TÝND MYNDAVÉL
BÚHÚHÚHÚÚÚÚÚÚÚ!!!!!!
Ég týndi myndavélinni minni, djöss maður, ótrúlegt! Hvernig fer maður að þessu. Skrepp til Miami í einn dag, fer að skoða borgina með Siggeiri vélstjóra, tek myndavélina með og týni henni. Þetta er ótrúlegt. Það liggur við að maður þurfi að hengja svona hluti aftan á afturendann á manni til þess að muna eftir hlutunum!!!!
Já, það lygilega er að við fórum í lestir í Miami og vorum að skoða okkur um. Kom í ljós að megnið af Miami borg er ansi óspennandi þar sem lítið er af menningu annarri en þeirri að 90% fólks þarna talar Spænsku. Hvað um það, vegna þessa tók ég engar myndir, hélt alltaf á myndavélinni í höndinni, þannig að þegar ég lagði hana frá mér e-s staðar, þá gleymdi ég henni, og nú auglýsi ég eftir digital myndavél í Miami, sjái nokkur maður myndavél þar, þá á ég hana!!!!!!!!
Annars styttist í heimkomu og hlakkar í manni að fara að takast á við hurðirnar og parketið, já, ekki laust við að "klaufabárðarnir" fari á kreik aftur, nema sá galli er á að þeir eru einungis til sýnis á Fálkagötu 14. Þetta verður stuð, enda fengið ábendingar héðan og þaðan um hvernig fara skuli best að þessu. "Efist eigi, trúin flytur fjöll" sagði maðurinn (eða er það kannski bara ég :-)) Jæja, bið að heilsa, kem heim á þriðjudagskvöldið!
Heil og sæl á meðan.
Thursday, October 13, 2005
Wednesday, October 05, 2005
Góðan dag
Jæja, þá er maður búinn að fara á fótboltaleik á Bernabau hér í Madrid auk þess sem maður hefur farið tvisvar til Tenerife sl. 2 daga. Þetta hefur ekki verið leiðinlegt, og hreint út sagt hin allra besta skemmtun. Til að segja alveg rétt frá, þá fórum ég og Hjalti í gönguferð um Madrid á laugardag, vitandi það að Bernabau leikvangur Real Madrid væri í nágrenninu ákváðum við að kíkja þangað með hjálp Ásgeirs co-ara hér á svæðinu. Rúllum við að framanverðum leikvanginum þar sem við komumst að því að uppselt er á leik morgundagsins, Real Madrid vs. Real Mallorca. Við stöndum þarna fyrir framan og veltum því fyrir okkur hvort við ættum að fara á leikinn, því hellingur af gaurum stóðu með miða þarna hjá okkur og reyndu að selja okkur þá á svörtu!
Eftir að hafa neitað einum kom annar og leist okkur ágætlega á þann gaur, enda sýndi hann okkur miða sem áttu að vera á besta stað og aðra á verri stöðum og allt á mismunandi verði. Jújú, við kaupum miðana á besta stað á vellinum, 55 Euro (þykir nú ekki mikið í þessum miðabransa) og allt klárt! Sælir og glaðir fengum við okkur nú einn kaldan á leiðinni heim.
Leið nú svo sú stund að fara þyrfti á völlinn. Ákváðum við að leggja af stað snemma á völlinn þar sem við þekktum auðvitað ekki mikið til þarna á svæðinu. Í svaka fínum fíling löbbuðum við að Bernabau, og þar við var hellingur af sölubásum með alls konar dóti og keypti karlinn sér auðvitað Real Madrid trefil og vekjara handa Lilju, þessi vekjari er reyndar manual, en það skiptir ekki máli því hann svínvirkar, já, ef hann virkar ekki, þá virkar ekkert í heiminum til þess að vekja fólk, það er alveg ljóst. Eftir að hafa kynnt okkur alla þá vekjara sem hægt var að fá enduðum við s.s. með einn hvorn fyrir leikinn.
Lá nú leiðin inn í stúku, jájá, "svæði 602E" sagði Hjalti og þóttist vita nákvæmlega hvert við ættum að fara. Alveg rétt, 602E stóð á miðanum og héldum við af stað þangað. Allt í einu taka við hverjar tröppurnar á fætur annari og ég veit ekki hvað. "Við áttum að vera fyrir miðju, þurfum við að labba upp til að fara niður aftur? Skrýtið" sagði ég. Á endanum fattaði ég að helvítis miða nissinn sem seldi okkur miðana plataði okkur svona svakalega, sendi okkur lengst efst upp í stúku, upp í horn vinstra megin á vellinum. Til að gefa góða skýringu hversu hátt við vorum, þá komu þarna Þjóðverjar, nokkrir saman og voru greinilega í fínum fíling, nema ein í hópnum hjá þeim, hún kemur inn í stúku og heldur svo fast í kærastann sinn að hann er örugglega með marblett í ár eftir þetta, jú, hún var svo lofthrædd að hún gat gersamlega ekki verið þarna í stúkunni og fór út af leikvanginum og missti þ.a.l. af þessum skemmtilega leik. Svona plataði nú nissinn okkur svakalega. Hins vegar var ekki hægt að kvarta, útsýnið fínt og sáum við allan völlinn og lágvaxnir menn fyrir framan okkur þannig að þetta kom bara á endanum vel út enda vorum við staðráðnir í að láta þetta ekki á okkur fá. Maður getur reyndar þakkað fyrir að hafa ekki lent í barnastúku eins og einn, og var sá maður 2 m hár, gaman fyrir börnin er það ekki :-) Jæja, nóg um það. Mikilvægast var að fótboltaleikurinn var rosalegur. Þvílík flugeldasýning sem Real Madrid var með á vellinum, annað eins hefur sjaldan sést. David Beckham átti stórleik auk þess sem Roberto Carlos dúndraði boltanum tvisvar í netið af svo miklu afli að ég held að þotumótor gæti ekki búið til jafn mikið hvín í boltanum. Boltinn hreinlega söng í netinu eftir spyrnu frá karlinum og það m.a.s. tvisvar. Real vann 4-0, já Mallorca menn áttu ekki séns í þessum leik. Beckahm lagði upp 3 mörk ogl allir sáttir. Zidane kom inn á og skemmti áhorfendum í 30 min með þvílíkum töktum að lengi verður í minni haft.
Eftir leik fylltust göturnar í Madrid af áhangendum sem þeittu bílflautur eða hrópuðu sigursöngva. Gaman að þessu öllu saman. Héldum við félagarnir heim á leið með viðkomu á Pizza Hut og allt var þetta hreinlega stór magnað.
Daginn eftir hélt Hjalti til Miami en ég til Tenerife og til baka, gerði það reyndar í gær líka og svo er bara stemmning fram að helgi, þar sem ég á nú nokkra daga í frí, reyndar óvænt, en ágætt.
Fleiri virðast hafa skemmt sér vel um helgina, Lilja mín skellti sér á ball í Eyjum og er ég nú að spá í að svara Árna Johnsen að sjómannasið því hann á ekkert að vera abbast upp á dömuna mína!!!!!!! Sjá mynd á Lilju bloggi! Neinei, bara grín.

Sunday, October 02, 2005
Sunnudagur
Já, hvað gerir maður á sunnudegi í Madrid, jú, maður fer á fótboltaleiik með frægasta (ekki alveg allra besta í augnablikinu) knattspyrnufélagi heims, allir halda að ég sé að tala um KR, en það er annað félag nánast jafn frægt í þessum heimi, og heitir það Real Madrid. Já, karlinn kominn með miða á leik í kvöld og nú verður sko stemmning. Beckham á eftir að hlýða á skipanir mínar frá hliðarlínunni og aldrei að vita nema hann setji eitt mark eða svo í leiknum í kvöld! Kemur í ljós, en alveg er ljóst að það verður gríðar góð stemmning með öllu tilheyrandi!
Annars hoppaði ég til Miami um daginn og hafði það gott í 1 sólarhring, gerði nánast ekki neitt, en sporðrenndi nokkrum kjúklingavængjum á Hooters. Eftir að hafa farið yfir pollinn frá Miami til Madridar í gærmorgun, skellti ég mér út á labb með Hjalta og Ásgeiri og lá leiðin að Bernabau leikvanginum þar sem okkur tókst að fá miða á besta stað á vellinum, á svörtu. 55 Euro með alles, get ekki beðið eftir að láta sjá mig þar. Eg ætla að lata Hjalta öskra og öskra, m.a.s. jafn hátt og ég tala í símann, þá heyrist nú vel í mönnum þegar menn byrja á því!
Annars læt ég þetta duga í bili, adios amigos!!!!