Til hamingju Ísland!
Já, svo sagði hin kyngimagnaða sönkona(álfkona) Silvía nótt. Ekki ætla ég að taka þessum hamingjuóskum með miklum fagnaðarlátum því ekki finnst mér þetta lag hjá henni til mikils koma. Frekar er að óska þeim sem hafa húmor fyrir svona löguðu til hamingju með það að koma sér endalaust á framfæri með rugli!
Jæja, ég ætla nú ekki að hljóða eins og afi minn nema með því að segja þvuhhhh!
Ég ætla hins vegar að koma því til skila hér að ég hef ekki verið Evróvision aðdáandi mikill, en þó samt svo að maður fylgist með. Ég hélt þó að ég hefði séð vafasömustu undankeppni Evróvision núna um daginn þegar ég rakst á úrslit keppninnar (held að það hafi verið úrslit) í Þýskalandi! Já, þeir hafa alltaf átt lélegustu lög keppninnar ár eftir ár, og þar gat ég hlegið að liðinu og haft gaman að, en svo fer ég á netið og skoða það sem fyrir ber í keppninni heima og get ekki betur séð en að Þjóðverjar hafi betur í viðureigninni við okkur, ótrúlegt, Íslendingar, þessi þjóðerniskennda þjóð að púkka upp á Silvíu nótt. Reyndar er hún ekkert ein um að eiga lélegt lag, heldur eru þau það öll! Eins margir hafa sagt í gegnum tíðina, "díses kræst maður, hvað er í gangi". Svo spyr maður sig, hvað vakir fyrir dómnefnd sem velur í þetta? Á hvaða efnum voru þeir??? Þeir hljóta að hafa verið fengnir af einhverri annarri plánetu því þetta vísar engan veginn í neitt sem tíðarandinn býður upp á í dag, nema kannski "idiot"-húmorinn frá þessari ástsælu Silvíu, sem að einhverri ástæðu á að þykja fyndið og flott í dag. Það er skrýtið nú til dags að þessi undankeppni heima skuli vera svona, því hún hefur hefur farið vaxandi, þ.e. meira er lagt í hana frá ári til árs undanfarin ár, alla veganna er Sjónvarpið alltaf að leggja meir og meir í með hverju árinu sem líður. Það er því sorglegt að sjá svona val á lögum í úrslitum. Hvar er djassinn (sem er á uppleið í dag), hvar er þetta venjulega gamla góða (þarf reyndar ekki að vera gamalt), hvar er tónlistin sem maður er vanur að heyra, þarf þetta alltaf að vera með þeim tón að manni finnst maður hafa heyrt svona lög mörgum sinnum áður? Hvar eru lögin í anda Nínu (með Stebba og Eyfa, er ég eini maðurinn sem man eftir þeim?), hvað með hljómsveitirnar heima sem gera það gott í dag, af hverju heyrist ekki í þeim? Ég held bara að ég verði að kaupa diskinn með Gleðibankanum þar sem þessi skrif virðast vera þunglynisleg :-) Ég er nú bara að tala um lög sem menn eiga eftir að muna eftir! Var ekki nóg að sjá Pál Óskar niðurlægja þjóðarstoltið hér um árið, ætlar fólk að prófa það aftur, var það svona gaman ???
Svo er það annað. Það er ótrúlegt að sjá hvað fuck-you húmorinn hefur náð langt, nú er ekki fyndið að segja hver munurinn er á kvenfólki og hvirfilbyl, nei, í dag á maður að hjóla nakinn á 10m stökkbretti út í sundlaug og best er ef menn meiða sig mikið, það er fyndið! Ótrúlegt enn og aftur. Ég er nú enginn kommúnisti eða hvað sem það nú er, en þessi húmor sem á uppruna sinn frá USA er genginn úr sér og er orðinn ansi geldur, mér finnst hins vegar t.d. strákarnir sem nú eru á Stöð 2 standa sig vel, þeir virðast ná því að vera á línunni milli þess sem er fyndið og þess sem er ógeð, sem er bara mjög gott mál. Auk þess sem þeir ná til allra aldurhópa með prakkarastrikum sínum og fleiru, ég klappa fyrir þeim. Einnig klappa ég fyrir baggalút, sem virðast endalaust geta gert grín að hverju sem er, hreinir snillingar, kannski við ættum að senda "par excelans" lagið þeirra í Evró, en því miður má það ekki því það hefur heyrst áður, en heyrið mig, var ekki fólk búið að heyra lagið hjá Silvíu áður, veit ekki betur en að það hafi lekið út áður en það var flutt í keppninni!!! Ég læt hér með niðurrifspólitíkinni lokið í bili, en Hgret félagi minn tók nú vel í gegn gaurana á kallarnir.is, jamm, sammála honum, enda er fátt eins vitlaust og það sem þeir bjóða upp á, svo voru þeir svo aumingjalegir á síðustu þjóðhátíð að maður hreinlega skildi ekki hvað þeir voru að gera á svæðinu!
Niðurstaða:
Ég get með engu móti ráðið því hvað fólki finnst fyndið og hvað eina, enda væri það frekar bágborið ef svo væri (sérstaklega miðað við þessi skrif)!
Mér finnst samt agalegt að borga skatt til þess að horfa á svona vitleysu eins og Evróvision er heima á fróni. Ég vil ekkert borga fyrir að sjá Silvíu nótt gera sig að fífli einu sinni enn, hvað þá að láta hana kannski(því ekki er hún búin að vinna keppnina) að niðurlægja Ísland og íslenska menningu á alþjóðlegum vettvangi, reyndar serm betur fer held ég að það séu ekki mjög margir Evrópubúar sem fylgjast með þessari keppni. Er skatturinn sem ég borga að fara í hana syngjandi upp á sviði!!! Kannski maður hendi bara sjónvarpinu út um gluggann, því ekki má ég eiga það án þess að borga fyrir þetta!!! Þegar afnotagjöldin hjá Ríkinu fara í svona vitleysu liggur hreinast við að maður hendi imbanum út um gluggann. Svo er spurning, ef ég hendi sjónvarpinu hvort ég þurfi ekki að borga afnotagjöld af tölvunni því stundum læðist maður inn á RUV.is og skoðar hitt og þetta! Þeir geta ekki sætt sig við það miðað við stefnuna sem sett er með sjónvarpið, eða hvað? Já, til hamingju Ísland!