Thursday, July 14, 2005

Góðan dag gott fólk!


Jæja, sár og svekktur er maður eftir gærdaginn!!! Já, eftir 2 klst. akstur til Cocao Beach Florida, til þess að sjá geimskot frá Cape Canaveral, þá ákváðu NASA menn að hætta við og bíða með að skjóta skutlunni upp um hríð. Það þýddi auðvitað að maður vissi ekki alveg hvað maður átti að gera við sjálfan sig. En svo fór nú að hvítasti maður heims, fór úr að ofan og lagðist í sandinn og hafði það gott um hríð, eða þangað til að húðin á mér var orðin svo rauð að rækja væri orðin ansi hrifin hefði hún séð mig í nærmynd. Hvað um það, þarna vorum við, nokkuð stór hópur, á nokkrum bílum og við gerðum Hilton hótelið á Cocoa Beach að bækistöð, þar sem fólk sat í sólbaði og fékk sér hressingu eftir að hafa klárað strandarfílinginn.
Leitt með geimskotið en það verður vonandi bara einhvern tímann seinna. Hvað um það, góð skemmtun og mikið fjör. Á morgun er förinni heitið til Glasgow og svo Gatwick (sama dag), þannig að maður verður kominn til Gatwick snemma á laugardagsmorgun.
Kveðjur!

No comments: