HAHAHHAAHAHAHA, Eg er enntha ad hlaeja ad "Restaurant at the end of the universe", thau oheppin sem ekki eru buin ad lesa hana, snilldar framhald af Hitchhikernum!
Eg bidst afsokunar a erlendu lyklabordi en ekki er um annad ad raeda herna i Gatwick.
Ja, karlinn kominn til Gatwick (shitty UK) og bidur eftir thvi ad fara i simmann. Thad gerist a morgun og einnig hinn (sunnudag) en eftir thad liggur leidin heim og er kominn fidringur i karlinn ad fara ad maeta a svaedid. Lambakjot a diskinn minn!!!
Nuna a eftir aetla eg ad hitta mesta mobba allra tima herna i Gatwick, en thad er italski rakarinn sem er herna rett hja hotelinu. Merkilegt ad menn eins og eg thurfi endalaust ad fara i klippingu, serstaklega thar sem toppstykkid likist Homer Simpson med hverjum deginum.
Friday, May 21, 2004
Wednesday, May 19, 2004
Góðan dag!
Nú þarf ég að finna réttan dómstól, ætli móðir náttúra geti ekki verið dómari í þessu máli. Karlinn er nefnilega að spá í að kæra moskítóflugur fyrir kynferðislega áreitni, ástæðan ? Jú, þær eru búnar að éta eyrnasnepilinn vinstra megin á karlinum. Allir sem kunna eitthvað fyrir sér (þið vitið :-)) vita að eyrnasnepillinn er eitt aðal málið og moskítóflugur eiga ekkert að vera að notfæra sér aðstæður á meðan maður er sofandi!!!!!!!!!!
Ekki nóg með það að karlinn hafi ekki getað spilað golf vegna þess að hann fékk svo rosalegt bit á vinstri handlegg (þannig að það verkjar) að þá er farið að ráðast á eyrnasneplana líka, karlinn hlýtur að vera svona þvílíkt góður á bragðið að dýralífið "can´t resist me" :-). Hingað og ekki lengra, ég fylli boeing vélina af DDT næst þegar ég fer í flug og dreifi yfir alla Malasíu, þannig að eftir það verða engir helvítis moskítóar til að angra mig.
Fyrir utan þessa áreitni er lífið eins gott og það getur verið en á morgun liggur leiðin til Gatwick. Það liggur við að karlinn sé með tár í augunum því svo vel líkar honum við Kuala Lumpur. Annars verður þrælfínt að koma til Evrópu aftur þar sem komnir eru rúmir 2 mánuðir síðan karlinn var þar síðast. Reyndar er Gatwick ekki mest heillandi staður jarðar en tilbreyting fyrir karlinn.
Heyrst hefur að Eyjamenn séu að fara að halda massa partý með öllu tilheyrandi eins og þeim einum er lagið, hver er ástæðan fyrir því að karlinn hefur ekki fengið boð í það dæmi???? Alla veganna mun karlinn fara þangað hvort sem partý er eður ei, hlakka til að hitta þar allt síhressa fólkið sem ávalt er í stuði.
Chao for now

Monday, May 17, 2004
Góðan dag!
Karlinn er frekar þreyttur eftir erfiðan og langan dag til Taívans í fyrradag. Já, ferð fram og til baka til TaiPei, sem var reyndar mjög gaman því þangað hef ég ekki komið áður. Gaman að fljúga yfir Phillipines og meðfram strönd Kína enda tók karlinn slatta af háloftamyndum af svæðinu, því þarna er gríðarlega fallegt landsvæði.
Það var reyndar bara stutt stopp þarna því það var ekki lengra en 2 tímar, svo flogin sama leið til baka hingað til KL.
Annars er það nú að frétta að Hjalti er farinn heim og mun vera þar í einhvern tíma.
Annars eru undanfarnir dagar búnir að vera svo rólegir í fluginu hérna að maður hefur notað hverja einustu mínútu til þess að spila golf og skoða sig betur um hérna. Alveg magnað hvað mikið er hægt að gera hérna í Malasíu, þetta er svo mikill snilldarstaður og fjölbreytnin hér svo mikil að það er ekki hægt að láta sér leiðast.
Næst á dagskrá er að spila golf í dag og á morgun og á hinn :-), en þann 20. maí flýgur maður til Gatwick þar sem simminn verður tekinn í bakaríið í 2 daga. Eftir simmann skal brósi fara að vara sig, því ég mun ekki linna látum fyrr en að búið er að spila 54 holur í Grafarholtinu, og allt yfir pari verður litið á sem þvílíkt flopp, enda hefur heyrst að hann sé nú á Bretlandseyjum að æfa sig (kannski orðinn hræddur) fyrir átökin á vellinum.
Þvílíkt sem maður er farinn að hlakka til að koma heim og hitta allt fólkið, en þangað til, meira golf, meira golf :-)
Chao for now!

Tuesday, May 11, 2004
Djöfulsins helvítis vesen getur stundum orðið.
Ég er búinn að fatta það að ég er heppinn í spilum en óheppinn í ástum. Að þessu hef ég komist að því ég hef tekið eftir því að skordýr elska mig!!!
Karlinn var bara "fat dumb and happy" að spila golf í dag, svo á 8. holu, þá uppgötva ég mér til mikillar skelfingar að vinstri löppin á mér er pökkuð af "fire ants"!
Þeir eru ekkert lamb að leika sér við svona á venjulegum degi, því þetta eru stórhættulegir andskotar! Þeir nefnilega er háþróaðir melir sem stinga mann allir á sama tíma.
Það er nefnilega þannig að þegar þeir hafa komið sér vel fyrir, þá sendir einn yfirmaur eitthvert signal þannig að melirnir stinga þá mann allir í einu. Þegar það gerist
er tilfinningin sú að það sé kveikt í löppinni á manni og getur haft alvarlegar afleiðingar, þannig hafa þeir þetta undurfagra nafn "eldmaurarnir".
Karlinn, um leið og hann uppgötvaði þetta, hljóp upp í golfbíl, fór úr skónum, brunaði upp að klúbbhúsi þar sem mér var útvegað einhverju spes sprey-i til að dúndra á löppina
og svo var karlinum keyrt upp á hótel, sagt að rúlla sér í sturtu og sjá hvað verður úr.
Úr hefur orðið að ég hef, sem betur fer, ekki fundið fyrir neinu og get kallað mig heppinn! Það geta nefnilega myndast massa sár ef þetta gengur langt, en
svo er ekki í mínu tilviki (að ég held).
Annars bara fínn dagur hjá karlinum í gær (ekki í dag). Fór á ódýran kínverskan veitingastað í Bangsar og át næstum yfir mig því maturinn þar var hrein snilld!
Annars er það að frétta af flugi að karlinn á að fara til Sydney og Melbourne á föstudag, kem líklega til baka til KL á sunnudag. Það er fínt, því þá get ég skoðað Harley-ið betur
sem ég hef slefað yfir í síðustu ferðum mínum til Melbourne.
Annars verður kvöldið í kvöld rólegt, en ég þarf að kveðja Hjalta félaga minn því hann er að fara til Aþenu og verður þar næstu 2 vikur.
Þannig að við ætlum að fara út að borða svona í tilefni þess að karl no. 2 er að fara.
Svo kemur karl no. 2 til Íslands viku eftir karli no.1 og þá ætlum við karlarnarnir að skella okkur til hinna
frábæru, æðislegu, fallegu, yfirþyrmandi skemmtilegu, glæsilegu og bestu eyja í heimi, Vestmannaeyja!!!
Læt þetta duga í bili, hafið það öll nú sem allra best svona þegar sumarið nálgast.

Monday, May 10, 2004
Góðan daginn!
Í dag kemur aðeins eitt orð í hugann: Timbur!
Fór út í gær með helling af liði og úr varð gaman gaman og meira gaman. Alltaf gaman að skemmta sér með skemmtilegu fólki enda ekki um annað að ræða þegar Air Atlanta kemur til sögunnar. Já, við skelltum okkur í Bangsar hverfið þar sem allir veitingastaðir og barir eru hérna og úr varð mikið húllumhæ og gaman, en ég var nú samt ekkert að fíla matinn sem ég fékk, eitthvað spænskt gutl, ef maður vill spænskt þá verður það að vera steik! Ekki eitthvað Papas eða Tartas eða hvað þetta nú hét.
Rúlluðum okkur eftir matinn á írskan pub, Finnegans, og það var alger snilld nema það að Guinness-inn var í flösku (frekar dapurt) en það virkaði þó alveg.
Haldið að karlinn hafi ekki bara skellt sér í smá sólbað í gær en það var stutt og laggott. 8 km fuku enn og aftur á hlaupabrettinu auk þess sem golfið fær alltaf sinn sess á hverjum degi.
Ég á ekki að fljúga á næstunni og mér bara sagt að hafa það "nice" á meðan :-)
Allt klappað og klárt fyrir heimferð, nema að stutta spilið verður að lagast aðeins áður en maður fer, þannig að brósi þurfi nú að fara að vara sig. Hann hefur unnið mig full oft upp á síðkastið, enda refur mikill og seiglubolti, en ég er að koma á klakann til að brjóta ísinn!!!
Plan næstu daga: GOLF GOLF GOLF GOLF GOLF GOLF GOLF

Friday, May 07, 2004
Ég verð nú að segja að ég er orðinn ansi heitur fyrir paragliders. Peyji og einn annar peyji sem eru bara toppmenn eru farnir að brúka þetta og þrátt fyrir eitt crash þá er það ekki spurningin að þetta er það sem koma skal!!! Ónýtt að vera alltaf með 4 mótora, kominn tími á einn svona þegar maður er að leika sér.
Hins vegar svolítið súr yfir því að þegar maður ætlar að tjakka á heimasíðunni fyrir paraflug þá er password og eitthvað kjaftæði sem kyndir í Spánverjanum á manni því ekki hef ég einustu hugmynd um hvaða heimsku orð það eiga að vera. KEMST EKKI INN Á SÍÐUNA! Á meðan svo er, fær hún ekki að njóta þess gríðarlega heiðurs að vera linkur á minni síðu! Hananú.

Góðan daginn (kvöldið hjá mér)!
Enn og aftur er karlinn stabýll, neitar enn og aftur að fara út til að fylla tankinn af bjór í staðinn mun karlinn bara drekka kaffi (besta drykk heims) og lesa bók og leika sér að blogga hér í nokkrar mínútur.
Elli vinur minn stóð sig ekki vel í gær! Hann nefnilega át ekki allar moskítóflugurnar eins og hann er vanur að gera með stakri prýði þangað til nú, því þegar karlinn vaknaði í morgun var hann útbitinn af moskító og kannski eitt köngulóarbit líka með, frekar dapurt. Fyrir þá sem ekki vita er Elli eðlan sem er inni í hótelherberginu hjá mér hefur Elli staðið sig með prýði, og geri ég ráð fyrir að hann hafi verið orðinn pakksaddur um miðja nótt og ekki haft undan álaginu, önnur ástæða gæti verið að einhver Ella hafi komið í heimsókn til hans, þannig að eðlurnar hafi verið að eðla sig(!), en ég geri nú ráð fyrir að það hafi ekki verið svo, alla veganna vaknaði karlinn ekki við neinn hávaða!!!
Jæja, ég stakk alla veganna á köngulóarbitið og hitt er í rénun.
Golf og aftur golf var málið í dag, karlinn sló bara eins og herforingi enda voru 350 boltar farnir strikbeint eftir 4 tíma. Reyndar er ég með sár í höndunum eftir þetta, tek morgundeginum rólega. Þó er ég að fara í yfirferð á stutta spilinu í fyrramálið en ég læt það duga fyrir golfið á morgun nema maður detti enn einu sinni í pakkann. Karlinn hljóp svo 5km (var þreyttur og þ.a.l. ekki 8 km eins og venjulega) og skellti sér í "Get ready for this"-sturtu. Það er einstaklega góð formúla til að koma skapinu í gott lag og rífa upp stemmninguna svona fyrir sjálfan sig.
Það er nú kominn tími til að segja fólki hvernig það á að koma sér í gott skap á föstudegi eftir erfiðan dag! "Get ready for this"-sturtan er nefnilega alger snilld, hún felst í því að setja lagið "Get ready for this" með 2 Unlimited hljómsveitinni á fóninn og á replay. Um leið og lagið byrjar hoppar maður inn í klefann og skrúfar frá. Athuga skal að þetta er ekki hægt að gera í litlum sturtuklefa, verður að vera pláss fyrir 2 dansspor til hægri og vinstri. Svo þegar karlinn hrópar í laginu " get ready for this" og takturinn í laginu byrjar, þá snýr maður sér í hring (passa, það getur verið hált, passa ökklann!), ypptir öxlum og tekur 2 spor til vinstri, á meðan 2 spor til vinstri tekin þá fer sápan undir handakrikann vinstra megin. Svo hljómar aftur röddin og segir "Get ready for this" og ef maður þekkir lagið, um að gera að öskra með.
Þá er annar hringur tekin með sporum út að miðju, svo yfir til hægri með ypptum öxlum. Svo bæta menn við "move"-um eftir því sem við á. Þetta er gargandi snilld og mæli með þessu ef það er einhver blús í mönnum.
Hins vegar gerði ég massa mistök með "after shower" pakkann. Ég klikkaði nefnilega illa á því, ég er vanur að hafa "Living on a prayer" með Bon Jovi á fóninum meðan maður rakar sig, en breytti út af vananum og setti lagið "Nod your head" með Will Smith. Það gerði það að verkum að á meðan ég var að raka mig var ég alltaf að hreyfa höfuðið þannig að raksturinn fór út um þúfur, alltaf að skera mig eitthvað þannig að hálsinn á karlinum er eins og garðyrkju-grindverk (þessi grænu víruðu) á hálsinum! Best að breyta ekkert út af vananum aftur.
Jæja, karlinn er að taka því rólega í kvöld og andlegur undirbúningur hafinn fyrir simmann sem verður þ. 21. maí.
Karlinn fór ekki í Petronas towers í dag eins og planað var, en það er geymt fyrir morgundaginn, mér var nefnilega tjáð allt í einu í morgun að dagurinn í dag væri ekki góður fyrir heimsókn í Petronas. Já, bæjarferð eftir hádegi á morgun og karlinn spenntur. Kannski að maður verzli einhvern fjandann sem mann vantar ekkert í leiðinni. Kominn tími á að versla sér "fake" gallabuxur, hef ekki átt almennilegar gallabuxur lengi (spurning um hvort "fake"-buxur séu almennilegar!), enda kannski ekkert skrýtið vegna þéttleika. Já, karlinn var orðinn alger sekkur, en tímarnir breytast og mennirnir með.
Komið að lokum í bili, en munið "Get ready for this"-sturtuna, ef blús er í mönnum, þá virkar hún auk þess sem krydd í tilveruna á föstudögum (jafnvel öllum dögum) er bara snilld!
Lifið heil og heyrumst hress!!!

Thursday, May 06, 2004
Eg verd ad segja eitthvad thvi eg hef ekkert betra ad gera!
Er ekki i minni tolvu nuna, thannig ad folk verdur ad saetta sig vid erlenda stafi!
A laugardag er stefnan sett a Petronas towers, en i dag (ekki fyrir 2 1/2 ari sidan), eru thetta haestu twin towers heims. Their eru skemmtilega byggdir thvi thad var gert rad fyrir tunglferdum thegar their voru reistir, thannig ad ef menn standa a tunglinu, lita Petronas towers ut fyrir ad vera demantar ef horft er fra tungli til Kuala Lumpur (thetta var viskupunktur daudans!).
Talandi um tungl, i fyrstu tungferdinni hofdu geimfararnir einungis eitt INS, Carousel INS, their komust til tunglsins og thar af leidandi var thetta sett i B-747 (MUHAHAH) og their sem segja ad Carousel se lelegt, their hafa aldrei farid til tunglsins (thetta er sagt eftir ad madur hefur verid ad fa comment ut a thennan bunad). Kannski var FMS i Challenger, kannski thess vegna sprakk hun (nei, eg segi svona :-).
Their sem ekkert vita um hvad eg er ad tala, hafid ekki ahyggjur thvi thetta er bara flugmannabull.
Jaeja, aftur i alvoruna. Karlinn a leidinni i Petronas en leitt er ad monnum er ekki leyft ad fara a toppinn thar (buhu). Cameroon highlands verda ad bida adeins af ovidradanlegum orsokum. En eg mun fara thangad adur en eg legg af stad til heimsveldisins Islands!
Eg er enn hvitasti madurinn i landinu, thvi eins og folk veit, tha er solbad bara fyrir ho... og au....
Hvad sem thvi lidur, tha er kominn timi a kaffibolla og Hitchhiker-inn, enda stefnt ad thvi ad klara hann i kvold!

Jæja gott fólk, þá er karlinn búinn að stilla sveifluna enn og aftur og hún komin á myndband. Það fer ekki í dreifingu fyrr en ég er búinn að vinna Masters mótið í USA á næsta ári!!!
Hvað um það, fínn dagur í dag, afslappaður (fyrir utan 8 km sem ég hljóp, hlaup dauðans) og þægilegur.
Herra Lakchai, kennarinn minn, var ánægður með sveifluna og er enn að líkja mér við Ernie Els, enda ekkert skrýtið því við erum jafn öflugir (not!).
Breyting á plani, ég á ekki að fljúga fyrr en á mánudag, enn og aftur til Melbourne, en með viðkomu í Jakarta á leiðinni til baka daginn eftir.
Karlinn er farinn að búa sig undir simmann sem verður þ. 21. maí og gleymum því ekki að karlinn er líka farinn að undirbúa sig undir heimferð, keypti galla sem þolir -200 gráðu frost og er farinn að safna skeggi fyrir kuldann :-)
Hins vegar verður gaman að fá að kynnast því aftur að það verður ekki komið myrkur fyrr en seint að kveldi dags.
Kveð í bili.

Tuesday, May 04, 2004
Jæja gott fólk, nú hef ég eitthvað fyrir golfdómarann, já, þetta var alveg stórkostlegt. Karlinn á 13. holu á Bungalayja vellinum hérna í KL. Drive á miðja braut, 300 yds, og karlinn farinn að sjá fram á enn einn fuglinn, nei, það kom sko enginn fugl, heldur kom api niður úr tré og tók boltann minn!!!! Ég náði mynd af helvítis melnum er hann var búinn að taka kúluna og fara með upp í tré, svo kom hann niður aftur og gretti sig framan í mig, helvítis melurinn! Það var eins og hann hafi komið aftur bara til þess að kynda í Spánverjanum á karlinum, enda varð ég sjóðheitur (svona þannig), enda að nota glænýjan PRO V1 bolta, þannig að melurinn skuldar mér 400 kall!
Frá golfinu er annars frá því að segja að 74 högg voru slegin á vellinum, en ég geri ráð fyrir því að þessi monkey business hafi nú ekki verið mér í óhag, þ.e. engin víti.
Ég skelli myndinni inn af melnum fljótlega og læt link fylgja með. Gerist vonandi seinni partinn í dag.
Annars var ég að fatta það að maður kemur líklega ekki heim fyrr en 25. maí.
Annars bara gaman gaman og enn og aftur gaman, en maður er farinn að hlakka til að kíkja á alla þegar maður kemur heim.
Svona ef fólk vill vita, þá er hér mistur og 35 stiga hiti (bara svona fyrir þá sem vilja :-)).
Annars er maður að fara í stillingu hjá herra Lakchai á fimmtudaginn, þar verður stutta spilið tekið í gegn og sveiflan tekin upp á myndband, ég held að það sé til að aðrir geti hermt eftir mér (hehehe, nóg af gasi í karlinum þessa dagana :-)).
Jæja, bless í bili, og látið mig vita hvernig maður á að taka á svona monkey business, þ.e. hvað golfdómarinn segir við svona löguðu.
Kveðja til allra!!!

Monday, May 03, 2004
Halló halló, karlinn með nýjustu fréttir.
Karlinn á að fara í flug til Sydney, en það er ekki fyrr en á föstudag. Þar verður sko tekið vel á á þeim hlutum sem Sydney hefur upp á að bjóða, enda ekki slæmt óperuhúsið sem þar er auk glæsilegs miðbæjar þar á bæ. Maður er nú að fara þangað í 4. skipti en hvað með það, karlinn sáttur. Bara að passa sig að taka ekki vinstri beygju er labbað er út af hótelinu, því þar rétt hjá er San Francisco fílingur, þ.e. best að sitja sem fastast, hehehe.
Já, þetta er ekki búið, karlinn fer til Gatwick þann 20. maí, ekki slæmt að fara með 1. class héðan frá KL til Gatwick, snilldin ein.
Frá Gatwick heldur maður heim til 3. besta bjórs í heimi (Thule ef menn skyldu nú ekki fatta það) og verður bara gaman að kíkja aðeins norður og spóka sig um í vík Reykja, það gerist þ. 24. maí ef allt gengur að óskum.
Jæja, kveðjur í bili, og þakkir til Ingós sem fann Thule árið 874.

Karlinn kominn til KL. Karlinum finnst það bara snilld að vera hérna aftur enda farinn að sakna KL ansi mikið á meðan maður var á 30 gráðum suður.
Kíkti aðeins út á lífið í gær, rólegt, enda karlinn alveg rólegur á ðí.
Karlinn er nú að spá í að fara í ferð til Cameroon Highlands, en það tekur 2 tíma að fara þangað á bíl héðan. En það kemur ekki í ljós hvort ég kemst fljótlega því ég er ekki búinn að fá að vita enn um mitt næsta flug. Vonum að það sé eftir 3-4 daga, þá fer karlinn af stað til fjalla. Malasíu-Eyvind mætti kalla karlinn eftir nokkra daga :-)
Læt vita meir um framhaldið fljótlega.
Svo þarf karlinn að fara að undirbúa sig undir næsta kassa sem verður í miðjum maí. Staðfest að það verður í Gatwick og vonast maður til að fá nokkra daga heima eftir það. Sjáum til með það.
Bæjó í bili.

Saturday, May 01, 2004
Jæja gott fólk, haldið þið að karlinn hafi ekki bara ákveðið að setja bloggsíðu á fótinn þannig að karlinn gæti sagt frá einhverju bulli. Karlinn hefur nefnilega ekkert annað betra að gera því karlinn er búinn að vera í Melbourne (Ástralíu, ef einhver skyldi nú ekki vita það) í 5 daga og erfitt að finna handa karlinum eitthvað að gera daginn áður en karlinn á að fara í flug. Já, flug á morgun til Kuala Lumpur, sem er auðvitað ein af betri borgum alheimsins. Já, það verður stuð stuð stuð er ég reyni við .... og fæ!
Það er ekki nein spurning að karlinum finnst KL nánast ekki síðri en Buenos Aires, en hvað um það, þessar tvær borgir eru báðar alger snilld.
Það er mér sönn ánægja að kynna til leiks á svæðinu flugvélstjórann Adda, sem ég er farinn að kalla "Adda discount", því hann gerir lítið annað en að reyna að fá "discount" hvert sem hann fer og er það bara snilld því ekki veitir af að passa upp á budduna hérna í Melbourne því hér er fjandi dýrt. Þó ekki svo dýrt að karlinn hafi ekki keypt sér Oakley sólgleraugu með styrk, enda þarf styrk þegar karlinn kemur heim til Thule í keppnisgolfið á næstu vikum. Addi flaug með mér hingað ásamt Dave kafteini sem einnig er toppmaður og höfum við haft helvíti gaman að lífinu undanfarna daga.
Golf, karlinn gæti skrifað endalaust um golf, en læt þó duga að karlinn keypti sér nýjan Callaway Fusion 8,5 gráðu stykki, sem karlinn er að þruma 300 yds með á hverri einustu holu, og svo beint að Tigerinn gæti ekki gert svona beint með reglustiku (greyið). En hvað er karlinn að tala um Tigerinn, Els-arinn er bestur þessa dagana þannig að maður verður að setja markið á ná honum á næstu mánuðum (not!). Það hefst ekki bara með drivernum, heldur þarf stutta game-ið að vera í lagi líka, þess vegna keypti karlinn sér bókina frá Dave Pelz um stutta spilið, og karlinn búinn að vera að stúdera hana upp á síðkastið.
Talandi um bækur, þá keypti karlinn sér líka eina helvíti góða "cult" skáldsögu, sem ber það fræga heiti, "The hitchhiker´s guide to the galaxy". Sú bók er bara tær snilld og karlinn nánast hálfnaður með fyrsta hlutann af fjórum, klára líklega alla hlutana innan 2-ja vikna.
En hvað um það, líf og fjör hjá karlinum þessa dagana, og sáttur við lífið.
Það veitir ekki af að karlinn sendi kveðjur til allra svona í upphafi þessa bloggs, ekki síst til strákanna í Eyjum sem auvitað eru orðnir langflottastir á nýmáluðum Piper Chieftain, en ef fólk hefur ekki hugmynd um það sem ég er að tala um, þá eru þetta töffararnir í Eyjum sem eru að fljúga í sjúkrafluginu þar!
Munið svo öll, að vera alveg róleg á ðí!!!