Góðan dag gott folk nær og fjær sem endranær
Jæja, maður gekk til mín í dag, fullur af gasi (ekki að tala um sjálfan mig ;) og sagði mér að hann væri svo góður í ballskák að það hálfa væri nóg, nú væri svo komið að ég þyrfti að mæta og spila við hann því hann ætti harma að hefna síðan síðast (sem ég persónulega mundi ekki eftir). Jæja þá, eftir feitan kaffibolla á Thorvaldsen var ákveðið að ég og þessi maður myndum útkljá þetta mál eftir kvöldmat. Ég mæti á svæðið og sé þá þetta líka þvílíka professional gaur, með eigin kjuða og alles, m.a.s. eigin krít!!! Ég sá fyrir mér mikið og erfitt verkefni því þessi maður virtist vera þvílíkt heitur (að hans eigin sögn). Jæja, það er byrjað, gaurinn segir “þú færð fyrsta “break-ið” félagi” og ég opna fyrsta rammann með stæl, opnaði reyndar með svo miklum stæl gaurinn gersamlega átti ekki séns, jæja, 1-0 sagði hann og gerði ráð fyrir því að þetta væri nú ekki alvarlegt, svo leið tíminn og það varð 2-0, 3-0, 4-0, 5-0, 6-0, þegar þarna var komið við sögu var gaurinn orðinn svolítið pirraður en ég reyndi að róa hann og sagðist gefa honum mjólkurglas ef hann ynni einn leik ;) Jæja, áfram gakk, 7-0, varð nú gaur orðinn verulega sár, “ég fer ekki fyrr en ég er búinn að vinna einn leik”, 8-0, “hættur”!!!!!!! Tekið skal fram að á endanum bauð hann mér svo heim í kaffi sem eru auðvitað bestu verðlaun sem hugsast getur ;) Takk fyrir það félagi!
Að öðru, styttist nú í að karlinn eigi afmæli, það verður ekki haldið upp á það með bingó-kvöldi eins og mér sýnist Birkir vera að plana sitt ;) Það verður eitthvað gert en það verður tilkynnt síðar.
Kærlig hilsen!!!
No comments:
Post a Comment