Góðan dag öll sömul (kvöldið hjá sumum geri ég ráð fyrir)!
Jæja, ekki skrifað neitt í þó nokkurn tíma hérna, enda búinn að vera eitthvað slappur í bullstuðunum upp á síðkastið.
Jæja, best að setja smá hrafnaspark hérna á netið: \/\/ \/\/ \/\/ /\/\ /\/
Eins og staðan er í dag, þá er ég í Orlando og á að fljúga yfir til Gatwick í kveld, verð mættur þar ca. kl. 1500 að ísl. tíma. Ég er einungis búinn að fara 9 sinnum yfir Atlantshafið í þessum mánuði og 10. skiptið verður í kveld, má þ.a.l. gera ráð fyrir því að innri klukkan mín sé orðin frekar vanstillt. Hvað sem því líður, alltaf gaman að spjalla við Shannwick og Gander á HF-inu.
Í þetta skipti gistum við á Rosen Plaza í stað Hilton áður. Þetta hótel er bara nokkuð fínt og allt hið besta mál.
Varðandi frí, þá er ég líklega að koma heim um 10. sept. Ekkert hefur verið staðfest í þeim efnum en menn fá að vita það um leið og staðfesting er komin. Hringt var í mig á fimmtudag, beðinn um að fara í kassann, vantaði co-ara til að skrifa út kaftein, minnsta mál, skemmti mér vel og hafði gaman af, enda kafteinninn enginn annar Jimbo félagi minn sem var bara í sínum rútíneraða 6 mánaða checki. CAA officials frá UK voru á svæðinu þannig að allir voru vel klæddir og flottir :-)
Annars nánast ekkert nýtt, kveðjur til allra!
Sunday, August 29, 2004
Thursday, August 12, 2004
Góða kvöldið!
Ég verð nú að byrja að segja frá því að í fyrradag (frekar en í gær), þá var atvinnukylfingur að spila í Borgarnesi. Þegar hún mætti svo á 4. braut, n.b. eftir glæsi spilamennsku á fyrstu þrem holunum, þá ákvað hún að gera allt vitlaust og valta yfir aðra spilara á vellinum, tala nú ekki um þá spilara sem í fjölskyldunni eru! Hún sagði bara hingað og ekki lengra, nú tek ég ykkur (hina golfara landsins) í bakaríið. Já, hún var orðin þreytt á þessu hangsi, leiddist þófið, fannst menn vera eitthvað lengi að spila og tók ráð í sínar hendur. Glæsilegt upphafshögg var slegið (að sögn) alveg teiknað eftir brautinni. Henni fannst það ekki nóg og sló sitt annað högg beint ofan í holuna!!! Nick Faldo varð skíthræddur og hætti í golfi í kjölfarið, sá þarna ofjarl sinn og tók poka sinn! Jájá, Guðríður Gísladóttir heitir atvinnukylfingur þessi og fékk þarna glæsilegan örn (eagle). Ég segi stoltur frá því að þetta er móðir mín og færi ég henni hamingjuóskir með þessi tilþrif. Nú bíður maður bara þess að Bernhard Langer hringi í hana og bjóði í fyrsta skipti í sögunni kvenmann til að spila með Evrópuliðinu í Ryder Cup, sem verður nú í September!!! Ég á enn eftir að hafa fengið staðfestingu á því hvort hún bauð meðspilurum sínum upp á öllara eftir hringinn eins og hefðin er þegar menn sýna svo rosalega takta á vellinum :-)
Að öðru. Ég flaug frá Gatwick til Orlando í gær með millilendingu í Cardiff.Það var ekki leiðinlegt og heildarflugtími ferðarinnar var þ.a.l. 10 tímar, ekki heldur leiðinlegt! Svo í dag, eftir smá hvíld, þá meina ég smá hvíld, ákvað ég að skreppa í COMPUSA, en það er verslunarkeðja sem common sense segir að það hljóti nú að hafa eitthvað að gera með tölvur. Common sense, you can´t buy it!!! Hvað um það, ég skrapp þar inn og viti menn, allt hlaðið af tölvum og dóti sem tengist tölvum, sjónvörpum og þvíumlíkt. Eftir að hafa vappað þar um eins og kappinn sem vappaði vífi frá, þá var ég næstum því búinn að kaupa mér nýja fartölvu, DVD-spilara með VHS video-i líka, tösku fyrir fartölvuna, græjur til að tengja rafmagnsgítar í tölvuna með 32ja rása kerfi til að tengja margt fleira við hana og leika sér, auk þess að hafa næstum því keypt video-cameru, scanner, 50" sjónvarp (rosalegt sjónvarp),snickers, coke, diet coke o.fl. Til að gera nú þegar langa sögu aðeins styttri, þá endaði ég á því að kaupa mér töskuna, diet coke og snickers!Ég hins vegar verð að koma því að, að ég keypti mér golfkylfu í pro-shoppu í Crawley og þ.a.l. er gleðin í hámarki þessa dagana :-) Ég skrifaði síðast um THE DESPERADOS! Ekki hef ég neinar frægðarsögur af því gengi að segja, mæli með því að þeir prófi mína aðferð sem ég lýsti í þeim pistli næst! Í dag fór ég í "get ready for this"-sturtu, helvíti gott enda karlinn þrælánægður með lífið! Svoleiðis sturta klikkar aldrei!!! Þessi sturta var tekin eftir 8 km hlaup og 3 vikna reykleysi! Reyndar hef ég farið mörgum sinnum í sturtu á þessum 3 vikum reykleysis, svona til að taka af allan vafa ;-) Eftir sturtuna gerði ég eitthvað sem ég hef ekki gert lengi, það var að hlusta á tónlist úr marg-óskarsverðlaunamyndinni "Blues brothers"!!!! Ef ég mætti ráða fengi þessi mynd óskarsverðlaun fyrir bestu mynd, besta leik, tónlist og alles 10 ár í röð. Á morgun flýg ég til Gatwick aftur, en lýsi því hér yfir að ég mun vera í fríi á Íslandi frá 1. sept í 3 vikur!!!Mun þessi tími vera nýttur til að mála íbúð og fleira, þ.a.l. lýsi ég því yfir að allir verða að mæta á Fálkagötuna 2. sept og byrja að mála :-) Eg kíki svo á þetta þ. 4. sept og skoða hvort þið þurfið að taka aðra umferð.
Kveðjur til allra!

Thursday, August 05, 2004
Góðan dag (kvöldið hjá mér)
Ég fékk hringingu frá Ómari óða í dag, sá piltur er þrælmagnaður og sagði hann mér sögur sem gaman var að. Drengurinn sá er búinn að finna það út að ekkert heillar íslenskar dömur jafn mikið og asnaleg sólgleraugu!!! Ég hlustaði furðu lostinn á þessa ræðu frá manninum og fann út að það er ekkert skrýtið að ég kalli hann Ómar óða! Hann ætlar, óður maðurinn, að rúlla niður í bæ á föstudagskveld með sín skrýtnu sólgleraugu ásamt öðrum óðum mönnum. Það lygilega við þetta allt saman er að þetta munu allt vera flugmenn. Þ.a.l. mæli ég með því að þeir verði allir sendir í sálfræðipróf sem fyrst! Hins vegar bið ég allar dömur um að hafa varann á á föstudag þar sem leðurklæddu refsararnir verða á svæðinu með skrýtin sólgleraugu. Ég hef gefið þessu skrýtna gengi nafnið THE DESPERADOS, má fólk nota skilningarvit sín til þess að finna út hvernig það nafn var fengið.
Á meðan ætla ég að vera að fljúga til Orlando aftur frá Gatwick, mun göfugra dæmi. Hins vegar segi ég stoltur og ánægður frá því að ég mun verða með flott sólgleraugu, ekki skrýtin. Um árið var ég búinn að finna það út með einum flottum félaga, að ef maður vildi vera svalastur af öllu svölu, þá ætti maður að fara í hvítum US Navy búningi niður í bæ á laugardagskveldi, standa við klukkuna og spjalla á ensku um hversu gaman var að vera á US Missouri flugmóðurskipinu. Ég reyndar tel að það hafi verið gott mál að gera þetta ekki því maður hefði ekki staðið lengi í 2 jafnfljóta þar sem hnefar annarra vitleysinga væru komnir á loft gegn manni. Svona er lífið, bannað að leika sér of mikið!!!
Annars bið ég að heilsa THE DESPERADOS með óskum um gott gengi :-)

Tuesday, August 03, 2004
Godan daginn!!!
Jaeja, nu er karlinn i Orlando. Her verd eg thangad til a fimmtudag, tha fer eg aftur til Manchester og svo Gatwick. Agaetis daemi og karlinn ad nyta timann i ad kaupa ymislegt naudsynlegt!!! Annars er karlinn buinn ad fa samthykkt kauptilbod i ibud i vesturbaenum og vaentanlega hefjast flutningar i september.
Hvad sem thvi lidur, tha bid eg ad heilsa i bili.