Sunday, December 25, 2005

GLEÐILEG JÓL ALLIR TIL SJÁVAR OG SVEITA OG UM ALLA HEIMSKRINGLU!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Hér eftir mun einungis efni verða birt í rímum sem eiga við hvern þann hlut sem bloggað er, finnist mönnum það leitt og þetta leirburður mikill, þá verður bara að hafa það, maður verður að prófa að gera eitthvað nýtt.

Byrjum á flugvélamatnum á aðfangadagskveld:

Flugvélamatur mig ekki bætir,
margt um hann gagnrýni sætir,
Ef thu hann étur,
verður mikill fretur,
og klósettið ad lokum thu kætir!!!

Flugvélamat á aðfangadagskvöld,
finnast illt mundi flestum,
Kartöflur vondar og steikin köld,
kostur ekki hæfir hestum!

Svo er smá boðskapur hvernig fílingurinn var um jólin hjá mér!
Kalla má þetta ferðajól thó ad thetta virdist thunglyndislegt verð ég að segja að hafa komið til Jóhannesarborgar er mjög magnað og er thetta ein af theim fallegri borgum sem ég hef komið til:

Suður í Afríku ríkir sólin,
sat ég þar á aðfangadag,
er thar loks urðu jólin,
ég fór í ferðalag.

Jólin í Jóhannesarborg,
jeg ekki fekk ad njota,
Thad mer thotti mikil sorg,
Thvi ég thurfti ad thjota.

Löng var leiðin Frankfuhrt til,
Leitt að þurfa þetta að reyna,
Minnti mig þetta hér um bil,
margt um ferðalag jólasveina.

Staðið hefur ströngu í,
Steini litli í Germaní,
Thad er OK fyrir thví,
tho jólin séu næst fyrir bí.

Friday, December 02, 2005

Grooovy!!!

Jájájá, mættur heim í góðum fíling. Hef verið þægur :-) síðustu daga og bara verið að dreifa fagnaðarerindinu þar sem hátíðarnar nálgast óðfluga. Fagnaðarerindið er auðvitað það að ég sé kominn heim :-)
Það er gott að sjá suma njóta desembermánaðar í sumri og bjór í Dubai, hollt og gott, er alveg viss um að Ágústa Johnson er alveg að fíla það í botn að sjá það sem var í ísskápnum þarna um daginn.
Annars er það að frétta að ekkert er séð fyrir með jólin, á skv. plani að fara út 20. des, en mér var sagt í gær að það kæmi allt betur í ljós eftir 10.des, þá væri hægt að segja til um hvort maður fái frí um þessi jól.