Thursday, March 30, 2006

Góðan dag góðir hálsar

Jæja, lítið að frétta af karlinum sjálfum en þó eitthvað, jú, maður puðar og puðar í "gym-inu" alveg eins og ég veit ekki hvað því jú eitthvað verður maður að sýna einkaþjálfaranum þegar maður kemur heim á skerið ;)
Annars vil ég þakka fyrir prýðisþátttöku í spurningaleiknum steinasteik þar sem sumir kanditatar fóru fram úr björtustu vonum í stigagjöfinni, má þar nefna mömmu, Bjarna Rafn, og Birki megamassa! Já, þetta kom bara vel út og aldrei að vita nema annað svipað kunni að læðast á þetta blogg seinna meir, verst er að nú hef ég verið krafinn um verðlaun í þessari keppni, verðlaun!!! Ég lagðist í þunga þanka hver verðlaun í svona magnaðri keppni ættu að vera og komst að því að það má ekki vera neitt slor, því þetta jafnast auðvitað á við "Meistarann" sem Logi Bergmann stýrir á Stöð2 ;) Þ.a.l. hef ég ákveðið að verðlaunin séu fyrir alla sem tóku þátt, þau eru ábending á þetta skemmtilega lag "Ballantines" sem sungið er af Valgeiri Guðjóns og Köntrísveit Baggalúts!!!! Geri aðrir betur :)
Þetta er snilldar lag sem aldrei verður of oft spilað ;)
Annars virðist heimurinn vera að fara fjandans til þessa dagana, Ítalir að sýna gestrisni (síðan hvenær!!!!) með því að bjóða Afghana friðhelgi þar, Apple er í máli við Apple, fjöldamótmæli í USA gegn lögum um ólöglega innflytjendur sem endar á því að nýr hálfgerður Kínamúr verður settur á milli Mexico og USA 1000km langur takk!!! Ekki í fyrsta skipti sem Kaninn fer í ruglið sem sést best á því að John Livingston Borgarstjóri Lundúnaborgar er æfur í sendiherra Bandaríkjanna í Bretlandi því hann neitar að borga umferðarskatta sem allir greiða þegar þeir fara á eigin bíl inn í London, er þetta ekki týpískt dæmi um bullið, sérstaklega þar sem þessi álfur er nú mikill vinur Georgs gírlausa þarna í Camp David!!!
Hins vegar er margt gott, eins og tvennir stórtónleikar heima fyrir sem maður missir af, Katie Melua á þar efsta sætið ásamt Baggalútsmönnum, já, Baggalútur á NASA annað kvöld á miðnætti, og Katie Melua verður í höllinni að ég held ?
Nú er maður farinn að hlakka til að koma með sólina á klakann og skella sér í góðan gír með elskunni, og taka eitt próf þ. 7. apríl í skólanum. Fínt mál og hlakka til að sjá ykkur öll!
Auf Wiedersehen

No comments: