Friday, February 18, 2005

Halló halló eða eins og sagt er hér eftir hádegi "Selamat sore (Good afternoon)! Magnað að við Íslendingar segjum aldrei góðan eftirmiðdag, kannski vegna þess að það er óþjált, góð spurning, gætum við ekki sagt "geftirmiðdag", "góðan miðdag eða "góðmiðdag" eða jafnvel eitthvað annað eins og "eftirmiðdagur verði þér góður", nei, nú er þetta komið út í tóma þvælu, en ég lýsi samt yfir almennri samkeppni um góða þýðingu á selamat sore = good afternoon yfir á íslensku!

Jæja, nú er kátt á hjalla, ég er búinn í Hajj-inu í ár!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Jibbí jæjæ jibbí jibbí jæ,
Jibbí jæjæ jibbí jibbí jæ,
Jibbí jæjæ jibbí jibbí jæjæ,
jibbí jibbí jæjæ,
jibbí jibbí jæ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Einnig er ég mjög ánægður því staðfest er að peyji dauðans er kominn í FFF!!! Sem er auðvitað alger snilld því hann er næstum því jafn mikill snillingur og ég!

Jæja, nóg af ego-i, heimför er ekki alveg klár, mér skilst að ég geti farið heim þegar ég vil, en ég er með svo mikinn farangur að ég er alveg á báðum áttum hvort ég eigi að fara heim með Garuda eða bíða eftir ferjuflugi Atlanta sem verður héðan næsta miðvikudag, reyndar er ég að spá í að fá mér í glas í kveld og fagna þessum tímamótum og spila svo golf fram á miðvikudag og notfæra mér flugið með Atlanta á miðvikudaginn kemur, þetta þýðir að maður verður mættur til Thule á föstudaginn næsta og verð heima í mánuð. Mikið óskaplega væri gaman ef Birkir og aðrir Atlanta menn væru saman í fríi á þeim tíma og gætu málað bæjinn rauðan áður en við hjálpum svo Hjalta að mála svefnherbergið sitt vínrautt, en eins og fólki er kunnugt skoraði ég á hann að mála svefnherbergið vínrautt, og ef það verður ekki gert, þarf hann að tilkynna byggingaryfirvöldum í Kópavogi um það að hann muni byggja vatnsrennibraut í stofunni í nýju íbúðinni og fá til þess tilskilin leyfi af bæjaryfirvöldum. Af þessu leiðir að vínrautt svefnherbergi er málið :-)
Eg er ánægður með viðtökur áður eftirlýstra manna hér á síðunni og ég vil að sjálfsögðu óska Bjarna Rafn Garðarssyni til hamingju með nýju íbúðina sína, áskorun á þig Bjarni minn kemur innan tíðar!!! Svo þarf maður að plana ferð til Eyja og sýna eyjamönnum hvernig hlutirnir eigi að vera! Hins vegar lýsi ég eftir Ómarinum, hvar er sá maður staddur í þessari veröld, er kannski vesöld hjá honum eða hvað, er hann kannski á leið til Bluebird? Nú skilst mér að Ice hafi keypt það, naumast hvað ísaldarmennirnir kaupa flugfélög þessa dagana, alveg rosalegt!!!
Jæja, ég blogga eitthvað meira síðar í dag, en lýk þessu með því djúpt kveðna kvæði:

Jæja, nú er kátt á hjalla, ég er búinn í Hajj-inu í ár!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Jibbí jæjæ jibbí jibbí jæ,
Jibbí jæjæ jibbí jibbí jæ,
Jibbí jæjæ jibbí jibbí jæjæ,
jibbí jibbí jæjæ,
jibbí jibbí jæ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

No comments: