Wednesday, August 30, 2006

Buenos Tartez

Jæja, nú er maður farinn út aftur og heimveran búin í bili. Hins vegar var tíminn heima nýttur heldur betur og karlinn búinn að gera við allar sprungur og mála allt glæsilega á þessum tíma í nýju íbúðinni. Ég verð bara enn og aftur að leirast!

Já, það liggur við að maður sé enn sveittur, þreyttur, en beittur og vel skeintur eftir þetta allt saman.
Mér héldu engin bönd, lagði á íbúð lokahönd og hélt svo aftur af stað út í lönd, verð vonandi sólbrúnn í framan.
Á meðan öllu þessu stóð, Liljan upplýsingum í sig hlóð, fór í próf og fékk sjö í einkunn!
Eftir það var gaman, því saman, fengum við málningu í framan, svo á innflutningspartýi verður engin seinkun.

Jæja, nú er nóg komið af bulli.

Það hefur mikið gengið á upp á síðkastið, Lilja brilleraði í hjúkkunni, reyndar sama hvað hún gerir, alltaf brill hjá henni.
Það er búið að ljúka öllu í T23 og næst á dagskrá er að flytja inn dót þegar ég kem heim eftir þessa útiveru.

Ég náði þó nokkrum sinnum að taka frí frá spasli o.þ.h. og fór t.d. að sjá snilldar tónleika með Messoforte á Menningarnótt. Þeir voru svo góðir að það fór nánast hrollur um mann þegar þeir spiluðu. Nokkur golfmót voru einnig á dagskrá og fór maður nú nokkrum sinnum ekki tómhentur heim, 2 bikarar komnir í safnið, var kominn tími á þá þar sem hinir voru orðnir full gamlir, þið skiljið. Jájá, heldur betur gott tímabil síðast. Reyndar er gaman að segja frá því að myndir eru af karlinum á www.golfmyndir.is, svolítið skrýtinn vefur, en venst og er í raun þvílíkt flottur, mæli með honum.



Eins og sjá má á myndinni skín einbeitingin úr augum manns, eye-of-the-tiger!!!

Ég verð nú einnig að minnast á það að ég kíkti ásamt Bertel, Hjalta og Grétari hjaltapabba, á landsleikinn um daginn, Ísland - Spánn, helvíti gaman á leiknum þó að 0-0 hefði verið niðurstaðan. Ég og Hjalti þeyttum lúðra eins og vindurinn en mikið óhapp átti sér stað í seinni hálfleik þegar hlutar af lúðri Hjalta rifnaði, þetta reyndist þó mikið happayndi því þá braut einn Spánverjinn gróflega af sér og nýttist þá lúðurinn til þess að púa á viðkomandi allan tímann eftir það, þannig að ef menn vilja púa einhvern niður í spað, þá mæli ég með að fá lúðurinn hans Hjalta lánaðan.

Leiðin liggur til Jeddah á föstudaginn, en á meðan hangi ég hér í Brussel þangað til. Von á Hjalta og Benna hingað á morgun og vonandi náum við aðeins að kíkja út á lífið (reyndar ekkert vonandi!!!).

Heyrumst öll hress fljótlega!

Tuesday, August 01, 2006

Guten Abend Damen und Herren

Jæja, þá er karlinn mættur til Frankfuhrt og urðu miklir og rosalegir endurfundir hjá mér, Hjaltanum og Rúnu. CNN var á svæðinu og tók myndir, því ég hafði ekki séð Hjaltann í heilar 2 vikur, þótti þetta mjög fréttnæmt og mikilvægt málefni og skilst mér að þetta verði sýnt á sama tíma og þegar sýnt verður frá endurfundum Norður- og Suður-Kóreubúa.
Rúnuna hafði ég hins vegar ekki séð mjög lengi og var gaman að sjá hana eldspræka og hressa í gær, því miður vorum við nú ekki alveg eins spræk í dag eins og vonir stóðu til en það verður bætt úr því fljótlega.
MIKIÐ ROSALEGA ER GOTT AÐ FÁ EITT SVONA ALVÖRU SCHNITZEL af og til!!! Það var svo ljúft í gær að það hálfa væri nóg, bara snilld að geta dottið í svona mat annað slagið. Svo miikið var étið að ég þurfti að fara í gym-ið í dag til að vega upp gagnvart áti gærdagsins. Annars er maður farinn að sakna heimahaganna, togar alltaf í mann þegar heimferð nálgast og ætla ég að gera allt sem ég get til að koma ástinni minni á óvart er heim er komið. Já, það verður eitthvað sniðugt.
Í dag var setið Emergency námskeið hérna hjá Atlanta, það var í fínu, frekar þurrt efni, en alltaf gott þegar svona er búið, á morgun fáum við svo að vita hvernig við komumst inn í flugvélina og svoleiðis, já, opnum hurðir, rennum okkur á rennibrautum og slökkvum elda og margt fleira, aksjón á morgun. Næstu dagar á eftir bjóða upp á fleiri námskeið með öllu tilheyrandi, það er í fínu lagi, sérstaklega á meðan Hjaltinn og Rúna eru í þessu líka. Snilld.
Maður er nefndur Mási, hringir allt í einu og þykist vera besti vinur manns, lætur ekki í sér heyra í marga mánuði, svo dúkkar bara upp símtal hérna í Frankfuhrt, hmmmm, eitthvað býr að baki hugsaði ég með mér, jújú, mikið rétt, karlinn ætlar auðvitað að sækja gleraugu fyrir systur hans á leðinni heim, ekki málið, en svo fór ég að hugsa málið, hmmm, ef ég læt systur Mása fá gleraugun, þá á hún auðvitað eftir að fá þvílíkt sjokk þegar hún sér Másann í réttu ljósi, nú er þetta stór spurning hvort þetta sé vinargreiði ;) Nú ætla ég að láta ykkur dæma hvað ég á að gera!
Systir hans sér hann svona í dag:

En ef ég læt hana fá gleraugun, þá sér hún loks hvernig Mási er sem er hér:


Jæja, þá hef ég lokið bullina af í bili! Kveðjur!