Góðan og blessaðan daginn!!!!
Ég hef verið afskaplega dapur við að setja inn ný post á bloggið hjá mér upp á síðkastið. Það er kannski ekkert skrýtið þar sem tölvan mín gamla er orðin ansi þreytt og internetið var niðri heima hjá mér um hríð. Hins vegar er komin ný tíð þar sem tengingar nets virka um heim allan (m.a.s. í íbúðinni hjá mér loksins) og einnig er ég búinn að kaupa mér nýja tölvu. JÁJÁ, tölvu, snilldar macintosh tölvu sem er svo mikil snilld að ég er ekki enn búinn að komast yfir það!
Jájá, karlinn er nefnilega í USA að bora í nefið því lítið er um flug hjá mér þessa dagana. Það er hins vegar ok hérna því dollarinn er lágur í krónum talið og verðin hér því tiltölulega lág, og hægt að gera góð kaup. Auk þess nýt ég snilldar félagsskapar hjá honum Hjalta og borum við í nefið saman eftir mannlegri getu, reyndar held ég að Hjalti hafi borað aðeins og langt því úrillur varð hann í morgun, kannski ekkert skrýtið eftir 20 símtöl um miðja nótt til að halda honum vakandi, Atlanta tók nefnilega upp "Halda Hjalta vakandi pólitík" í gærkveldi, þar sem hann átti að vera á 20 stöðum á sama tíma. MAGNAÐ MAX!
Allt lítur út fyrir það að ég fari héðan frá Orlando á föstudaginn næsta, og fljúgi héðan til Glasgow og svo yfir til Gatwick. Ekkert mál fyrir Jón Pál, geri það og reyni svo að fljúga aðeins meir!!! Annars farinn að hlakka mikið til verzlunarmannahelgarinnar þar sem mikið fjör verður fyrir sunnan meginlandið í litlum Eyjum sem ráða heiminum og kallaðar eru Vestmannaeyjar, en sumir kalla þær Alcatraz og sumir kalla þær Bestmannaeyjar! Látum seinna orðið duga í þetta sinn.
Annars er það helst að heimför er væntanlega 26.júl og karlinn strax farinn að hugsa um hvað gera skuli.
Svo er aldrei að vita nema maður læðist á yak-inum sínum til Múlakots um versl.m.helgina líka! Já, taki nokkur "low-pöss" í Múlakoti!!!
Á morgun er ég með bílaleigubíl til þess að keyra niður að austurströndinni, nánar tiltekið Cocoa Beach, þar sem ég ætla að sjá geimskotið frá Cape Canaveral á morgun, Hjalti ætlar að vera með mér í för, þannig að á morgun hefur a.m.k. eitthvað að gera.
Kveð í bili og kveðjur til allra!!!
No comments:
Post a Comment