Friday, September 30, 2005

M & M

Mikið óskaplega er það skrýtið með M & M, þetta er hrikalega gott sælgæti, sem allir fíla í botn auk þess sem tvær frábærar borgir heita þessu skemmtilegum nöfnum með M sem fyrsta staf. Já, Madrid og Miami fá hól dagsins á þessu bloggi í dag. Mikið óskaplega er gaman að geta kynnt sér mannlífið á almennilegan hátt í þessum tveimur borgum, þó reyndar að flugið taki rúma 9 tíma á milli þessara ágætu borga. Jájá, karlinn búinn að koma sér vel fyrir í Madrid en rúllaði mér til Miami nánast undir eins, þó gafst smá tími til að gera ýmislegt með virkjunum daginn sem komið var, þakka ég þeim fyrir snilldar kvöld. Jájá, stemmningin eins og hún gerist best hjá karlinum og ég held bara að tvibbinn (hgret) sé massa sáttur líka!
Sakna ykkar allra heima, rosa mikið, en verð að viðurkenna að 30 stiga hiti og sól er ekkert leiðinlegt, ekki síst þegar það eru 30 m/s heima með öllu tilheyrandi! Heheheh.
Sæl að sinni, reyni að vera rosa menningarlegur næst!

Saturday, September 24, 2005

Klukkaður!!!

Jæja, karlinn bara klukkaður af Birki! Það er ekkert sem heitir, en keppnismaður sem ég er, verður auðvitað að svara þessu 1,2 og bingó þannig að ekkert rugl fari úrskeiðis! Hins vegar er ég persónulega ekki alveg búinn að ná þessu klukki, nei, skil ekki alveg hvað þetta á að gera fyrir þá sem alltaf eru að blogga, en hvað um það, megabullarinn hlýtur að geta gert eitthvað í þessu. Mér skilst að hver sá sem er klukkaður sé fallegasti og besti flugmaður í heimi þannig að ég tek þetta allt til mín og geri gott úr þessu. Ég segi eins og Birkir og gef mér það tilfinningalega svigrúm (eins og Ólafur Ragnar) til að segja frá 5 hlutum um mig sem eru gagnslausir fyrir aðra en ég ætla ekki einungis að einskorða mig við svollis bull!!!
Jæja, fire away!

1) Ég er egó-isti mikill, en samt alltaf í gríni, svona yfirleitt!

2) Ég er maður sem þarf að taka með þvílíkum fyrirvara því ég segi stundum ýmislegt sem ekkert vit er í en þó samt eitthvað, ég kem t.d. skilaboðum áleiðis með kaldhæðnislegu glotti (svona "a la Logi Bergmann") sem sumir misskilja en skilja þó!

3) Ég er orðinn mikill aðdáandi su-doku gátanna. Ég er reyndar svo góður í þeim að það hálfa væri nóg, en þetta er samt allt Birki að kenna því hann lét mig vita af þessu su-doku og ég er farinn að eyða allt of miklum tíma í þetta, en það er bara gott mál því flest fólk á í miklum erfiðleikum með að láta tímann líða. Ég er reyndar svo góður í su-doku að talnafræðingar segja að það séu ekki til tölfræðilegar upplýsingar um hversu góður ég er í þessu, en hvað um það, ego-ið bliv-ar!

4) Það hljóta allir að vera hrifnir af mér, alla veganna segir Hjalti það, en hann er nú samt svo rosalegur að ég held stundum að hann sé bara að tala um sjálfan sig, en öll compliment eru tekin til meðferðar á þessu bloggi. Ég læt nú Lilju mína sjá um þessa hlið mála fyrir mig!

5) Ég er aðdáandi Lilju minnar og líka Hallgríms Helga, enda er hann "bold" (ekki í meiningunni feitletraður!!!) eins og ég!

Sæl að sinni!

Thursday, September 22, 2005

Góðan dag!

Jæja, nú eru allir Atlanta menn farnir út nema ég en það gerist á næsta þriðjudag! Já, vinnan loks að taka við og ekki laust við að það hlakki í manni að takast á við Kúbverja og BNA menn á Miami. Já, Madrid er málið, fer þangað á þriðjudaginn og verð þar í 3 vikur að fljúga á aður tiltekna 2 staði ásamt kannski fleiru. Nú er aldrei að vita nema að Air Atlanta sé að fá glænýjar 777-200 frakt vélar en í dag er greint frá því að Avion Group sé að festa kaup á 4 svollis vélum, magnað!
Annars er karlinn nú að spá í að fara á námskeið erlendis á Yak-52 þar sem allt listflug er tekið fyrir. Já, í UK eru nefnilega 2 rússar sem kenna allt á þessa vél og langar mig sérstaklega að fara og læra abracadabra "drill"-ið, en fyrir þá sem ekki vita skapar það þyngdarafl sem er -4 g. Já, vonandi tekst mér að komast á þetta námskeið fljótlega upp úr áramótum, sjáum nú til með það!
Hgret er farinn til Danmerkur í frí, fínt að fara með flensuna þangað félagi, spara okkur Íslendingum þessi ósköp, mikið rosalega sem þú ert mikill Íslendingavinur Hjalti minn. Super!
Heyrumst hress!

Wednesday, September 21, 2005

Góðan daginn!

Jæja, karlinn alltaf í classanum að hlaupa og reyni að léttast. Það gengur upp og niður en vonandi getur karlinn farið að státa sér af því að klára 5 km á 25 min, það styttist í það en vantar enn smá upp á það. Hvað um það, lítið hefur gerst síðan um helgina en vonandi bætist úr því á morgun!

Monday, September 19, 2005

Jæja góðir hálsar! Undur og stórmerki hafa gerst, Lilja Dögg hefur nú loks farið í flug á RÚSSANUM ÓGURLEGA!!!!!!!!!!!!
Já, úr varð í gær, því það var svo massa gott veður, að Lilja kæmi með mér í flug og það var ekkert venjulega gaman. Hoppuðum við í loftið í Reykjavík og áleiðis yfir Viðey inn Hvalfjörðinn í átt að Hreðavatni, en þar er einmitt sumarbústaður foreldranna. Mikið óskaplega tók bústaðurinn sig vel út í 500 fetunum og gaman að sjá hann frá þessu sjónarhorni í þessari líka þvíllíku blíðunni sem var á svæðinu. Mikið gaman og mikið fjör! Flugum svo þaðan yfir í Eldborgarhraunið og skoðuðum það vandlega úr lofti, mögnuð sjón enda veður eins og áður sagði mjög fínt. Svo var haldið af stað í bæjinn aftur og tók þessi flugferð tæpa 1,5 klst. Hvað gerir maður svo eftir flug á sunnudegi, jú, auðvitað skellir maður sér á Hamborgarabúllu Tómasar, þar sem borgararnir minnka með hverju skipti sem maður fer þangað, en þeir eru þó alltaf ljúfir :-)
Svo var bara afslappelsi um kvöldið og rólegheit!
Annars er það að frétta að loksins erum við í Rússavinafélaginu búnir að fá nýtt skýli fyrir Yak-inn okkar. Já, keyptum fínt T-skýli í fluggörðum sem passar akkúrat fyrir einn Yak og með ðí! Alger snilld, en afhending verður ekki fyrr en um áramót þannig að það verður að notast við núverandi aðstöðu fram að áramótum!
Bless í bili!

Friday, September 16, 2005

Góðan daginn!

Nú hef ég verulegar áhyggju af tvíburabróður mínum, honum Hgret. Já, hringir í mann og býður manni í morgunkaffi og vöfflur, hversu gay er það????? Ég get ekki dæmt um það en læt öðrum það eftir! Mér sýnist á þessu að karlinum gersamlega vanti alvöru konu sem sér almennilega um hann og læknar hann frá sálfræðilegum erfiðleikum sem hann sýndi með því að troða pappír í eyrun. Ég veit að það er kannski ekki mjög huggulegt að bjóða kvenþjóðinni upp á svona kandidat en ég lofa því að hann sé hinn besti drengur! Gott ráð er að láta hann éta pappírinn og spara þannig matarinnkaupin :-) Annars, þakka ég Hjalta gott boð og mæti kl. 1000 nú á eftir!!! Hjalti, þú ert snillingur! Heiður að fá að fljúga með þér til Madridar eftir rúma viku!

Thursday, September 15, 2005

Daginn!

Undur og stórmerki hafa gerst í þessari veröld, bíllinn minn grái er ber hið magnaða heiti Volkswagen Golf frá árinu 1998 hefur verið seldur!!!!! Mikið óskaplega sem ég er farinn að sakna þess að eiga bíl sem alltaf er að bila og þar sem head-ið er farið ásamt því að vera alltaf með púströrsvandræði auk bremsuveikleika, það liggur við að maður kunni ekki að keyra venjulegan bil eftir þetta! Þá er það stóra spurningin, hvað kemur í staðinn. Já, það er nóg af villtum og brjáluðum sölumönnum þarna út sem reyna að ginna mann til sín með alls konar gylliboðum og látum þar sem þeir vilja geta flett peningum manns á milli handa sér! Púff, læt þessa menn eiga sig aðeins í bili, en hvað er til ráðs??? Jú, besta í stöðunni er að vera á massa amerískum kagga, er Cavalier heitir, og eyðir massa bensíni, þetta verður nefnilega allt að vera í stíl, bumban eyðir miklu, þ.a.l. verð ég að vera á bíl sem eyðir miklu, er það ekki ??? Alla veganna erum við hjúin á Fálkagötunni komin á bíl sem Lilja hefur átt um nokkurt skeið og mun hann fást við að redda okkur í gegnum dagsins amstur næstu mánuði.
Að öðru, vegna þess hversu mikið Ómar hælir nýjustu tækni og vísindum, þá smitaðist ég aðeins af honum, skal ég nefna nokkur dæmi um það! Ómar kaupir macintosh tölvu, ég gerði það líka! Ómar er með sjálfvirkt ljós á baðinu því þar er enginn gluggi o.s.frv., það er ég kominn með líka!!! Já, karlinn fékk tengdó til að mæta með borinn í gær (því verkfærahallæri er mikið á þessu heimili) og boruðum við út í gegnum flísarnar á baðinu og tengdum svo nýjan tengil inn á bað, þannig að hvort sem menn ætla að gera númer 1 eða 2, þá fá menn sjálfvirkt ljós sem heldur mönnum við efnið þannig að þeir hitti á tilheyrandi stað!!! Ekkert nema glæsó um það segja!!!
Svo er eitt af aðal atriðuðunum þessa dagana er Yak-52 sem flýgur um loftin blá þessa dagana. Hef ég haft mikið gaman af því upp á síðkastið að taka menn með mér í smá túra og mun ég væntanlega halda því áfram. Gott að vita til þess að menn hafi haft mjög gaman af þessu og ætla ég m.a.s. að reyna að koma mér í góðan túr í dag!
Meira bull kemur inn seinnipartinn. Bless í bili!

Monday, September 05, 2005

Góðan dag!

Jæja, undur og stórmerki gerðust í gær! Fékk hringingu frá álfunum í Excel crew-ing og beðinn um að fljúga frá Manchester til Sharm El Sheikh í Egyptalandi, fara svo með sömu vél til baka sem farþegi, síðasta flug áður en þú ferð heim sögðu þeir!
Jæja, af stað lagði maður í þetta skemmtilega flug, jújú, mættum á svæðið og allt í fínu, flugum svo aftur til baka eftir smá havarí með karlana á flugvellinum þarna í Sharm. Var svo bara að poppa inn á Radison hótelið hér í Manchester og ætla að vera hér í 3 klukkutíma, tek flug í dag kl. 1230 til Gatwick, og væntanlega flug aftur heim frá Heathrow í kvöld og vonast ég til að mæta á skerið um miðnættið í kvöld (kannski 2300 ef ég er heppinn)!
Bíð spenntur eftir að sjá ykkur öll og get ekki beðið að koma heim og éta almennilegan mat sem Lilja kokkar ofan í mann :-)
Orðinn frekar leiður á fish & chips og öllum þeim viðbjóði!
Sæl að sinni og bestu kveðjur!

Saturday, September 03, 2005

Jæja, ég verð að leggja eitt fram hér á þessari vefsíðu!
Birkir nk. bumbuflugmaður benti mönnum á að prófa sudoku!!!! Þetta er nátturulega bara stórhættulegt spil þar sem gjörsamlega er alls ekki hægt að hætta!!! Ég mæli með því reyndar að fólk prófi þetta, www.sudoku.com . Tjakkið á þessu, þetta er gargandi snilld og frábært til að eyða tímanum hvar sem er!
Góðar stundir!

Friday, September 02, 2005

Karlinn orðinn massa duglegur í blogginu upp á síðkastið og engin breyting þar á í kvöld!

Jæja, mættur á Radison hótelið í Manchester og hef það fínt, flýg til Faro og til baka á morgun og væntanlega er þá prógrammið búið hjá mér í þessari útlegð. Hlakka svo mikið til að koma heim og fá að anda að mér fersku lofti þar sem hrímið kemur á tunguna á manni þegar maður andar og allir eru svo rosalega vel klæddir að ekki er hægt að sjá muninn á mönnum og fjöllum!
Er búinn að vera að hlusta á lélegar ræður hjá Bush og er orðinn þreyttur og ætla að fara að slefa í koddann!
Góða nótt!
Jæja, góðan og blessaðan daginn!

Karlinn staddur í Gatwick á leið til Manchester eftir klukkutíma til þess að kíkja aftur þaðan til Faro á morgun. Já, Faro er málið en kem strax aftur til Manchester í eftirmiðdaginn, áreiðanlega skemmtilegt flug og það sem gerir það enn skemmtilegra er að þá er ég kominn með fleiri tíma í þessum mánuði heldur en Hjalti skratti :-)
Hvað að um það, kem svo aftur til Gatwick vonandi á laugardagskveld, kannski sunnudagsmorgun, sjáum til. Vonandi hittir maður Benna þar! Jæja, svo kemur maður heim á mánudag eða þriðjudag, þá er nú ekki leiðinlegt að vera heima á fróni þegar massaðasti drengur norðan alpafjalla (sem fæddur er á bilinu 22:00 - 23:00 22. apríl 1977) kemur heim! Jájá, mikið óskaplega er ég orðinn spenntur að koma heim og hugga Lilju mína sem nú er byrjuð í hjúkkunni aftur í HÍ! Já, daman að hefja annað árið og allt að gerast, ekki slæmt að búa á Fálkagötunni þegar menn eru í HÍ!!!! Hhahaha. Eins og ég segi, mjög spenntur að koma heim og kenna öllum Íslendingum qriquet, því ég er væntanlega einn af þeim fáu heima á fróni sem kunna þetta sport, enda búinn að horfa á flesta leikina á milli Englands og Ástralíu í keppninni um "The Ashes" en það lið vinnur sem fyrst vinnur þrjá leiki af 5. Fyrir þá sem vilja vita, hafa Engendingar unnið 2, Ástralir 1, og einn hefur orðið jafntefli, þannig að Englendingar standa heldur betur vel að vígi fyrir lokaleikinn í næstu viku! Allt að verða vitlaust hér í Englandi út af þessu!
Bið að heilsa í bili!
Bestu kveðjur til allra, áfram Ísland á morgun, vinnum 10-0!!!!!!!!!!!!!!

Thursday, September 01, 2005

Í framhaldi af neðangreindu hef ég tekið þá skemmtilegu ákvörðun að skella mér í downtown í London, veður hér er fínt og ég hef ekkert betra að gera. Vonast til að geta fundið armband til að binda iPod-inn minn við handlegginn á mér fyrir gym-ið. Vell á minnst, var ég búinn að segja ykkur frá því hvað ég hef misst mörg kg! Ég hef misst svo mörg að ég segi ykkur það ekki!!!! Hahahahah, mitt eigið leyndarmál og kannski vandamál, hver veit?
Góðan dag, þó svo að hann hafi byrjað frekar skringilega hjá mér!

Jájá, átti að fara til Orlando í dag, fara svaka glaður frá Creepy Crawley til Orlando og vera þar í einn dag og koma svo til baka aftur. Jájá, fór til vinnu í morgun, mætti á svæðið og tók við pappírum fyrir flugið því ég var eini maðurinn sem mætti snemma. Svo líða nú nokkrar mínútur og enginn kemur að tékka á mér og virtist sem að allir þeir sem áttu að fljúga með mér væru ekki í sama tímabelti og ég! Eftir nánari eftirgrennslan kemur í ljós að vélin var biluð og búið að seinka öllum nema mér. Ég lét þetta nú ekki á mig fá, fékk mér einn kaffi og skoðaði bara pappíra og veður áleiðis og hafði það nice. Svo kemur að því að kafteinninn mætir og við förum að spjalla. Kemur þá í ljós að hann telur að það sé auka áhafnarmeðlimur um borð, já 2 kafteinar, 1 co-ari og 1 vélstjóri. Já, 2 kafteinar því að annar þeirra er í þjálfun. Við héldum að þetta væri eitthvað skrýtið og hringdum í crewing (screwing) og jújú, mikið rétt, eigum að vera fjórir, því það þarf safety pilot með í þetta! Enginn sagði mér að ég ætti að vera safety pilot og því var ég nú frekar vonsvikinn yfir þessu öllu saman, svo að lokum kemur í ljós að engan safety pilot vantaði! Þ.a.l. fór ég aftur upp á hótel og bora nú fast í nefið eftir allt þetta bull.
Til að bæta gráu ofan á svart, þá veit ég ekki hvenær ég á að fljúga næst og held ég að félagið viti það ekki heldur. Ég reyni hins vegar að láta fara vel um mig og hugsa til heimferðar sem verður í síðasta lagi á þriðjudag!
Kveðjur!