Saturday, January 22, 2005

Jæja, góðan og blessaðan daginn, eða á Indónesísku "masama paki"

Enn er maður í fríi og hefur það gott, fór út að borða í gær og fékk mér dýrindis humarpasta sem var svo gott að ég var að spá í að taka diskinn með mér á hótelið til að sleikja hann í morgunmat, nei segi svona :-)
Allt gott að frétta af okkur félögunum, hressir og kátir eins og alltaf. Nú er málið bara squash og golf og ekkert annað betra að gera, keypti mér nýjan squash-spaða í vikunni og er hann svo öflugur að Jonathan Powers (squash-spilari) er orðinn skíthræddur við mig :-)
Ég er orðinn svo myndaglaður að það hálfa væri nóg, læt þetta reyndar vera síðustu myndirnar í bili, er orðið ágætt, vona að fólk hafi gaman af. Ég lýsi hins vegar eftir því að félagarnir á einni myndinni fari að nota email og segi manni nýjustu sögurnar af rampinum og hvernig status-inn er á fróni.
Kveð í bili.

Ég lýsi eftir því að fá að heyra í þessum snillingum sem hér eru á myndinni!!! Allt of langt síðan maður heyrði í ykkur félagar, þarf að heyra nýjustu fréttir :-)  Posted by Hello

Eins og segir í laginu með Eggerti Þorleifss. : Þegar ég orðinn er, alveg óóógeeeeðslega ríííkur, alveg ógeðslega ríkur!!!  Posted by Hello

Karlinn í góðum gír, sáttur við lífið! Posted by Hello

Nú erum við að tala saman!!! Hehe, fyrsta flugið sem ég og Hjalti vorum saman í síðan í lendingunum, alger snilld, enda smurði Hjalti bumbuna inn svo að kafteinninn átti ekki til aukatekið orð! Posted by Hello

Thursday, January 20, 2005


Vegna þess að ég hef ekki séð bróður minn í mánuð, mátti ég til með að rúlla þessari mynd inn af okkur, tekin í London í nóvember, bara svona til að segja hæ brósi :-) Posted by Hello

Wednesday, January 19, 2005

A very good morning to everybody (good afternoon to those concerned)!

Well, today I´m switching the language to English (maybe Indonesian after a while :-)) because people all over the world want to see my pictures (not!!!!!).
Anyway, I wan´t to thank everyone for a great time during the first phase of the Garuda Hajj. Of course I have to specially mention few names :-) Lars Aas, Hjalti Grétarsson, Jaques LaLiberte, Siggi Gunn, Robbi Kristmundss. and both of the Joeys, thanks for a very good time, lets make the 2nd phase even better. All the Garuda crews, thanks very much, see you again in 10 days, everybody, enjoy your break!!!

Cheers!


F/E and the Captain, Mr. Lars Aas, and the Freedom man Mr. LaLiberte! Thanks guys for a very nice flight! Posted by Hello

Me and the Freedom man, Jaques LaLiberte! Posted by Hello

Who´s this??? Posted by Hello

Who´s the man!!! Posted by Hello

Most of the times, airplane food is bad, finally this looked good, but I discovered after 2 min, that looks isn´t always the case, unfortunately! Posted by Hello

Tuesday, January 18, 2005


Það er svo mikil snill að fljúga Hajj-ið að það er ekkert venjulegt, almennilegar flugfreyjur sem eru hressar og skemmtilegar, eitthvað annað gömlu kempurnar hjá Icelandair :-) Posted by Hello
Góðan og blessaðan!

Jæja, þá er komið að "Hajj-breakinu" svokallaða. Já, 10 daga frí í Indó til að gera allt sem manni sýnist, ekki amalegt það! Jájá, fórum á Traders í gær, fékk mér snilldar piparsteik með öllu tilheyrandi og auðvitað góð saft drukkin með þessu öllu saman.
Það er aðeins farið að hitna í kolunum hérna, hitinn farinn að hækka upp í 35° á dag í stað 30 áður, og þýðir það að maður þarf að eiga 4 hreina boli á hverjum degi í stað þriggja áður, rakinn eykst með hverjum deginum og allt þetta gerir það að verkum að letin færist einnig í aukana, en það verður tekið á því í dag og alla aðra daga.
Eg get ekki leynt því að ég var að lesa frétt á mbl.is um íslenskt kvenfólk, ræður nú hver sem les hvað honum finnst um þetta, en greinin finnst mér svo fyndin að ég verð að setja hana hér inn.

Hlutfallslega fleiri íslenskar konur eiga titrara en konur annarra þjóða - eða 52% - samkvæmt niðurstöðum alþjóðlegrar kynlífsrannsóknar sem 350.000 manns í 41 landi tók þátt í.
Norska blaðið Dagsavisen segir um rannsóknina, sem gerð var fyrir tilstilli smokkaframleiðandans Durex, að „víbrator-flokkurinn“ sé sá eini sem norskar konur standi sig eitthvað í; einungis frænkur þeirra á Íslandi eigi fleiri „leikföng“ af þessu tagi í náttborðum sínum.
Helmingur norskra kvenna á titrara - 50% - en könnunin leiðir þó í ljós að Norðmenn eru mjög óvirkir í rúminu og konur setji unaðsblossa á svið í sex tilvikum af 10.
Blaðið segir að um leið og hægt sé að gleðjast yfir frammistöðu norskra kvenna í þessum flokki verði niðurstaðan helst grátin hvað varðar samfarir; þar séu Norðmenn aðeins í 28. sæti af 41. Aðeins 102 sinnum á ári njótist norsk pör sem einnig sé undir meðaltalinu fyrir allar þjóðir en það hljóðar upp á 103 sænguryndi á ári eða rúmlega þriðja hvern dag.
Samkvæmt rannsókninni eru Frakkar áfram duglegastir við bólfarir en í landi rauðra vína og osta eru þær iðkaðar að meðaltali 137 sinnum á ári, samkvæmt rannsókninni. Grikkir fylgja þar á eftir með 133 skipti, síðan Serbar- og svartfellingar með 131 skipti.
Þá leiða rannsóknirnar í ljós að fólk á aldrinum 35-44 stundar mest kynlíf eða 116 á ári að jafnaði.
Japanir eru kynkaldastir ef marka má rannsóknina - njótast aðeins 46 sinnum á ári. Munu 30% japanskra kvenna vera handhafar gleðipinna þess er titrari nefnist.
Annað eru uppi á teningnum hjá Kínverjum, nágrönnum Japana. Þeir eiga flesta rekkjunauta eða um 20 á æviskeiðinu. Tróna þeir efstir í þeim efnum en Danir eru í fjórða sæti með 13 og Norðmenn eru á miðjum lista með 11.

Friday, January 14, 2005

Ég verð auðvitað að kenna fólki hér í Indó stuðningsmannalag Íslendinga!
Spila á gítar og fólk syngur þetta skemmtilega lag. Læt textann vaða, þakka baggalút.is fyrir frábært stuðningslag, auðvitað er "Saman allir sem einn" einnig spilað því auðvitað verður maður að dreifa fagnaðarerindi KR út um allan heim!

Illa sofnir, úrillir meiðsli hrjáðu flesta.
Við gerðum góða hluti en vorum langt frá okkar besta.
Vindáttin var óhagstæð og vandasamt að setj'ann.
Því framherjinn fær kvíðakas tef allt of margir hvetj'ann.

Albert Guðmundsson.
Hermann Gunnarsson.
Guðmundur Rúnar Júlíusson.

Áfram Ísland!
Áfram Ísland!
Áfram Ísland!
Jafnvel þó við getum ekki neitt.

Dómarinn var augljóslega ekki á okkar bandi
og hinir drullusokkarnir frá miklu stærra landi.
Við vildum kreista jafntefli út úr þessum öpum,
en samkvæmt höfðatölunni við vinnum þótt við töpum.

Atli Eðvaldsson.
Pétur Ormslev(son).
Hinn ógleymanlegi Ásgeir Sigurvinsson.

Áfram Ísland!
Áfram Ísland!
Áfram Ísland!
Jafnvel þó við getum ekki neitt.

Eyjólfur Sverrisson.
Hermann Hreiðarsson.
Hinn efnilegi Eiður Arnórsson.

Áfram Ísland!
Áfram Ísland!
Áfram Ísland!
Jafnvel þó við getum ekki neitt.
Góðan og blessaðan daginn!

Jæja, nu er bara ein ferd eftir til Jeddah áður en 10 daga pásan byrjar. Flýg á morgun til Jeddah og fer svo til baka sem farþegi með sömu vél til baka til Jakarta. Leiðinlegt að þurfa að kíkja til Jakarta því þar er ekkert rosalega spes og allt dýrara en hér í Medan.
Ég og Hjalti ætlum að nýta 10 daga pásuna til að spila golf og squash, og reyna að brenna eitthvað af svampinum sem er framan a maganum á manni.
Sit ég nú og drekk kaffi og diet coke niður í lounge-inum hér á hotelinu með flugvirkjunum tveim sem sjá um að halda vélinni gangandi. Kaffið hér er svo gott að maður fær aldrei nóg af því!
Læt þetta duga, kveðjur, Steini.
P.S. Birkir, farðu nú að færa þig yfir á bumbuna :-)

Tuesday, January 04, 2005

Sæl aftur!
Jæja, karlinn á leið til Jeddah á morgun, aðeins að sjá hvort moskítóarnir bíti mig eitthvað minna þar. Ég er farinn að halda að ég sé með rosalega sexí vanga og háls, fór nefnilega í golf, og moskítóarnir átu mig hreinlega alveg á hálsi og um vangann. Þeim hefur þetta ekki fundist amalegt enda maður svo mikið gæðablóð að það hálfa væri nóg! Ég heyrði í einni moskítóflugunni og hún sagði mér að ég væri með svo sexí vanga og eyru að það væri ekkert venjulegt, ég sagði henni á móti að því miður hefur þetta ekkert með neitt að gera hjá okkur mannfólkinu, en mér þætti vænt um að þær (moskítóarnir) létu mig í friði! Þessi ummæli mín gagnvart moskítóunum hafa greinilega ekki fallið í góðan jarðveg þannig að þær ákváðu að éta mig eins mikið og mögulegt var! Því miður. Af öllu rugli slepptu, þá er ég að fara til Saudi í fyrramálið, verð þar í sólarhring og ætla þar að fara í squash tíma hjá þjálfara sem er þar, vantar aðeins betri undirstöðu í squashið þannig að maður verður að taka aðeins á því! Eg verð mættur aftur hingað til Indó á föstudagsmorgun, ég kveð nú á meðan og reyni að rugla eitthvað meira hér þegar ég kem aftur til Indó.
Að lokum:

Moskítólimrur!

Þykir mér moskítófluga,
Mikil helvítis blóðsuga,
Bévítið sígur út blóðið,
svo út bíast flóðið,
og ekki dugar nein smuga!

Ófétið át og skildi eftir sár,
eg varð nánast sem nár,
Höndinni veifaði harðlega,
svo helvítið hvarf snarlega,
Ekki leið mér neitt skár!

Góðan dag, og gleðilegt nýtt ár!

Ég veit að áramótaávarpið hjá mér kom ekki á réttum tíma, en hér kemur það.

Maðurinn hóf líðandi ár á því að skella sér til Indónesiu til að fljúga þar júmbo-þotu. Eftir það hefur karlinn skellt sér til Saudi-Arabíu, Malasíu, Sameinuðu Arabísku Furstadæmin, Brasilíu, Argentínu, Kína, Taívan, Þýskalands, Luxembourg, Englands, Spánar, Ástralíu, Hollands, USA, Indlands, Lýbanon, Súdan, Marokko, og svo lengi mætti telja. Vil ég hér með nota tækifærið og færa öllum þeim sem í þessum löndum búa, heillaóskir með von um að komandi ár verði þeim gott og gæfuríkt. Á þetta við um Ísland líka. Þetta væri auðvitað alls ekki hægt ef Air Atlanta nyti ekki við og þakka ég öllum þeim sem vinna hjá Air Atlanta fyrir allt. Á nýju ári lítur maður fram á veginn þar sem staðfest er að maður vinnur í 3 vikur og fær frí í 3 vikur, alls ekki slæmt og verður gaman að fá að nýta tækifærið með því að hafa gott frí á milli til að hitta allt það fólk sem maður hafði ekki tök á á liðnu ári. Eyjamenn, hvað get ég sagt um þá, þvílíkir snillingar, hugsa alltaf hlýtt til snillinganna í Eyjum. Bestu þakkir til Flugfélags VM fyrir allt gamalt og gott. Golfið: Golfið var ekki upp á marga fiska í sumar enda gafst lítill tími heima fyrir til þess að spila og njóta þess að keppa við famelíuna, brósi tók mig í bakaríið í sumar og þarf að laga það þetta árið :-) Vonandi tekst manni að halda dampi í golfinu þegar líður á vorið og þá vonandi aðeins meiri tími til þess að njóta þess að spila heima í fáránlegu veðri með öllu því tilheyrandi, skrýtið að maður skuli sakna þess, en lífið er skrýtið. Brósa, mömmu og pabba, þakka ég kærlega fyrir allt! Þetta ár hefur verið svo viðburðarríkt með tilliti til þess að maður er lítið heima og svo flutti litli og síðasti rindillinn af heimilinu í haust, þannig að það er enginn til að taka frá nokkra fermetra á heimili foreldranna. Svo eru það auðvitað flugkveðjurnar. Ómar, Bjarni, Birkir, og allar ramprotturnar, þakka ykkur fyrir allt saman, sjáumst hress á nýju ári.Ekki má gleyma Hjaltanum, flugbróðirinn, klikkar ekki, hvað getur maður sagt, jú, HJALTI, ÞÚ ERT ROSALEGUR!
Að lokum verð ég að þakka Bertel fyrir alla snilldina og vona að fóturinn sé allur að koma til, árið 2005 verður fínt ár í golfinu hjá okkur og taktu nú vel á æfingunum fyrir vorið.
Að lokum vona ég að einhver hafi tekið upp skaupið, verð að fá það lánað! Lifið heil og sjáumst öll hressari en áður, á þessu frábæra ári 2005.