Thursday, March 30, 2006

Góðan dag góðir hálsar

Jæja, lítið að frétta af karlinum sjálfum en þó eitthvað, jú, maður puðar og puðar í "gym-inu" alveg eins og ég veit ekki hvað því jú eitthvað verður maður að sýna einkaþjálfaranum þegar maður kemur heim á skerið ;)
Annars vil ég þakka fyrir prýðisþátttöku í spurningaleiknum steinasteik þar sem sumir kanditatar fóru fram úr björtustu vonum í stigagjöfinni, má þar nefna mömmu, Bjarna Rafn, og Birki megamassa! Já, þetta kom bara vel út og aldrei að vita nema annað svipað kunni að læðast á þetta blogg seinna meir, verst er að nú hef ég verið krafinn um verðlaun í þessari keppni, verðlaun!!! Ég lagðist í þunga þanka hver verðlaun í svona magnaðri keppni ættu að vera og komst að því að það má ekki vera neitt slor, því þetta jafnast auðvitað á við "Meistarann" sem Logi Bergmann stýrir á Stöð2 ;) Þ.a.l. hef ég ákveðið að verðlaunin séu fyrir alla sem tóku þátt, þau eru ábending á þetta skemmtilega lag "Ballantines" sem sungið er af Valgeiri Guðjóns og Köntrísveit Baggalúts!!!! Geri aðrir betur :)
Þetta er snilldar lag sem aldrei verður of oft spilað ;)
Annars virðist heimurinn vera að fara fjandans til þessa dagana, Ítalir að sýna gestrisni (síðan hvenær!!!!) með því að bjóða Afghana friðhelgi þar, Apple er í máli við Apple, fjöldamótmæli í USA gegn lögum um ólöglega innflytjendur sem endar á því að nýr hálfgerður Kínamúr verður settur á milli Mexico og USA 1000km langur takk!!! Ekki í fyrsta skipti sem Kaninn fer í ruglið sem sést best á því að John Livingston Borgarstjóri Lundúnaborgar er æfur í sendiherra Bandaríkjanna í Bretlandi því hann neitar að borga umferðarskatta sem allir greiða þegar þeir fara á eigin bíl inn í London, er þetta ekki týpískt dæmi um bullið, sérstaklega þar sem þessi álfur er nú mikill vinur Georgs gírlausa þarna í Camp David!!!
Hins vegar er margt gott, eins og tvennir stórtónleikar heima fyrir sem maður missir af, Katie Melua á þar efsta sætið ásamt Baggalútsmönnum, já, Baggalútur á NASA annað kvöld á miðnætti, og Katie Melua verður í höllinni að ég held ?
Nú er maður farinn að hlakka til að koma með sólina á klakann og skella sér í góðan gír með elskunni, og taka eitt próf þ. 7. apríl í skólanum. Fínt mál og hlakka til að sjá ykkur öll!
Auf Wiedersehen

Wednesday, March 29, 2006

Góðan dag (þó minn sé frekar glær)!

Jájá, kominn til Frankfuhrt þar sem maður hitti auðvitað helling af fólki um leið og maður vaknaði um 2-leytið í gærdag, löng og ströng ferð frá USA að baki og karlinn var bara nokkuð hress. Svo hitti ég Sólon og Rúnu sem ég hafði ekki séð í óratíma, það þýddi auðvitað að maður þurfti að fara út að borða með öllu tilheyrandi. Fín skemmtun en dróst þó heldur betur a langinn og fyrr en varði sló klukkan 2 að morgni. Vakna núna frekar slappur eftir þessa fínu ferð, en þegar öllu er á botninn hvolft var þetta bara meiriháttar gaman.
Jæja, nóg af því.
Árshátíðir eru þessa dagana í fullum gangi, hef ég sjálfur farið á eina og fannst mér dansinn duna og allt í góðu, nema hvað að þegar ein manneskja steig á mig á manndrápsháum hæl finnst mér vert að bjóða upp á smá disco-danskennslu! Eins og þið vitið er þetta nú ekki flókið, en þetta er mitt vísindalega framlag til þess að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur.
Að lokum kveðjur til allra heima, heimkoma 3. april!

Tuesday, March 21, 2006

Góðan dag dömur og herrar og perrar og allur andskotinn þar á milli.
Ég er hér að reyna að blogga, með Gogga, af alkunnri snilli.
Það er þó ekki mikið sem vikið getur að í dag,
ekki er stritað, hvað þá ritað, nema kannski lítið lag.
Hjalti er ekki með verki, en fór samt í bað,
segi ekki meir um það, en honum veitti ekki af (djók).
Ég hef frá engu að segja, því fer ég að þegja, og út af þessu bulli fer ég að beygja!
Jæja, nóg er komið af þessu bulli, ég verð hins vegar að biðja ykkur öll að fara á á link-inn hér að neðan og taka þátt í smá spurningarugli sem ég var að búa til um egoistann mig!
Að lokum er orðið ljóst að ég flýg annað kvöld til NY, verð þar í 4 daga og fer svo til Chicago í 3 daga, kem svo til Frankfuhrt 8 dögum eftir morgundaginn.
Minni á spurningakeppnina Steinasteik, sem er á eftirfarandi link.
Steinasteik

Friday, March 17, 2006

Here comes the sun!
Svo hljómar fyrsta laglína í hinu fræga samnefnda lagi bítlanna. Mikið var
yndislegt að vera heima og hugsa til þessa lags þegar maður vaknaaði á
morgnana, af hverju? jú, því það er ekki annað hægt en að taka eftir því hversu daginn er farinn að lengja! Já, svo eru meira að segja jafndægur núna þ. 21.
þessa mánaðar, og það er nú ekkert smá stuð þegar dagurinn er loks orðinn lengri en
skilgreind nótt. Magnað!!!!!

Help!
Svo hljóðar annað lag með bítlunum. Já, ég þarf hjálp, hjálp við að koma
hinum nýja Yak-18T sem við félagarnir vorum að festa kaup á, í gott sk?li,
viti menn um skýli fyrir nýja Yak-inn endilega látið champ-ann vita.

Yesterday,
Já, hann er svo "far away". Mikið óskaplega var gaman í gær, mikið stuð með
Hjalta og Arne Krogen hér í Neu Isenburg, en við komum einmitt hingað á þriðjudaginn síðasta og ákvaðum að taka næturlífið aðeins út í gærkvöldi, sátum og drukkum öl og fengum okkur fínar kótilettur með sem brögðuðust eins og best væri á kosið!
Hún sló þó ekki út lambasteikina sem ég bjó til fyrir viku síðan þar sem karlinn eldaði af einskærri snilli heilt læri til að troða í gogginn á glorhungraðri fjölskyldunni, ekki laust við að mamma væri hrædd um að ég væri að slá hana út í kokkinum, en ég auðvitað fullvissaði hana um að svo færi nú aldrei ;)

8 days a week
Já, ég vinn og vinn, eins og skepna, sit á hótelinu og er standby með öllu tilheyrandi og hef ekki gert handtak síðan ég kom út, hins vegar þegar maður er heima í fríi, þá er brjálað að gera í "Yök-unum" nánast 8 daga vikunnar, svo mikið og gaman er að því að hafa 2 Yak-a, alger snilld. Ég set inn myndir af þeim um leið og ég fæ nógu góðar myndir af þeim, þær sem ég er með eru ekki alveg nógu góðar
til þess að setja hér inn. En vinnan fer ekki bara í Yak-ana, heldur erum
ég og Birkir (sem er hel-cut-a?ur!!!) með einkaþjálfara sem tekur okkur svo
rosalega í gegn, þannig að það er ekki nokkur leið að fá engar harðsperur.
Fætur, hendur, axlir og alles, fá svo hrikalega útreið að það styttist í að við verðum alveg hrikalega massaðir með öllu sem því fylgir, sem er rosalegt því við vorum í engu smá formi fyrir ;)

Paperback Writer
Hmmm, magnað max. Gott lag, sem minnir mig óneitanlega á helvítis dagblöðin sem koma inn í hólfið hjá mér óumbeðið! Dagurinn hefst á því að henda heilu frumskógunum af pappír í ruslið, án þess að maður nokkurn tíma líti á það sem stendur á honum, ég vil þetta ekki og er þreyttur á þessum fjanda! Ég er áskrifandi að Mogganum en ekki Fréttablaðinu! Hvað þá Blaðinu, burt með þetta helv....

Nowhere Man
Ekki laust við að hann hafi verið á svæðinu í dag, hvernig, jú, einn hér var svo glær í dag að hann sást varla, þannig að ég var í stökustu vandræðum með hann.

Imagine
Ég segi nú bara eins og Megas í góðu lagi um Krókudílamanninn, "Ímyndið ykkur bara", já, ímyndið ykkur þegar herinn fer burt, þá fæ ég kannski að taka mynd á Keflavíkurvelli án þess að fá hermannn með svaka hólk miðandi á mig eins og terrorista! "Ímyndið ykkur bara" ef herinn hefði ekki komið á frónið. Þá værum við væntanlega með eigin her og alles og Landhelgisgæslan ekki í fjárhagsvanda!!!
"Ímyndið ykkur bara ef ekki hefði komið hún Laufey", hmm, hún væri þá kannski ekki lengur hrein mey :-)

When I´m 64
Lofa að blogga aftur fyrir það ;)