Sunday, December 25, 2005

GLEÐILEG JÓL ALLIR TIL SJÁVAR OG SVEITA OG UM ALLA HEIMSKRINGLU!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Hér eftir mun einungis efni verða birt í rímum sem eiga við hvern þann hlut sem bloggað er, finnist mönnum það leitt og þetta leirburður mikill, þá verður bara að hafa það, maður verður að prófa að gera eitthvað nýtt.

Byrjum á flugvélamatnum á aðfangadagskveld:

Flugvélamatur mig ekki bætir,
margt um hann gagnrýni sætir,
Ef thu hann étur,
verður mikill fretur,
og klósettið ad lokum thu kætir!!!

Flugvélamat á aðfangadagskvöld,
finnast illt mundi flestum,
Kartöflur vondar og steikin köld,
kostur ekki hæfir hestum!

Svo er smá boðskapur hvernig fílingurinn var um jólin hjá mér!
Kalla má þetta ferðajól thó ad thetta virdist thunglyndislegt verð ég að segja að hafa komið til Jóhannesarborgar er mjög magnað og er thetta ein af theim fallegri borgum sem ég hef komið til:

Suður í Afríku ríkir sólin,
sat ég þar á aðfangadag,
er thar loks urðu jólin,
ég fór í ferðalag.

Jólin í Jóhannesarborg,
jeg ekki fekk ad njota,
Thad mer thotti mikil sorg,
Thvi ég thurfti ad thjota.

Löng var leiðin Frankfuhrt til,
Leitt að þurfa þetta að reyna,
Minnti mig þetta hér um bil,
margt um ferðalag jólasveina.

Staðið hefur ströngu í,
Steini litli í Germaní,
Thad er OK fyrir thví,
tho jólin séu næst fyrir bí.

No comments: