Góðan og blessaðan daginn!
Jæja, karlinn í Gatwick eftir að hafa tekið auka flug í gær. Já, karlinn fór í fyrsta skipti til Grikklands, reyndar til eyju þar hjá sem heitir Kos, aldrei séð né heyrt um þessa eyju áður og þess vegna gaman að koma á framandi slóðir. Viti menn, þetta var bara fín stemmning, frábært veður á eyjunni og eyjan sjálf falleg, þó ekki eins falleg og Vestmannaeyjar ;) en að miklu leyti mjög interessant! Ég flaug reyndar til baka, og fékk nú að prófa að lenda bumbunni í 30kts x-wind-i og gekk það bara fínt og allt gott um það að segja, þannig að sjálfstraustið minnkaði ekki við þetta flug!
Jæja, hvað um það. Ég ákvað að taka daginn tiltölulega snemma og ég og Benni nörtuðum í frekar dapurt bacon (einu sinni!) og fórum svo út í tölvubúð að skoða. Stuttu seinna þurfti Benni að yfirgefa svæðið því hann fór til Manchester eftir hádegið. Ég hins vegar fór í mall-ið hérna og var svona að skoða hitt og þetta. Gerist þá ekki það ótrúlega að það gerir þetta þvílíka þrumuveður að rafmagn fór af öllum húsum og búðum í downtown Crawley þannig að allir húktu innandyra og ætluðu að bíða af sér eldingarnar og ég uppgötvaði líka hvað þetta lið hérna (tjallarnir) er hrætt við hagl. Ég, alvöru dúddinn tók nú létt í þetta og fór bara að rappa, "Get the hell out of my way, don´t wanna stay, I´m Icelandic and I do this shit every single day from sept to may!". Með þessum fleygu orðum í bundnu rappi, horfði liðið á karlinn hlaupa eins og Carl Lewis meðfram öllum göngugötum (því karlinn er kominn í svo gott form!) inn í einu búðina á svæðinu sem virtist geta selt eitthvað því aðrar verslanir urðu inop þvi allir kassar voru dauðir vegna fyrrgreinds rafmagnsleysis. Hundblautur og ógeðslegur eyddi ég 7 pundum í þessa lika þvílíku regnhlíf! Valhoppandi út í blíðuna aftur ætlaði ég nú að opna regnhlífina og taka lagið, reyndar smá breyttu, "Singing in the rain, loving the hail" en viti menn, regnhlífin var svo lítil að ég held að hún nái ekki yfir allan skallann á mér, kannski er kálið á mér orðið svona stórt, veit ekki, aðrir verða um það að dæma en með þetta fiðrildi fyrir ofan hausinn á mér, léttur í lund sem fyrr, spígsporaði ég nú aftur á hótelið. Þegar þar var komið var allt rafmagnslaust og lyftur inop og alles, þannig að eftirmiðdagurinn hefur verið svolítið steiktur í dag. Hins vegar óska ég bróður mínúm innilega til hamingju með að kára prófið í morgun! Já, nú er eitt eftir og endilega fáðu þér nokkra kalda í dag! Átt þá skilið!
Að öðru, flug á morgun til Orlando kem aftur á sunnudagsmorgun, þannig að karlinn biður bara að heilsa í bili!
Thursday, August 25, 2005
Sunday, August 21, 2005
Jæja, góðan dag enn og aftur gott fólk!
Jæja, mættur aftur til Gatwíkur og hef það fínt, reyndar var Hjalti (tvibbi) að kveðja í dag þar sem við eigum ekki eftir að hittast fyrr en við komum heim aftur þ. 6. sept. Jájá, svona er lífið. Annars allt í flottu, foreldrarnir mættir til London og stefnt að hitta þau á þriðjudag, aldrei samt að vita hvað gerist á morgun.
Næsta flug hjá mér á föstudaginn, þannig að næstu dagar eru rólegir!
Kveðja til allra á heima sem að heiman!

Saturday, August 20, 2005
Góðan dag!
Jæja, nú mér til all merkilegrar uppgötvunar hef ég fundið það út að Kanar (USA people) eru alveg ótrúlegir! Já, t.d. í stað þess að sýna fótbolta í sjónvarpinu þar sem flest lið í Evrópu eru að spila, nei, þá sýna þeir frekar berjakökukappát!!!!!!!! Það ótrúlega í þessu er að það eru 5 þús. manns með spjöld með nöfnum keppenda að hrópa og kalla á þann sem það hefur líklega veðjað á. Íþróttir í Bandaríkjunum eru sem sagt að komast á það stig að það á ekki að hreyfa sig og taka á því, nei! Það á að éta þangað til maður ælir! Ég hef aldrei orðið vitni að annarri eins vitleysu, jú kannski í morgun í morgunmatnum, þá gat ég nú varla séð muninn á því sem var í sjónvarpinu og þeim sem voru að borða í matsalnum, svo mikill var hamagangurinn hjá sumum. Ég ætla nú ekki að segja að allir Kanar séu svona, ekki að alhæfa neitt, en fyrir suma (og reyndar all margra) er þetta nú alger staðreynd. En að upphefja vitleysuna með keppnum í sjónvarpi í stað þess að sýna enska boltann, fjandinn er þá orðinn laus, ég bara get ekki annað en lýst fullkominni óánægjum með þetta.
Eins og fólk hefur kannski getið sér til um þá er ég staddur í USA, nánar tiltekið í Orlandó Flórida. Já, hingað kominn enn einu sinni, nema það að nú er annað hótel brúkað er heitir Rozen Plaza, og er ég ekkert allt of sáttur við það.
Maður hlýtur nú að spyrja sig eftir margar heimsóknir hingað hvað er svona merkilegt við Ameríku. T.d. eru kleinuhringir í öllum morgunverðarhlaðborðum, maður fær kaffi með morgunmatnum en ekki á eftir (eins og maður er vanur), það er cool að vera þéttur á velli og tala mikið, það hjálpar verulega til að vera á stórum bíl því þá rúmast líklega 3 venjulegir kanar í honum, verð er aldrei það sem stendur á verðmiðanum því skatturinn er ekki innifalinn, 35 stiga hiti og fyrir þá sem koma frá Íslandi er það heldur betur mikið. Á þessu hóteli sem ég er á er ekki gym þannig að hér er bara frekar fúlt eins og sjá má á upptalningunni hér að ofan.
Jæja, læt þetta nægja af rugli í bili, fer sem betur fer héðan í kvöld til Gatwick, sem er fínt, því ég er þvílíkt ánægður með Arora hótelið þar, líklega allra besta hótel sem ég hef komið á í Bretlandi!!!
Sæl að sinni!