Góóóóóóóóóóóóðan daaaaaaaaginn!
Enn og aftur er ég kominn til Shanghai, það þýðir að af síðustu 5 dögum hefur verið sólskin hér í 3 daga, nei, er ekki kominn til tími á að hætta þessu sólskinsbulli ;-)
Fer aftur til KL á morgun, vonandi verða næstu dagar í friði og ró þar.
Vona að allir hafi það gott, og að Hjalti og Ómar séu búnir að ná sér af áróðri síðasta bloggs.
Ég þakka kærlega fyrir allar afmæliskveðjurnar, nú er karlinn farinn að nálgast Hrafnistualdurinn, þannig að maður þarf að fara að spara sig :-)
Nú eru örfáir dagar í það að maður fari til Englands (4. maí) og spili golf þar í 10 daga, hlakka mikið til og svo verður heimkoma þ. 14. maí. Sjáumst öll hress þar, hafið það gott.
Læt þetta gott í bili.
Tuesday, April 26, 2005
Thursday, April 21, 2005
Góðan og blessaðan daginn!
Jæja, mikið djöss hefur maður verið lélegur í bloggi upp á síðkastið, það er bara skömm að segja frá því, enda gekk það svo langt að hele famelien fór að kvarta undan pennaleysi útlandamannsins. Það er kannski ekkert skrýtið því að í pennann hefur vantað blek upp á síðkastið því kálið hefur verið svo gjörsamlega tómt af hugmyndum upp á síðkastið að það er hálf vandræðalegt. Best er að kenna Hjalta bumbu um þetta allt saman, því ef hann hefði ekki komið hingað úr fríi, þá hefði ekki byrjað að rigna hérna svo all djöfullega! Já, um leið og hann kom, kemur þessi þrumurigning alla eftirmiðdaga þannig að netsamband hér hjá okkur sló út og er enn ekki komið í samt lag, takk Hjalti!
Jæja, ég, Amon Ra (sólguðinn fyrir þá sem vita ekki :-)) , fleygði Hjalta til Ástralíu, og viti menn, var ekki sól og blíða alveg eins og þegar ég er heima á fróni, magnað max. Ég sendi company-inu auðvitað upplýsingar um þetta og hef ég heyrt þann orðróm að Hjalti verði bara í landi Ása og Tralla þangað til guð veit hvenær!
Af sólguðinum er hins vegar það að frétta að hann er bara búinn að vera fjögurra daga fríi og hefur spilað golf alla dagana nema einn. Já, helvíti fínt. Hins vegar á laugardaginn síðasta heyrði ég að blíðu vantaði í Hong Kong og skellti mér einn rúnt þangað í fyrsta skipti, enda ekki verið blíða þar síðan akkúrat á laugardaginn. Höfðu þeir beðið eftir mér í öll þessi 27 ár og 366 daga að ég kæmi með blíðuna til þeirra. Þar var tekið á móti honum með pompi og prakt, en þar sem sólguðinn er búinn að gera samning við KL, þá þurfti ég að fara þangað aftur, því þeir verða alltaf að vera í sumri og sól, engu að síður gaman að koma til Hong Kong í fyrsta skipti og jafnvel að maður kíki þangað aftur einhvern daginn. Ef fólk gerði sér ekki grein fyrir því hér að ofan minni ég á 28 ára afmæli sólguðsins á morgun, já, 28 ár! Reyndar halda flestir að þetta sé 48 ára afmæli, en hvað um það, 28 ár er málið og minni ég enn á hvað 1977 módelin eru öflug í þessum heimi, já, 1977 er málið, ásamt 22. apríl :-)
Ég læt þetta duga í bili, mikið rosalega væri gaman að fá eitt email frá Icelandair-guðinum Ómari, en ef fólk vissi ekki, þá kom Ómar út úr höfðinu á Hesti, spratt upp með þvílíkum látum og sagði, Icelandair lifi! Úr varð til Icelandair, er áður hafði heiti Hesthúsið!
Ofangreind goðafræði er uppspuni og eru allir karakterar hér að ofan uppspuni, engin meiðsl urðu á mönnum við gerð þessa bloggs, né öðrum jarðneskum skepnum!

Sunday, April 10, 2005
Góóóóóóóóóóóóóóóóóóðan daginnnnnnnnnnnn!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Jæja, eftir langt hlé kemur loksins eitthvað frá manni á þessu bloggi.
Margt hefur gerst síðan bloggað var síðast og er helst frá því að segja að Bjarni Rafn hefur skipt um vinnu og er byrjaður hjá flugfélaginu Ernir sem kafteinn á Conquest og Caravan. Glæsilegt það og hamingjuóskir frá mér.
Annars er karlinn búinn að hafa það gott í fríinu enda er það búið og vinnan tekin við aftur. Já, byrjaði á tveimur ferðum frá Íslandi, frá Keflavík til Faro og Allicante og strax daginn eftir heimkomu frá Allicante var haldið af stað í víking til Kuala Lumpur. Það þarf nú ekki að segja fólki hversu mikil snilld það er að vera í KL, flott veður þangað til kl. 1600 alla daga, því nú er rigningatímabilið hafið hérna og það klikkar ekki að að þrumuveður með öllu tilheyrandi skellur á kl. 1600 og stendur yfir til ca. 1900. Bara gaman að því, enda ágætt að fá smá vatnsgusu í hitanum og rakanum sem hér er. Karlinn skellti sér svo til Shanghai daginn eftir að ég mætti á svæðið og var flogið þaðan til baka til KL degi siðar. Svo kom bara dags frí þar sem maður skellti sér auðvitað í golf og hafði það fínt, enda spilamennskan öll að koma til, enda alveg ljóst að nokkrir kylfingar á Masters mótinu hafa fengið nokkur högg að láni frá mér :-) Ég ætla nú ekki að fara nánar út í spilamennskuna hér en ég kom sjálfum mér á óvart, vægt til orða tekið :-)
Svo í fyrradag var haldið af stað héðan frá KL til Penang og Dubai. 2-ja tíma stopp í Penang og svo strax yfir til Dubai, gist þar og flogið aftur í gær til KL. Mjög fínt og allt í fínasta lagi.
Nú taka við 2 dagar í frí, sem verða nýttir til að horfa á Masters í beinni og auðvitað að spila og æfa golf sjálfur, af hverju halda menn að maður hafi vilja koma hingað aftur!!!!!!!
Bið kærlega að heilsa öllum á fróni.