Saturday, July 23, 2005

Jæja gott fólk, nú vil ég minna ykkur öll á það að Þjóðhátíðin er að fara í gang eftir einungis 6 daga!!!! Já, loksins er besta helgi ársins að fara í gang með tilheyrandi söng og gleði, en gleðin verður auðvitað mest á Þjóðhátíð í Eyjum þar sem menn koma saman og syngja og hafa gaman af þessu lífi! Já, lífið er yndislegt!
Annars er það að frétta að ég er staddur í Orlando, en fer reyndar héðan í eftirmiðdaginn í dag, mæti til Gatwick á sunnudagsmorguninn aftur. Svo er bara heimferð á mánudaginn og vonast ég til að fá sæti með hádegisvélinni!
Svo er auðvitað bara spilað golf og farið á Þjóðhátíð um næstu helgi.
Bið að heilsa öllum á klakanum!

Tuesday, July 19, 2005

Góðan dag gott fólk!

Jæja, nú er svo lítið að gera hérna í South Terminal-inu í Gatwick að það hálfa væri nóg. Ég og Hjalti ákváðum að taka róttækar hugmyndir til athugunar og reyna að finna okkur eitthvað að gera. Já, þetta gekk bara ekki lengur að láta sér leiðast á þessu leiðinda Hilton hóteli hérna í Gatwick. Eins og sumir vita, keypti maður sér svaka trimmara til þess að þurfa ekki að eyða 1000 kalli í klippingu alltaf hreint fyrir mann eins og mig sem ekkert er varla á til að klippa. Mér og Hjalta til mikillar skemmtunar tókum við trimmarann og rökuðum okkur all svakalega. Ég sagði við hárskerann að bara rétt að snyrta þetta en þetta var útkoman!!!!!!!!!!!!!
Hins vegar var nú ekki mikið til að horfa á eftir, alla veganna er restin af gamla kraganum mínum farin eins og sjá má!!!!
Jæja, ég verð að hæla hárgreiðslumeistaranum sem átti nú bara rétt að snyrta þetta. Hér er maðurinn, en ég tek það fram að meðan á þessu stóð mynti þessi maður mig einna helst á tannlækninn í litlu hryllingsbúðinni!!!! Á þessari mynd má nú sjá að karlinn er nú svona aðeins að spekúlera hvort tannlæknirinn (hárskerinn) hafi snyrt þetta of mikið.


Saturday, July 16, 2005

Jæja, sæl öll saman!

Já, loksins er maður þá kominn til víkur sem kennd er við Gat, spurning um hvort GATT tollasáttmálinn hafi haft áhrif á nafn þessa staðar, en ég held samt ekki!
Hvað um það, kominn aftur á Hilton hótelið, þ.e.a.s. bý aftur í Terminal South í Gatwick. Hér er gríðarlega mikið að gera fyrir venjulegan mann eins og mig, göngutúr um bílastæðið fyrir framan flugvöllinn, og ef maður vill fara í almennilega skemmtigöngu til þess að sýna sig og sjá aðra, þá getur maður tekið færibandið upp á 2. hæð hússins og tekið labbið þar. Það labb tekur um 10 mínútur. Ef menn vilja svo fara í lúxus túrinn hér í kring, þá er það, það sama og aðurnefnt, með annaðhvort viðkomu á McDonalds eða Starbucks. já, svona er nú lífið í Gatwick. Hér er nákvæmlega ekkert að gera, ekki einu sinni gym á hótelinu til að reyna að þykjast gera eitthvað!
Annnars er það nú að frétta að ég er að fljúga til Glasgow á morgun, verð þar eina nótt og kem svo til baka aftur! Það verður fínt, þar sem ég ætla að gera allt í mínu valdi til þess að fara og horfa á British Open á St. Andrews! Já, karlinn ætlar að fara og horfa á snillingana dúndra kúlunni eitthvað svipað langt og ég geri ;)
Að lokum, minni ég á, að ég kem heim 25. júlí, og er verslunarmannahelgin þar strax eftir að ég kem heim, þá fer ég til Eyja ásamt henni Lilju minni, og vil ég fá að vita hverjir eru í þeim fíling að kíkja þar við um þá helgi.
Að lokum auglýsi ég hér með aftur email-addressuna mína nýju, já, ný addressa fyrir ykkur öll, steini747@mac.com .
Chao for now!

Thursday, July 14, 2005

Góðan dag gott fólk!


Jæja, sár og svekktur er maður eftir gærdaginn!!! Já, eftir 2 klst. akstur til Cocao Beach Florida, til þess að sjá geimskot frá Cape Canaveral, þá ákváðu NASA menn að hætta við og bíða með að skjóta skutlunni upp um hríð. Það þýddi auðvitað að maður vissi ekki alveg hvað maður átti að gera við sjálfan sig. En svo fór nú að hvítasti maður heims, fór úr að ofan og lagðist í sandinn og hafði það gott um hríð, eða þangað til að húðin á mér var orðin svo rauð að rækja væri orðin ansi hrifin hefði hún séð mig í nærmynd. Hvað um það, þarna vorum við, nokkuð stór hópur, á nokkrum bílum og við gerðum Hilton hótelið á Cocoa Beach að bækistöð, þar sem fólk sat í sólbaði og fékk sér hressingu eftir að hafa klárað strandarfílinginn.
Leitt með geimskotið en það verður vonandi bara einhvern tímann seinna. Hvað um það, góð skemmtun og mikið fjör. Á morgun er förinni heitið til Glasgow og svo Gatwick (sama dag), þannig að maður verður kominn til Gatwick snemma á laugardagsmorgun.
Kveðjur!

Tuesday, July 12, 2005

Góðan og blessaðan daginn!!!!

Ég hef verið afskaplega dapur við að setja inn ný post á bloggið hjá mér upp á síðkastið. Það er kannski ekkert skrýtið þar sem tölvan mín gamla er orðin ansi þreytt og internetið var niðri heima hjá mér um hríð. Hins vegar er komin ný tíð þar sem tengingar nets virka um heim allan (m.a.s. í íbúðinni hjá mér loksins) og einnig er ég búinn að kaupa mér nýja tölvu. JÁJÁ, tölvu, snilldar macintosh tölvu sem er svo mikil snilld að ég er ekki enn búinn að komast yfir það!
Jájá, karlinn er nefnilega í USA að bora í nefið því lítið er um flug hjá mér þessa dagana. Það er hins vegar ok hérna því dollarinn er lágur í krónum talið og verðin hér því tiltölulega lág, og hægt að gera góð kaup. Auk þess nýt ég snilldar félagsskapar hjá honum Hjalta og borum við í nefið saman eftir mannlegri getu, reyndar held ég að Hjalti hafi borað aðeins og langt því úrillur varð hann í morgun, kannski ekkert skrýtið eftir 20 símtöl um miðja nótt til að halda honum vakandi, Atlanta tók nefnilega upp "Halda Hjalta vakandi pólitík" í gærkveldi, þar sem hann átti að vera á 20 stöðum á sama tíma. MAGNAÐ MAX!
Allt lítur út fyrir það að ég fari héðan frá Orlando á föstudaginn næsta, og fljúgi héðan til Glasgow og svo yfir til Gatwick. Ekkert mál fyrir Jón Pál, geri það og reyni svo að fljúga aðeins meir!!! Annars farinn að hlakka mikið til verzlunarmannahelgarinnar þar sem mikið fjör verður fyrir sunnan meginlandið í litlum Eyjum sem ráða heiminum og kallaðar eru Vestmannaeyjar, en sumir kalla þær Alcatraz og sumir kalla þær Bestmannaeyjar! Látum seinna orðið duga í þetta sinn.
Annars er það helst að heimför er væntanlega 26.júl og karlinn strax farinn að hugsa um hvað gera skuli.
Svo er aldrei að vita nema maður læðist á yak-inum sínum til Múlakots um versl.m.helgina líka! Já, taki nokkur "low-pöss" í Múlakoti!!!
Á morgun er ég með bílaleigubíl til þess að keyra niður að austurströndinni, nánar tiltekið Cocoa Beach, þar sem ég ætla að sjá geimskotið frá Cape Canaveral á morgun, Hjalti ætlar að vera með mér í för, þannig að á morgun hefur a.m.k. eitthvað að gera.
Kveð í bili og kveðjur til allra!!!