Tuesday, August 01, 2006

Guten Abend Damen und Herren

Jæja, þá er karlinn mættur til Frankfuhrt og urðu miklir og rosalegir endurfundir hjá mér, Hjaltanum og Rúnu. CNN var á svæðinu og tók myndir, því ég hafði ekki séð Hjaltann í heilar 2 vikur, þótti þetta mjög fréttnæmt og mikilvægt málefni og skilst mér að þetta verði sýnt á sama tíma og þegar sýnt verður frá endurfundum Norður- og Suður-Kóreubúa.
Rúnuna hafði ég hins vegar ekki séð mjög lengi og var gaman að sjá hana eldspræka og hressa í gær, því miður vorum við nú ekki alveg eins spræk í dag eins og vonir stóðu til en það verður bætt úr því fljótlega.
MIKIÐ ROSALEGA ER GOTT AÐ FÁ EITT SVONA ALVÖRU SCHNITZEL af og til!!! Það var svo ljúft í gær að það hálfa væri nóg, bara snilld að geta dottið í svona mat annað slagið. Svo miikið var étið að ég þurfti að fara í gym-ið í dag til að vega upp gagnvart áti gærdagsins. Annars er maður farinn að sakna heimahaganna, togar alltaf í mann þegar heimferð nálgast og ætla ég að gera allt sem ég get til að koma ástinni minni á óvart er heim er komið. Já, það verður eitthvað sniðugt.
Í dag var setið Emergency námskeið hérna hjá Atlanta, það var í fínu, frekar þurrt efni, en alltaf gott þegar svona er búið, á morgun fáum við svo að vita hvernig við komumst inn í flugvélina og svoleiðis, já, opnum hurðir, rennum okkur á rennibrautum og slökkvum elda og margt fleira, aksjón á morgun. Næstu dagar á eftir bjóða upp á fleiri námskeið með öllu tilheyrandi, það er í fínu lagi, sérstaklega á meðan Hjaltinn og Rúna eru í þessu líka. Snilld.
Maður er nefndur Mási, hringir allt í einu og þykist vera besti vinur manns, lætur ekki í sér heyra í marga mánuði, svo dúkkar bara upp símtal hérna í Frankfuhrt, hmmmm, eitthvað býr að baki hugsaði ég með mér, jújú, mikið rétt, karlinn ætlar auðvitað að sækja gleraugu fyrir systur hans á leðinni heim, ekki málið, en svo fór ég að hugsa málið, hmmm, ef ég læt systur Mása fá gleraugun, þá á hún auðvitað eftir að fá þvílíkt sjokk þegar hún sér Másann í réttu ljósi, nú er þetta stór spurning hvort þetta sé vinargreiði ;) Nú ætla ég að láta ykkur dæma hvað ég á að gera!
Systir hans sér hann svona í dag:

En ef ég læt hana fá gleraugun, þá sér hún loks hvernig Mási er sem er hér:


Jæja, þá hef ég lokið bullina af í bili! Kveðjur!

No comments: