Góóóóóóóóóóóóóóóóóóðan daginnnnnnnnnnnn!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Jæja, eftir langt hlé kemur loksins eitthvað frá manni á þessu bloggi.
Margt hefur gerst síðan bloggað var síðast og er helst frá því að segja að Bjarni Rafn hefur skipt um vinnu og er byrjaður hjá flugfélaginu Ernir sem kafteinn á Conquest og Caravan. Glæsilegt það og hamingjuóskir frá mér.
Annars er karlinn búinn að hafa það gott í fríinu enda er það búið og vinnan tekin við aftur. Já, byrjaði á tveimur ferðum frá Íslandi, frá Keflavík til Faro og Allicante og strax daginn eftir heimkomu frá Allicante var haldið af stað í víking til Kuala Lumpur. Það þarf nú ekki að segja fólki hversu mikil snilld það er að vera í KL, flott veður þangað til kl. 1600 alla daga, því nú er rigningatímabilið hafið hérna og það klikkar ekki að að þrumuveður með öllu tilheyrandi skellur á kl. 1600 og stendur yfir til ca. 1900. Bara gaman að því, enda ágætt að fá smá vatnsgusu í hitanum og rakanum sem hér er. Karlinn skellti sér svo til Shanghai daginn eftir að ég mætti á svæðið og var flogið þaðan til baka til KL degi siðar. Svo kom bara dags frí þar sem maður skellti sér auðvitað í golf og hafði það fínt, enda spilamennskan öll að koma til, enda alveg ljóst að nokkrir kylfingar á Masters mótinu hafa fengið nokkur högg að láni frá mér :-) Ég ætla nú ekki að fara nánar út í spilamennskuna hér en ég kom sjálfum mér á óvart, vægt til orða tekið :-)
Svo í fyrradag var haldið af stað héðan frá KL til Penang og Dubai. 2-ja tíma stopp í Penang og svo strax yfir til Dubai, gist þar og flogið aftur í gær til KL. Mjög fínt og allt í fínasta lagi.
Nú taka við 2 dagar í frí, sem verða nýttir til að horfa á Masters í beinni og auðvitað að spila og æfa golf sjálfur, af hverju halda menn að maður hafi vilja koma hingað aftur!!!!!!!
Bið kærlega að heilsa öllum á fróni.
No comments:
Post a Comment