Jæja, gott fólk
Þá er karlinn staddur í Brussel en er á leið til Frankfuhrt á morgun sem betur fer, því hér hundleiðist mér! Hér er ekki kjaftur enda sýndi það sig að ég og Hjalti héngum á skype í 3 klst viðstöðulaust og töluðum um nákvæmlega ekki neitt, en það sannar enn og aftur að Hjaltinn er alltaf að brjóta karlmannslögin sem hann bjó sjálfur til :-)
Jæja, Birkir var að svara einhverjum pósti hérna hjá mér og virtist liggja mikið niður fyrir, hann varð greinilega sársvekktur þegar ég uppljóstraði um fjölda bringuhára hans, þeim sannleika hefur hann átt erfitt með að kyngja síðustu misseri, en ljóstraði þá upp öðru sem ég ákvað að spara að nefna, en verður þó nefnt hér. Já, hann mætir í spandex í klassann, rosalegur, maður verður bara að leirast!!!
Spandex-kappinn í Classann mætir,
kokhraustur og frár,
Pósar og pjattast svo engu lagi sætir,
en peyjinn hefur engin bringuhár!
Í örvæntingafullri tilraun hans til að koma í veg fyrir áframhaldandi orðspor ákvað hann að fara í photoshop (forrit til að breyta myndum fyrir þá sem ekki vita) til að reyna að sýna fólki að þetta væri ekki rétt, en því miður Birkir, það virkaði ekki.
Þakka þér samt fyrir að líkja mér við hálendi landsins því það er nú svo fallegt að það er mikið hrós ;)
Annars verð ég að viðurkenna að Birkirinn er drengur góður og góður æfingafélagi og engu yfir að kvarta þegar kemur að hans character, liggur við að lágkúra hafi verið hjá mér að byrja á þessu, en stundum verður maður að krydda tilveruna ;)
Að öðru, heimferð er vonandi 6. ágúst, kannski 7. Það verður að koma í ljós, og hlakkar í manni að koma heim og hitta elskuna mína og hafa það "nice". Það skýrist vonandi á allra næstu dögum hvað verður.
Andlegur undirbúningur er hafinn fyrir framkvæmdir á nýju íbúðinni, konan hefur auðvitað fullt af hugmyndum sem þarf að koma í gagnið, auk þess sem spasl og sprunguviðgerðir fara í gang. Það verður auðvitað bara stuð, og svo er auðvitað snilld að Hjalti sé búinn að brjóta karlmannslögin svo illa að refsingin hans verður auðvitað að skúra hjá mér, og kannski að halda á ryksugunni á meðan ég bora ;)
Jæja, hættur að bulla í bili, óska Sigmundi Einari Mássyni til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn í golfi, snilld hjá gaur, gerði vel og pakkaði liðinu saman, það hefði kannski ekki verið svo auðvelt ef ég hefði verið á landinu ;)
Chao for now!
Sunday, July 30, 2006
Friday, July 28, 2006
Góða kvöldið
Jæja, þá er maður staddur í Houston Texas. Reyndar fer ég heðan í nótt, þannig að ekki eru margir klukkutímar eftir af veru minni hér. Það er ágætt, því hér erum við á flugvallarhóteli sem er reyndar ágætt en hér er því miður ekkert að gera, netið er þó frítt sem er mikil bæting á því sem oft hefur verið.
Houston er reyndar ekki mikið frásögu færandi, ekki glæsileg borg í neina staði, hef reyndar komið hingað áður og fannst mér þá þessi borg vera í töluvert lægri klassa heldur en t.d. San Antonio, Beumont, Dallas og Austin, en þó er hún mun betri heldur en El Paso, en hvað um það.
Flugvöllurinn hér ber frægt nafn, reyndar ekki upp á marga fiska þó, því hann heitir George Bush airport!!!! Það er reyndar allt í lagi, háir mér ekki neitt, en ég verð þó að viðurkenna að allt annað nafn en þetta hefði komið í huga mér ef ég ætti að hafa skírt þennan völl einhverju nafni, hver veit!
Nú styttist í verzlunarmannahelgi heima fyrir og svíður sárt að koma heim akkúrat þegar hún er búin, það verður væntanlega mikið stuð bæði í borginni og út á landi, ég og Lilja eigum svo margar góðar minningar úr Eyjunum að það er hálf sorglegt að missa af þjóðhátíð í þetta skiptið! Hugurinn verður þar þegar að því kemur!
Í nótt held ég til Brussel, verð þar víst í 2 daga áður en ég fer til Frankfuhrt, sjáum til hvort að það verði raunin, en heimkoma er sem fyrr áætluð heim þ. 7. ágúst og hlakka ég til þess að styðja elskuna mína í próflestrinum auk þess að gera nýju íbúðina fína á meðan maður er heima í næsta mánaði.
Vona að allir hafi það gott og kveðjur í bili!

Wednesday, July 26, 2006
Hvernig kemstu af í New York!
Gaur: How are you doing?
Ég: cheers
Gaur: How´s it going?
Ég: cheers
Gaur: There you go.
Ég: cheers
Gaur: Want another one?
Ég: cheers
Gaur: Can I help you?
Ég: cheers
Gaur: Are you ok ?
Ég: cheers
Gaur: cheers!
Ég: cheers.
Auðvelt ekki satt!!! :)
Jájá, ekki vandamálið, bara snilld að vera kominn til N.Y. aftur, átti reyndar ekki að gista hér, en þar sem ekki fékkst flug til Houston þá var bara skellt sér á einn auka dag hérna.
Ég tók Oestend út með glæsibrag í fyrrakvöld og gærmorgun! Fór ekki á hótel í Brussel heldur beint inn á herbergi til Hálfdáns flugvirkja í Oestend. Spiluðum pool og drukkum bjór og höfðum það nice, miklu betra heldur en að vera einn í Brussel og vita ekkert hvað maður á að gera. Tær snilld.
Oestend er skrýtið pláss, allt brjálað að gera þar á sumrin en breytist í draugabæ á veturna. Falleg lítil borg, ögn minni en Reykjavík. Bara gott mál. Var Valdi fl.vlrki þarna líka og skemmtum við okkur konunglega þarna.
Ljótt var að lesa um tepruskapinn hjá Hjaltanum í fyrrdag, agalegt að brjóta svona af sér gagnvart karlmennskulögunum, ég sting bara upp á því hér og nú að hann verði "baseraður" í Gatwick í framtíðinni og geti leikið sér með pungfreyjunum þar, það er minn dómsúrskurður :-)
Annnað mál, Birkir kominn með kaskeiti. Það var eitthvað storka minnimáttarkenndinni hjá honum að eiga ekki svoleiðis dót og nú fagnar hann sem aldrei fyrr, kannski að hann verði bara hjá Excel að eilífu vegna þess, svo stoltur er hann að allt í einu er hann ekki barn lengur, heldur kominn með 26 feit! bringuhár sem telst nú töluvert á þeim bænum (að mig minnir engin fyrir ;), hann fer væntanlega beint í world class þegar hann kemur heim og pósar sig þar í speglunum ásamt vinum hans sem hafa líklega ekki fleiri en 25 bringuhár, sjáum til, en ég óska honum til hamingju að vera kominn í bringuháraklíkuna ;) Ég hugsa nú að hann tapi bringuhárakeppninni þegar hann fer að pósa sig með Tyrkjunum þarna í Dalaman, þeir eru loðnari en górillur á besta aldri, ROSALEGT!!!
Nú fer orðleysið að nálgast, og þá er best að kveðja,
CHEERS!!!!!

Sunday, July 23, 2006
Barabb babb babbarabb barabb babb rabbarabb ba babb babb daddarabb barabb babb búbbidei .......
Stars spreading the news,
I´m leaving today,
I want to be a part of it, New York Ne-e-e-w York
....
I want to wake up
in a city that doesn´t sleep
.......
Ne--e---e-w York, Ne-w Y-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-orrrrrk!!!!!
Jamm, staddur í New York, borginni sem sefur aldrei, þetta er búið að vera hrein snilld að vera hér á Manhattan í 2 daga, skoðaði Empire State Building (fór þó ekki upp í þetta skiptið, of mikið að gera!) og kíkti á Rockefeller Center auk alls konar dæmis sem hægt er að tralla hérna. Tær snilld.
Hótelið statt hjá húsi Sameinuðu Þjóðanna (100m í burtu), og auðvelt að komast á milli staða á tveim jafn fljótum. Það var hins vegar ekki alveg eins auðvelt í dag, þar sem að ég keypti Drvier (Ping G5) ásamt vatnsbyssu til að hreinsa bíla og að lokum massa regnjakka sem þarf í golfið einnig.
Það er hreint ótrúlegur munur á að vera hér frekar en á Long Island þar sem borgin sefur nánast allan daginn!
Nóg um það!
Þarf því miður að fara héðan í nótt til baka til Brussel, verð þar í 2 daga áður en ég flýg aftur hingað, en þá staldra ég ekki lengi við hér heldur fer strax til Houston í framhaldinu. Þar á maður víst að vera í 2 daga áður en til Brussel verður haldið aftur þaðan. Það er ekki laust við að það hlakki í manni að fara til Frankfuhrt um mánaðarmótin og hitta "Rosalegasta mann norðan alpafjalla" í góðri stemmningu í nokkra daga, verður tær snilld.
Heimkoma verður svo 8. ágúst og þá tekur við meira golf og vinna í nýju íbúðinni en það þarf að spasla, mála, fá sér bjór, spasla meir, bjór, spasl, bjór, bjór, spasl, bjór, bjór, bjór, smá spasl, meiri bjór o.s.frv. ;)
Svo er auðvitað stefnt á gott innflutningspartý þegar að því kemur, það fyrsta var gott á Fálkagötunni, bíðið bara eftir því næsta!!! Það verður rosalegt!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Að lokum,
Guten Abend Damen und Herren!

Thursday, July 20, 2006
Jæja, þá er maður mættur til Brussel. Það gekk þó ekki ævintýralaust fyrir sig því önnur eins ferð út hefur sjaldan komið upp á yfirborðið. Fyrst þegar komið var til Keflavíkur, var full út út dyrum og ég ætlaði bara aldrei að komast að skrifstofu Iceair til að ná í flugmiðann, svo "check-a inn " í framhaldi af því. Eftir nokkur olnbogaskot og læti komst ég þó að skrifstofunni og náði í miðann, þá tók við 5000 manna biðröð, ég var þó heppinn, sá mér færi á að nota nýjustu tækni og "checkaði mig inn" sjálfur, en það var þá ekki betra en það að "baggage drop off" hjá Iceair tekur lengri tíma en "check-in"!!! Ég stóð í 40 min einungis til þess að láta Iceair fá töskuna mína, jafnvel þó að ég væri búinn að "check-a inn"!!! Óþolandi!
Leiðin lá til Amsterdam og er ég kem þangað þá kemur í ljós að búið var að bóka flug á mig sem ég gæti aldrei náð, þannig að þá fóru rúmir 3 tímar í ekki neitt á Schiphol flugvellinum. Jæja, loks kemst maður nú í flug og rúllar yfir til Brussel. Þá var bara eitt eftir, EKKERT HÓTEL!!! Jájá, ekkert hótel handa karlinum og við tók 1,5 klst í að bíða eftir einni lítilli staðfestingu um það að ég ætti aið gista hérna fram á föstudag. Þetta var óneitanlega pirrandi, enginn kvöldmatur (mátti kannski alveg við því ;), dagurinn og kvöldið orðið handónýtt. Frekar pirrandi, en ég er núna á fínú hótelherbergi og hóteli í Brussel, lítur allt ljómandi vel út og svo á ég að fljúga á morgun til N.Y. Það átti að vera í dag, en smá seinkun (sóllarhringur) er á því flugi.
Nú að skemmtilegri hlutum :)
Þau stórmerkilegu tíðindi hafa átt sér stað að ég og Lilja eru búin að festa okkur kaup á nýrri höll!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Höllin er staðsett í Tröllaborgum 23 í Grafarvogi (ekki nóg pláss fyrir svona höll í miðbænum ;) er 120 fm með bílskúr, á efstu hæð (3. hæð) með útsýni alveg til Norðurs og Vesturs, geggjað dæmi. Stefnt verður að undirbúiningi til flutnings í lok ágúst, þ.e. kem heim 8. ágúst og spasla væntanlega í 2 vikur og mála áður en við rúllum okkur þar inn.
Kveðjur á frónið sem mér skilst að hafi lagað veðrið akkúrat þegar ég og Hjalti fórum burt.

Saturday, July 15, 2006
HOLA Í HÖGGI!!!!!!!!!
Jæja, nú er glatt á hjalla, heldur betur, karlinn smellti holu í höggi á 2. braut á Nesvellinum þ. 11.07 nýverið.
Það er ekki ónýtt að uppgötva það að maður sé á meðal þeirra bestu í þessari grein :)
Höggið var slegið með SW (Sand Wedge), og var þetta hreint magnað golfhögg!!!!!!!
Annars verður maður nú að byrja að afsaka ótrúlegt bloggleysi upp á síðkastið, hrein ritstífla í gangi og ekkert markvert gerst þannig.
Ísraelar komnir í sannkallað banastuð, orð að sönnu, því nú vilja þeir bana Hizbollah (ekki skrýtið), olíuverð hækkar og allur pakkinn.
Það er ljóst að ég fer út næsta miðvikudag, er förinni heitið til Oestend í Belgíu, verð baseraður þar næstu vikur, fljúgandi þaðan til N.Y. og Houston.
Reyndar í lok mánaðarins fer ég til Frankfuhrt á upprifjunarkúrs ásamt fleiru því tengdu, og kannski að maður fái að opna hurðir o.þ.h. til tilbreytingar á vélinni.
Birkir var með skot um að ég væri á reynslulausn á blogginu hjá honum, það er eðlilegt en á næstunni mun maður vera skárri með skrifin.
Sumrið hér er ekki glæsilegt, reyndar eitt það lélegasta sem ég man eftir langa lengi, hvar eru dagarnir sem maður getur setið úti og drukkið kaffi niður
á austurvelli með öllu tilheyrandi, hvar er blíðviðrið, þetta eina sanna sem Ísland var orðið svo frægt fyrir, nú fer maður að vera hræddur við veturinn fyrst sumarið er svona, agalegt!
Næst á dagskrá er golfmót í Garðabæ á morgun, auk þess sem reynt verður að fljúga Yak-inum eitthvað næstu daga áður en haldið verður út til Belgíu.
Kv. Champinn