Wednesday, February 23, 2005

Selamat sore!!!

Jaeja, godan og blessadan eftirmiddag.

Ja, nu eru jolin ad koma thvi ad jolasveinninn hann Champi er a leidinni heim fra Indonesiu eftir 6 klst. Ja, heimkoma er aaetlud kl. 2300 GMT i Keflavik, thad er fimmtudag!!!!!!!!
Jibbi, mikid verdur gaman tha, kerti og spil, kerti og spil, og allir eru ad kvedast a eda thannig.
Ja, eg er spenntur ad koma heim og kikja a lidid, thad verdur katt og hjalla og eg var ad sja a bestu vefsidu heims (a eftir thessu bloggi audvitad) www.krreykjavik.is ad thad er salarball thann 4. mars og skylda ad maeta a svoleidis snilld!!!!!! Their sem ekki maeta eru bara h... au.... en forum ekki nanar ut i thad!!!
Ja, karlinn a leidinni og sattur vid lifid. Madur a eftir ad sakna Medan thvi her hefur verid svo gott ad vera ad thad halfa vaeri nog. Ollu folki her i thessari borg faeri eg her med allar minar bestu kvedjur og thakkir fyrir allt (verst ad thad skilur ekkert islensku!!!!) :-)
Hlakka til ad sja ykkur oll,
kved i bili!!!
Heim, yahooooooooo!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Friday, February 18, 2005

Halló halló eða eins og sagt er hér eftir hádegi "Selamat sore (Good afternoon)! Magnað að við Íslendingar segjum aldrei góðan eftirmiðdag, kannski vegna þess að það er óþjált, góð spurning, gætum við ekki sagt "geftirmiðdag", "góðan miðdag eða "góðmiðdag" eða jafnvel eitthvað annað eins og "eftirmiðdagur verði þér góður", nei, nú er þetta komið út í tóma þvælu, en ég lýsi samt yfir almennri samkeppni um góða þýðingu á selamat sore = good afternoon yfir á íslensku!

Jæja, nú er kátt á hjalla, ég er búinn í Hajj-inu í ár!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Jibbí jæjæ jibbí jibbí jæ,
Jibbí jæjæ jibbí jibbí jæ,
Jibbí jæjæ jibbí jibbí jæjæ,
jibbí jibbí jæjæ,
jibbí jibbí jæ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Einnig er ég mjög ánægður því staðfest er að peyji dauðans er kominn í FFF!!! Sem er auðvitað alger snilld því hann er næstum því jafn mikill snillingur og ég!

Jæja, nóg af ego-i, heimför er ekki alveg klár, mér skilst að ég geti farið heim þegar ég vil, en ég er með svo mikinn farangur að ég er alveg á báðum áttum hvort ég eigi að fara heim með Garuda eða bíða eftir ferjuflugi Atlanta sem verður héðan næsta miðvikudag, reyndar er ég að spá í að fá mér í glas í kveld og fagna þessum tímamótum og spila svo golf fram á miðvikudag og notfæra mér flugið með Atlanta á miðvikudaginn kemur, þetta þýðir að maður verður mættur til Thule á föstudaginn næsta og verð heima í mánuð. Mikið óskaplega væri gaman ef Birkir og aðrir Atlanta menn væru saman í fríi á þeim tíma og gætu málað bæjinn rauðan áður en við hjálpum svo Hjalta að mála svefnherbergið sitt vínrautt, en eins og fólki er kunnugt skoraði ég á hann að mála svefnherbergið vínrautt, og ef það verður ekki gert, þarf hann að tilkynna byggingaryfirvöldum í Kópavogi um það að hann muni byggja vatnsrennibraut í stofunni í nýju íbúðinni og fá til þess tilskilin leyfi af bæjaryfirvöldum. Af þessu leiðir að vínrautt svefnherbergi er málið :-)
Eg er ánægður með viðtökur áður eftirlýstra manna hér á síðunni og ég vil að sjálfsögðu óska Bjarna Rafn Garðarssyni til hamingju með nýju íbúðina sína, áskorun á þig Bjarni minn kemur innan tíðar!!! Svo þarf maður að plana ferð til Eyja og sýna eyjamönnum hvernig hlutirnir eigi að vera! Hins vegar lýsi ég eftir Ómarinum, hvar er sá maður staddur í þessari veröld, er kannski vesöld hjá honum eða hvað, er hann kannski á leið til Bluebird? Nú skilst mér að Ice hafi keypt það, naumast hvað ísaldarmennirnir kaupa flugfélög þessa dagana, alveg rosalegt!!!
Jæja, ég blogga eitthvað meira síðar í dag, en lýk þessu með því djúpt kveðna kvæði:

Jæja, nú er kátt á hjalla, ég er búinn í Hajj-inu í ár!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Jibbí jæjæ jibbí jibbí jæ,
Jibbí jæjæ jibbí jibbí jæ,
Jibbí jæjæ jibbí jibbí jæjæ,
jibbí jibbí jæjæ,
jibbí jibbí jæ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Thursday, February 10, 2005

Semat malam (goda kveldid)!

Jaeja, nu er ad styttast i lok thessa Hajj og bidur madur thess med othreyju ad koma heim og skala vid hvern thann mann sem vill vid mig skala ( hver vill ekki skala vid mig). Eg er buinn ad uppgotva thad ad Hajj-inu her lykur thann 23. feb og thad kveld mun velin her vera ferjud til Manston i Englandi og mun eg vera farthegi i theirri skemmtilegu ferd. Thad er nu svo langt sidan madur var heima sidast ad thad liggur vid ad madur verdi vaeminn og spili lagid med Sir Paul "The long and winding road" svona annad slagid thvi oneitanlega er kominn sma spenningur i mann ad koma heim.
Sit her i Medan og drekk yndislega kaffid her sem er svo gott ad madur tharf ad passa sig a thvi ad lenda ekki i kaffivimu eftir nokkra bolla. Thad er gott java-kaffid :-) Eg efast reyndar um ad Petur Geir se sammala thvi ad su kaffitegund se saemileg en eg fullvissa adra um thad ad svo er.
Naesta flug er a laugardag, aftur til Madinah, eg vona ad their seu bunir ad laera bodordin 10 thvi eg aetla sko ad hlyda thessum monnum yfir thangad til thad er komid (hehehe) :-)
Eg aetla i golf a morgun i minum 30 stiga hita herna og vona eg ad menn geti gert eitthvad svipad i snjonum heima a froni :-)
Kved i bili!!!

Sunday, February 06, 2005

Góðan daginn

Hvað getur maður sagt þegar maður hefur verið með algerlega uppiskroppa með efni til að skrifa um upp á síðkastið, jú, maður getur ruglað eitthvað um staðreyndir lífsins, eins og t.d. maðurinn sem skrifaði: "Wherever possible, print a woman´s age" :-) og svo snillingurinn sem sagði: " Það væri margt verra en dauðinn, jú, hefurðu einhvern tímann eytt kvöldstund með tryggingasölumanni!
Ég hitti mann í Jeddah þegar ég var þar í fyrradag, hann er alger snillingur enda vinnur hann hjá Atlanta! Þessi maður heitir því skemmtilega nafni Heng Teng Teck, er frá Malasíu og er flugvélstjóri hjá okkur. Er hann mikill golfari og bauð hann mér næst þegar ég kem til KL að keyra mig út um allt og spila alla þá velli sem væru í boði í kringum KL, gaf hann mér info um hvernig maður getur keypt sér kort og spilað 10 velli án auka kostnaðar, þ.e. svona hálfgert svæðiskort, engin spurning að þetta verður gert næst þegar ég verð í KL, vona ég reyndar að það gerist strax eftir Hajj, því KL er ekki nema 30 min flug frá Medan.
Við og fleiri merkismenn vorum að ræða saman í morgunmat í Jeddah í fyrradag og sagði hann mér þá að hann vann einu sinni fyrir Nippon airlines, en það er japanskt flugfélag. Sagði hann okkur frá því, sem ég og hinir vissum alls ekki og mér fannst stórmerkilegt en það er að menn hneigja sig mismikið gagnvart öðrum mönnum þar á bæ eftir því hversu mikilsverður maðurinn er sem þú ert að hneigja þig fyrir. Menn vita auðvitað að það er almannasiður þar á bæ að hneigja sig litillega þegar menn hittast, en nú veit ég að ef ég hitti Junichiro Koizumi forsætisráðherra Japan, þá fæ ég örugglega þursabit, því hann er svo mikilsverður að ég þarf að beygja mig svo mikið í bakinu til að hneigja mig réttilega fyrir honum, þetta finnst mér algerlega magnaður hlutur, get ekki sagt annað. Þannig að þeir sem vilja ekki fá í bakið skulu bara hanga með lítilsverðum mönnum í Japan, nei ég segi svona :-) Best að fara að æfa bakið :-)
Annars er allt í stakasta lagi hér í Medan, flaug í gær frá Jeddah til Jakarta, svaf í 4 tíma í Jakarta og flaug svo með Garuda yfir til Medan aftur. Það er svo ljúft og gott hér í Medan að það hálfa væri nóg, lífið auðvelt og þægilegt og allt hræódýrt. Fólkið hér alltaf jafn vingjarnlegt og skemmtilegt þannig að hér er alltaf gaman að vera, talsvert skemmtilegra en Jakarta en þar búa svo margar milljónir að manni finnst maður vera hálfgerður maur í risastórri mauraþúfu, það á ekki við hér í Medan, þannig að maður segir eins og Bubbi: "Lífið er ljúft".
Því miður er ekki alltaf hægt að hafa hluti eins og maður vill hafa þá, hvað haldið þið, jújú, byrja að fljúga til Madinah aftur þangað til loka þessa Hajj. Ótrúlegt, ég var farinn að sjá ljósið og hélt að ég þyrfti ekki að fara þangað aftur í heilt ár, en viti menn, næstu 3 vikur hjá mér fara í að fljúga héðan frá Medan til Madinah, jájá, best að taka Biblíuna með sér og kenna þeim mannasiði, Tóti trúboði að fara að mæta aftur á svæðið! Við skulum hafa það lokaorðin í bili, að Tóti trúboði sé á leið aftur til Madinah!
Kveð í bili og bestu kveðjur yfir á frón!