Góðan daginn!
Í dag kemur aðeins eitt orð í hugann: Timbur!
Fór út í gær með helling af liði og úr varð gaman gaman og meira gaman. Alltaf gaman að skemmta sér með skemmtilegu fólki enda ekki um annað að ræða þegar Air Atlanta kemur til sögunnar. Já, við skelltum okkur í Bangsar hverfið þar sem allir veitingastaðir og barir eru hérna og úr varð mikið húllumhæ og gaman, en ég var nú samt ekkert að fíla matinn sem ég fékk, eitthvað spænskt gutl, ef maður vill spænskt þá verður það að vera steik! Ekki eitthvað Papas eða Tartas eða hvað þetta nú hét.
Rúlluðum okkur eftir matinn á írskan pub, Finnegans, og það var alger snilld nema það að Guinness-inn var í flösku (frekar dapurt) en það virkaði þó alveg.
Haldið að karlinn hafi ekki bara skellt sér í smá sólbað í gær en það var stutt og laggott. 8 km fuku enn og aftur á hlaupabrettinu auk þess sem golfið fær alltaf sinn sess á hverjum degi.
Ég á ekki að fljúga á næstunni og mér bara sagt að hafa það "nice" á meðan :-)
Allt klappað og klárt fyrir heimferð, nema að stutta spilið verður að lagast aðeins áður en maður fer, þannig að brósi þurfi nú að fara að vara sig. Hann hefur unnið mig full oft upp á síðkastið, enda refur mikill og seiglubolti, en ég er að koma á klakann til að brjóta ísinn!!!
Plan næstu daga: GOLF GOLF GOLF GOLF GOLF GOLF GOLF
No comments:
Post a Comment