Góða kvöldið!
Ég verð nú að byrja að segja frá því að í fyrradag (frekar en í gær), þá var atvinnukylfingur að spila í Borgarnesi. Þegar hún mætti svo á 4. braut, n.b. eftir glæsi spilamennsku á fyrstu þrem holunum, þá ákvað hún að gera allt vitlaust og valta yfir aðra spilara á vellinum, tala nú ekki um þá spilara sem í fjölskyldunni eru! Hún sagði bara hingað og ekki lengra, nú tek ég ykkur (hina golfara landsins) í bakaríið. Já, hún var orðin þreytt á þessu hangsi, leiddist þófið, fannst menn vera eitthvað lengi að spila og tók ráð í sínar hendur. Glæsilegt upphafshögg var slegið (að sögn) alveg teiknað eftir brautinni. Henni fannst það ekki nóg og sló sitt annað högg beint ofan í holuna!!! Nick Faldo varð skíthræddur og hætti í golfi í kjölfarið, sá þarna ofjarl sinn og tók poka sinn! Jájá, Guðríður Gísladóttir heitir atvinnukylfingur þessi og fékk þarna glæsilegan örn (eagle). Ég segi stoltur frá því að þetta er móðir mín og færi ég henni hamingjuóskir með þessi tilþrif. Nú bíður maður bara þess að Bernhard Langer hringi í hana og bjóði í fyrsta skipti í sögunni kvenmann til að spila með Evrópuliðinu í Ryder Cup, sem verður nú í September!!! Ég á enn eftir að hafa fengið staðfestingu á því hvort hún bauð meðspilurum sínum upp á öllara eftir hringinn eins og hefðin er þegar menn sýna svo rosalega takta á vellinum :-)
Að öðru. Ég flaug frá Gatwick til Orlando í gær með millilendingu í Cardiff.Það var ekki leiðinlegt og heildarflugtími ferðarinnar var þ.a.l. 10 tímar, ekki heldur leiðinlegt! Svo í dag, eftir smá hvíld, þá meina ég smá hvíld, ákvað ég að skreppa í COMPUSA, en það er verslunarkeðja sem common sense segir að það hljóti nú að hafa eitthvað að gera með tölvur. Common sense, you can´t buy it!!! Hvað um það, ég skrapp þar inn og viti menn, allt hlaðið af tölvum og dóti sem tengist tölvum, sjónvörpum og þvíumlíkt. Eftir að hafa vappað þar um eins og kappinn sem vappaði vífi frá, þá var ég næstum því búinn að kaupa mér nýja fartölvu, DVD-spilara með VHS video-i líka, tösku fyrir fartölvuna, græjur til að tengja rafmagnsgítar í tölvuna með 32ja rása kerfi til að tengja margt fleira við hana og leika sér, auk þess að hafa næstum því keypt video-cameru, scanner, 50" sjónvarp (rosalegt sjónvarp),snickers, coke, diet coke o.fl. Til að gera nú þegar langa sögu aðeins styttri, þá endaði ég á því að kaupa mér töskuna, diet coke og snickers!Ég hins vegar verð að koma því að, að ég keypti mér golfkylfu í pro-shoppu í Crawley og þ.a.l. er gleðin í hámarki þessa dagana :-) Ég skrifaði síðast um THE DESPERADOS! Ekki hef ég neinar frægðarsögur af því gengi að segja, mæli með því að þeir prófi mína aðferð sem ég lýsti í þeim pistli næst! Í dag fór ég í "get ready for this"-sturtu, helvíti gott enda karlinn þrælánægður með lífið! Svoleiðis sturta klikkar aldrei!!! Þessi sturta var tekin eftir 8 km hlaup og 3 vikna reykleysi! Reyndar hef ég farið mörgum sinnum í sturtu á þessum 3 vikum reykleysis, svona til að taka af allan vafa ;-) Eftir sturtuna gerði ég eitthvað sem ég hef ekki gert lengi, það var að hlusta á tónlist úr marg-óskarsverðlaunamyndinni "Blues brothers"!!!! Ef ég mætti ráða fengi þessi mynd óskarsverðlaun fyrir bestu mynd, besta leik, tónlist og alles 10 ár í röð. Á morgun flýg ég til Gatwick aftur, en lýsi því hér yfir að ég mun vera í fríi á Íslandi frá 1. sept í 3 vikur!!!Mun þessi tími vera nýttur til að mála íbúð og fleira, þ.a.l. lýsi ég því yfir að allir verða að mæta á Fálkagötuna 2. sept og byrja að mála :-) Eg kíki svo á þetta þ. 4. sept og skoða hvort þið þurfið að taka aðra umferð.
Kveðjur til allra!
No comments:
Post a Comment