Thursday, September 01, 2005

Góðan dag, þó svo að hann hafi byrjað frekar skringilega hjá mér!

Jájá, átti að fara til Orlando í dag, fara svaka glaður frá Creepy Crawley til Orlando og vera þar í einn dag og koma svo til baka aftur. Jájá, fór til vinnu í morgun, mætti á svæðið og tók við pappírum fyrir flugið því ég var eini maðurinn sem mætti snemma. Svo líða nú nokkrar mínútur og enginn kemur að tékka á mér og virtist sem að allir þeir sem áttu að fljúga með mér væru ekki í sama tímabelti og ég! Eftir nánari eftirgrennslan kemur í ljós að vélin var biluð og búið að seinka öllum nema mér. Ég lét þetta nú ekki á mig fá, fékk mér einn kaffi og skoðaði bara pappíra og veður áleiðis og hafði það nice. Svo kemur að því að kafteinninn mætir og við förum að spjalla. Kemur þá í ljós að hann telur að það sé auka áhafnarmeðlimur um borð, já 2 kafteinar, 1 co-ari og 1 vélstjóri. Já, 2 kafteinar því að annar þeirra er í þjálfun. Við héldum að þetta væri eitthvað skrýtið og hringdum í crewing (screwing) og jújú, mikið rétt, eigum að vera fjórir, því það þarf safety pilot með í þetta! Enginn sagði mér að ég ætti að vera safety pilot og því var ég nú frekar vonsvikinn yfir þessu öllu saman, svo að lokum kemur í ljós að engan safety pilot vantaði! Þ.a.l. fór ég aftur upp á hótel og bora nú fast í nefið eftir allt þetta bull.
Til að bæta gráu ofan á svart, þá veit ég ekki hvenær ég á að fljúga næst og held ég að félagið viti það ekki heldur. Ég reyni hins vegar að láta fara vel um mig og hugsa til heimferðar sem verður í síðasta lagi á þriðjudag!
Kveðjur!

No comments: