan dag (þó minn sé frekar glær)!
Jájá, kominn til Frankfuhrt þar sem maður hitti auðvitað helling af fólki um leið og maður vaknaði um 2-leytið í gærdag, löng og ströng ferð frá USA að baki og karlinn var bara nokkuð hress. Svo hitti ég Sólon og Rúnu sem ég hafði ekki séð í óratíma, það þýddi auðvitað að maður þurfti að fara út að borða með öllu tilheyrandi. Fín skemmtun en dróst þó heldur betur a langinn og fyrr en varði sló klukkan 2 að morgni. Vakna núna frekar slappur eftir þessa fínu ferð, en þegar öllu er á botninn hvolft var þetta bara meiriháttar gaman.
Jæja, nóg af því.
Árshátíðir eru þessa dagana í fullum gangi, hef ég sjálfur farið á eina og fannst mér dansinn duna og allt í góðu, nema hvað að þegar ein manneskja steig á mig á manndrápsháum hæl finnst mér vert að bjóða upp á smá disco-danskennslu! Eins og þið vitið er þetta nú ekki flókið, en þetta er mitt vísindalega framlag til þess að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur.
Að lokum kveðjur til allra heima, heimkoma 3. april!

Tuesday, March 21, 2006
Góðan dag dömur og herrar og perrar og allur andskotinn þar á milli.
Ég er hér að reyna að blogga, með Gogga, af alkunnri snilli.
Það er þó ekki mikið sem vikið getur að í dag,
ekki er stritað, hvað þá ritað, nema kannski lítið lag.
Hjalti er ekki með verki, en fór samt í bað,
segi ekki meir um það, en honum veitti ekki af (djók).
Ég hef frá engu að segja, því fer ég að þegja, og út af þessu bulli fer ég að beygja!
Jæja, nóg er komið af þessu bulli, ég verð hins vegar að biðja ykkur öll að fara á á link-inn hér að neðan og taka þátt í smá spurningarugli sem ég var að búa til um egoistann mig!
Að lokum er orðið ljóst að ég flýg annað kvöld til NY, verð þar í 4 daga og fer svo til Chicago í 3 daga, kem svo til Frankfuhrt 8 dögum eftir morgundaginn.
Minni á spurningakeppnina Steinasteik, sem er á eftirfarandi link.
Steinasteik

Friday, March 17, 2006
Here comes the sun!
Svo hljómar fyrsta laglína í hinu fræga samnefnda lagi bítlanna. Mikið var
yndislegt að vera heima og hugsa til þessa lags þegar maður vaknaaði á
morgnana, af hverju? jú, því það er ekki annað hægt en að taka eftir því hversu daginn er farinn að lengja! Já, svo eru meira að segja jafndægur núna þ. 21.
þessa mánaðar, og það er nú ekkert smá stuð þegar dagurinn er loks orðinn lengri en
skilgreind nótt. Magnað!!!!!
Help!
Svo hljóðar annað lag með bítlunum. Já, ég þarf hjálp, hjálp við að koma
hinum nýja Yak-18T sem við félagarnir vorum að festa kaup á, í gott sk?li,
viti menn um skýli fyrir nýja Yak-inn endilega látið champ-ann vita.
Yesterday,
Já, hann er svo "far away". Mikið óskaplega var gaman í gær, mikið stuð með
Hjalta og Arne Krogen hér í Neu Isenburg, en við komum einmitt hingað á þriðjudaginn síðasta og ákvaðum að taka næturlífið aðeins út í gærkvöldi, sátum og drukkum öl og fengum okkur fínar kótilettur með sem brögðuðust eins og best væri á kosið!
Hún sló þó ekki út lambasteikina sem ég bjó til fyrir viku síðan þar sem karlinn eldaði af einskærri snilli heilt læri til að troða í gogginn á glorhungraðri fjölskyldunni, ekki laust við að mamma væri hrædd um að ég væri að slá hana út í kokkinum, en ég auðvitað fullvissaði hana um að svo færi nú aldrei ;)
8 days a week
Já, ég vinn og vinn, eins og skepna, sit á hótelinu og er standby með öllu tilheyrandi og hef ekki gert handtak síðan ég kom út, hins vegar þegar maður er heima í fríi, þá er brjálað að gera í "Yök-unum" nánast 8 daga vikunnar, svo mikið og gaman er að því að hafa 2 Yak-a, alger snilld. Ég set inn myndir af þeim um leið og ég fæ nógu góðar myndir af þeim, þær sem ég er með eru ekki alveg nógu góðar
til þess að setja hér inn. En vinnan fer ekki bara í Yak-ana, heldur erum
ég og Birkir (sem er hel-cut-a?ur!!!) með einkaþjálfara sem tekur okkur svo
rosalega í gegn, þannig að það er ekki nokkur leið að fá engar harðsperur.
Fætur, hendur, axlir og alles, fá svo hrikalega útreið að það styttist í að við verðum alveg hrikalega massaðir með öllu sem því fylgir, sem er rosalegt því við vorum í engu smá formi fyrir ;)
Paperback Writer
Hmmm, magnað max. Gott lag, sem minnir mig óneitanlega á helvítis dagblöðin sem koma inn í hólfið hjá mér óumbeðið! Dagurinn hefst á því að henda heilu frumskógunum af pappír í ruslið, án þess að maður nokkurn tíma líti á það sem stendur á honum, ég vil þetta ekki og er þreyttur á þessum fjanda! Ég er áskrifandi að Mogganum en ekki Fréttablaðinu! Hvað þá Blaðinu, burt með þetta helv....
Nowhere Man
Ekki laust við að hann hafi verið á svæðinu í dag, hvernig, jú, einn hér var svo glær í dag að hann sást varla, þannig að ég var í stökustu vandræðum með hann.
Imagine
Ég segi nú bara eins og Megas í góðu lagi um Krókudílamanninn, "Ímyndið ykkur bara", já, ímyndið ykkur þegar herinn fer burt, þá fæ ég kannski að taka mynd á Keflavíkurvelli án þess að fá hermannn með svaka hólk miðandi á mig eins og terrorista! "Ímyndið ykkur bara" ef herinn hefði ekki komið á frónið. Þá værum við væntanlega með eigin her og alles og Landhelgisgæslan ekki í fjárhagsvanda!!!
"Ímyndið ykkur bara ef ekki hefði komið hún Laufey", hmm, hún væri þá kannski ekki lengur hrein mey :-)
When I´m 64
Lofa að blogga aftur fyrir það ;)

Friday, February 10, 2006
Til hamingju Ísland!
Já, svo sagði hin kyngimagnaða sönkona(álfkona) Silvía nótt. Ekki ætla ég að taka þessum hamingjuóskum með miklum fagnaðarlátum því ekki finnst mér þetta lag hjá henni til mikils koma. Frekar er að óska þeim sem hafa húmor fyrir svona löguðu til hamingju með það að koma sér endalaust á framfæri með rugli!
Jæja, ég ætla nú ekki að hljóða eins og afi minn nema með því að segja þvuhhhh!
Ég ætla hins vegar að koma því til skila hér að ég hef ekki verið Evróvision aðdáandi mikill, en þó samt svo að maður fylgist með. Ég hélt þó að ég hefði séð vafasömustu undankeppni Evróvision núna um daginn þegar ég rakst á úrslit keppninnar (held að það hafi verið úrslit) í Þýskalandi! Já, þeir hafa alltaf átt lélegustu lög keppninnar ár eftir ár, og þar gat ég hlegið að liðinu og haft gaman að, en svo fer ég á netið og skoða það sem fyrir ber í keppninni heima og get ekki betur séð en að Þjóðverjar hafi betur í viðureigninni við okkur, ótrúlegt, Íslendingar, þessi þjóðerniskennda þjóð að púkka upp á Silvíu nótt. Reyndar er hún ekkert ein um að eiga lélegt lag, heldur eru þau það öll! Eins margir hafa sagt í gegnum tíðina, "díses kræst maður, hvað er í gangi". Svo spyr maður sig, hvað vakir fyrir dómnefnd sem velur í þetta? Á hvaða efnum voru þeir??? Þeir hljóta að hafa verið fengnir af einhverri annarri plánetu því þetta vísar engan veginn í neitt sem tíðarandinn býður upp á í dag, nema kannski "idiot"-húmorinn frá þessari ástsælu Silvíu, sem að einhverri ástæðu á að þykja fyndið og flott í dag. Það er skrýtið nú til dags að þessi undankeppni heima skuli vera svona, því hún hefur hefur farið vaxandi, þ.e. meira er lagt í hana frá ári til árs undanfarin ár, alla veganna er Sjónvarpið alltaf að leggja meir og meir í með hverju árinu sem líður. Það er því sorglegt að sjá svona val á lögum í úrslitum. Hvar er djassinn (sem er á uppleið í dag), hvar er þetta venjulega gamla góða (þarf reyndar ekki að vera gamalt), hvar er tónlistin sem maður er vanur að heyra, þarf þetta alltaf að vera með þeim tón að manni finnst maður hafa heyrt svona lög mörgum sinnum áður? Hvar eru lögin í anda Nínu (með Stebba og Eyfa, er ég eini maðurinn sem man eftir þeim?), hvað með hljómsveitirnar heima sem gera það gott í dag, af hverju heyrist ekki í þeim? Ég held bara að ég verði að kaupa diskinn með Gleðibankanum þar sem þessi skrif virðast vera þunglynisleg :-) Ég er nú bara að tala um lög sem menn eiga eftir að muna eftir! Var ekki nóg að sjá Pál Óskar niðurlægja þjóðarstoltið hér um árið, ætlar fólk að prófa það aftur, var það svona gaman ???
Svo er það annað. Það er ótrúlegt að sjá hvað fuck-you húmorinn hefur náð langt, nú er ekki fyndið að segja hver munurinn er á kvenfólki og hvirfilbyl, nei, í dag á maður að hjóla nakinn á 10m stökkbretti út í sundlaug og best er ef menn meiða sig mikið, það er fyndið! Ótrúlegt enn og aftur. Ég er nú enginn kommúnisti eða hvað sem það nú er, en þessi húmor sem á uppruna sinn frá USA er genginn úr sér og er orðinn ansi geldur, mér finnst hins vegar t.d. strákarnir sem nú eru á Stöð 2 standa sig vel, þeir virðast ná því að vera á línunni milli þess sem er fyndið og þess sem er ógeð, sem er bara mjög gott mál. Auk þess sem þeir ná til allra aldurhópa með prakkarastrikum sínum og fleiru, ég klappa fyrir þeim. Einnig klappa ég fyrir baggalút, sem virðast endalaust geta gert grín að hverju sem er, hreinir snillingar, kannski við ættum að senda "par excelans" lagið þeirra í Evró, en því miður má það ekki því það hefur heyrst áður, en heyrið mig, var ekki fólk búið að heyra lagið hjá Silvíu áður, veit ekki betur en að það hafi lekið út áður en það var flutt í keppninni!!! Ég læt hér með niðurrifspólitíkinni lokið í bili, en Hgret félagi minn tók nú vel í gegn gaurana á kallarnir.is, jamm, sammála honum, enda er fátt eins vitlaust og það sem þeir bjóða upp á, svo voru þeir svo aumingjalegir á síðustu þjóðhátíð að maður hreinlega skildi ekki hvað þeir voru að gera á svæðinu!
Niðurstaða:
Ég get með engu móti ráðið því hvað fólki finnst fyndið og hvað eina, enda væri það frekar bágborið ef svo væri (sérstaklega miðað við þessi skrif)!
Mér finnst samt agalegt að borga skatt til þess að horfa á svona vitleysu eins og Evróvision er heima á fróni. Ég vil ekkert borga fyrir að sjá Silvíu nótt gera sig að fífli einu sinni enn, hvað þá að láta hana kannski(því ekki er hún búin að vinna keppnina) að niðurlægja Ísland og íslenska menningu á alþjóðlegum vettvangi, reyndar serm betur fer held ég að það séu ekki mjög margir Evrópubúar sem fylgjast með þessari keppni. Er skatturinn sem ég borga að fara í hana syngjandi upp á sviði!!! Kannski maður hendi bara sjónvarpinu út um gluggann, því ekki má ég eiga það án þess að borga fyrir þetta!!! Þegar afnotagjöldin hjá Ríkinu fara í svona vitleysu liggur hreinast við að maður hendi imbanum út um gluggann. Svo er spurning, ef ég hendi sjónvarpinu hvort ég þurfi ekki að borga afnotagjöld af tölvunni því stundum læðist maður inn á RUV.is og skoðar hitt og þetta! Þeir geta ekki sætt sig við það miðað við stefnuna sem sett er með sjónvarpið, eða hvað? Já, til hamingju Ísland!

Thursday, January 19, 2006
NÚ ER FROST Á FRÓNI FRÝS Í ÆÐUM BLÓÐ!!!!!!! BÓKSTAFLEGA!
Já, karlinn mættur heim á klakann og verður hér næstu 2 vikurnar.
Þvílík snilld að vera kominn heim þó kalt sé, en reyndar þurfti skerið ekki annað en að vita að karlinn væri á leiðinni, þá hlýnaði ískyggilega :-) Jájá, asahláka um leið og karlinn mætti.
Jæja, London hefur verið tekin með trompi og var það alveg MEGA-GAMAN!!! Lilja mætti út daginn á eftir mér og eyddum við viku þar ásamt famelíunni og brósa, sem var að útskrifast með MASTER í lögfræði!!!!
Hvað gerðum við? Jú, þræddum allt London svæðið eins og það leggur sig, keyptum helling af því sem við áttum alls ekkert að vera að kaupa, t.d. ég enn einn leddara!!! Jú, kíktum líka á alla garða sem skipta máli, Hyde-, Green- og St. James´s Park. Það var svo gaman að vera í St. James´s Park að það var ekkert venjulegt, svo mikið fuglalíf og þegar við settum nammi í hendurnar okkar þá komu dúfurnar og settust á okkur eins og páfagaukar, ekkert venjulega flott! Pelíkanar voru þarna líka og mikið rosalega eru þeir skringilega flottir, hálsinn á þeim og undirhakan hreinasta snilld!
Já, við skemmtum okkur sem sagt konunglega, átum á kvöldin eins og svín, löbbuðum á daginn eins og golfarar og djúsuðum eins og frímúrarar :-)
Karlinn kom ósjaldan við á Starbucks og var það hrein snilld að komast í tæri við almennilegan Starbucks Latte aftur!
Nú hlakkar mann bara til að fara á Avion GEIM-ið um helgina, já, sótti þessa 2 fríu miða sem hver Atlanta maður fær á það í dag, það ríkir mikil stemmning fyrir því og maður vonar bara að sem flestir mæti á það og skemmti sér almennilega!!!
Jæja, ég bið að heilsa í bili og sérstakar kveðjur til allra í Indó í Hajj-inu og Dubai félaganna.

Tuesday, January 17, 2006
Jæja, góðan daginn allir saman nær og fjær, sem endranær.
Það er gaman að vera til, það er engin spurning. Á síðasta laugardag var farið í partý hérna í London og mikil gleði og friðarstemmning ríkti þar. Enginn tími var á staðnum, það er þarna voru allir frægustu menn samtímans og fortíðarinnar saman komnir og kynslóðabilin brúuð til margra áratuga aftur í tímann. Þarna voru margir stemmnings- og stuðboltar ásamt mér og Lilju minni. Það ríkti mikil stemmning á svæðinu og gaman var að hitta David Beckham og frú, Robbie Williams, Lilju fannst sérstaklega gaman að hitta Tom Cruise og Hr. Clooney, en á meðan þeir voru að hafa ofan af Lilju, rakst ég á Jerry Springer!!! Honum tókst að gera mig helvíti reiðan, og ég rauk upp eins og myndin að neðan sýnir, en hann slapp. Helvítis melurinn var eitthvað að tala um Cruise og hana Lilju mína og það er ekki viðeigandi við svona viðburð :-) Ru Paul var þarna í bakgrunninum en hann æpti bara og gerði ekki neitt, svo þegar menn róuðust niður, þá fékk hann stólpípuna og varð sáttur ;)
Jæja, hvað um það, þarna léku bítlarnir fyrir dansi og allir voru í góðum gír. Best að láta myndirnar tala :-)
P.S. Það er brilljant að fara á Maddame Tussaud safnið!!!

Ég tók nokkra slagara með Elvis, en allir risu þó upp úr sætum þegar við tókum saman "Heartbreak Hotel" með tilþrifum, rifjaðist þá upp fyrir mér hvað það var gaman að taka Elvis slagarana hérna í den :-) Since my babe left me, I found a new place to dwell, the lonely heart .......... Ooooohhhhh yeahh-hhhh.!!!

Sly Stallone var á svæðinu og komst hann að þeirri niðurstöðu að hann væri orðinn of gamall til að leika í næstu Rocky myndinni sem er nú að fara í vinnslu, hann sagði að ég væri tilvalinn í hlutverkið þar sem maður væri massaður kappi og keppnismaður mikill með allt það sem afburðaíþróttamaður þarf að hafa í sér :-) Ég tek flugið fram yfir leiklistina og sagði honum að ef hann léki ekki Rocky þá væri enginn Rocky, þó svo að Steini þýðist kannski sem Rocky á engilsaxneskunni :-)

Félagar mínir John Travolta og Samuel L. Jackson voru hressir, ég bað þá um að setja sig í stellingarnar og samdi við þá að gera 2 pulp fiction myndir til viðbótar!!! Þeir voru sammála því að ég ætti að hirða allan gróðan af myndunum því John er auðvitað mikill flugmaður og flugunnandi og það eina sem hann vildi var að sitja frammi í bumbunni hjá mér einu sinni, ég verð við þeirri bón :-)
Sunday, January 08, 2006
Góðan dag allir saman nær og fjær sem endranær.
Karlinn er hér staddur í Dubai á leið til Amsterdam í fyrramálið. Það verður fínt að fá eina nótt í Amsterdam áður maður rúllar sér yfir þennan litla poll sem er á milli London og Amsterdam. Já, karlinn á leið til London í frí með Liljunni og svo er nokkrir dagar líða, mæta brósi og mor og far líka, hrein snilld, sem varla er hægt að bíða lengur eftir!!!
Eftir viku er svo auðvitað stemmning að koma heim og rúlla sér þar út í 2 vikur fyrir næsta úthald.
Ekki seinna að vænna þegar maður kemur heim að taka smá Yak-flug og sjá Ísland frá öðru sjónarhorni!!!
Kveðjur.

Saturday, January 07, 2006
Jæja góðan dag.
Ritstíflan er alveg að drepa mann þessa dagana.
Það er hins vegar svo að maður þarf að gera upp sl. ár með öllu tilheyrandi.
Árið byrjaði í loftinu frá hinni helgu borg Medinah í Saudi-Arabíu til Medan í Indónesiu. Það var sérkennilegt að fylgjast með nýju ári ganga í garð úr háloftunum en samt spennandi því það var öðruvísi, svo kom í ljós að allt árið var öðruvísi en reiknað var með en taka skal fram að það var svo mikið öðruvísi að það var alveg meiriháttar.
Pílagrímaflugið gekk alveg fram í byrjun mars er við komum heim. Var þá búið að harka í pílagrímaflugi í 10 vikur og alltaf base í Medan. Nokkrar viðkomur í Jakarta þó, og var þetta allt alveg ótrúlega gaman.
Svo eins og Guðs gjöf að himnum ofan, 4 dögum eftir að ég kom heim, birtist mér á afmælisdag bróður míns hún Lilja mín.
Eftir mánaðardvöl heima og mikið grín og gaman, flaug maður með íslenska páskaferðamenn til Allicante og Faro. Svo var förinni heitið til Kuala Lumpur. Þar var golfið tekið í gegn og endaði maður á því áður en maður kom heim að taka þessa þvílíkt öflugu golfferð í Englandi með Berel nokkrum Arnfinnssyni, þvílík snild.
Aftur var farið til KL stuttu eftir golfferðina og þar flogið til Shanghai, Sydney, Melbourne og fleiri góða staði.
Í næsta fríi var svo goslokahátíð í Eyjum tekin með þvílíku trompi að það hálfa væri nóg.
Gatwick var næsti vinnustaður næstu 2 mánuðina með reglubundnum fríum heima sem við Lilja nýttum okkur í sumarbústaðaferðir og Þjóðhátíð í Eyjum, sem stóðst fyllilega undir væntingum þó svo að maður hafi lokast úti á Bakka í þjóðhátiðarfluginu eina nótt. Einnig tókum við Snæfellsnesið og keyrðum það hátt og lágt auk þess að ganga mikið þar um og skoða. Meiriháttar tími.
Næst lá leiðin til Madrid og þar var flogið til Miami og Tenerife North auk Las Palmas, ágætis tími alveg hreint.
Frankfuhrt tók við í næstu útiveru og fékk ég þann heiður að fara nokkrum sinnum til Chicago. Þvílík snilldar borg sem áður hefur verið greint frá á þessum vef.
Rétt fyrir jólin fór maður svo í mikla heimsferð. Já, Luxembourg, Jóhannesarborg, Frankfuhrt, Peking, Hong Kong.
Nýja árið leggst vel í mig, byrjar eins og í fyrra, í loftinu, reyndar í þetta skipti frá Hong Kong til Dubai, en hvað með það, byrjar eins og hið frábæra ár 2005. Mikið óskaplega sem þetta ár á eftir að vera í minnum haft hjá mér sérstaklega ef tekið er tillit til alls ofangreinds og þess maður varð fastráðinn hjá Air Atlanta 1. jan með öllu tilheyrandi, alveg frábært.
Að lokum vil ég segja, Fjölskyldan, Lilja mín, félagar nær og fjær, Air Atlanta og Fálkagata 14 :-) Takk kærlega fyrir frábært ár 2005, megi næstu ár verða eins pottþétt og þetta!
Að lokum verður maður auðvitað að birta lista yfir þær borgir sem fá áramótakveðjur í ár þó seint séu.
Medan
Medinah
Jakarta
Jeddah,
Faro,
Allicante
Kuala Lumpur,
Shanghai,
Dhaka,
Melbourne,
Sydney,
Dubai,
Sharjah,
París,
London,
Manchester,
Orlando,
Kos,
Glasgow,
Dalaman,
Amsterdam,
Madrid,
Miami,
Tenerife North,
Las Palmas,
Frankfuhrt,
New York,
Chicago,
Luxembourg,
Johannesburg,
Tripolí,
Peking,
Hong Kong