Jæja góðan dag.
Ritstíflan er alveg að drepa mann þessa dagana.
Það er hins vegar svo að maður þarf að gera upp sl. ár með öllu tilheyrandi.
Árið byrjaði í loftinu frá hinni helgu borg Medinah í Saudi-Arabíu til Medan í Indónesiu. Það var sérkennilegt að fylgjast með nýju ári ganga í garð úr háloftunum en samt spennandi því það var öðruvísi, svo kom í ljós að allt árið var öðruvísi en reiknað var með en taka skal fram að það var svo mikið öðruvísi að það var alveg meiriháttar.
Pílagrímaflugið gekk alveg fram í byrjun mars er við komum heim. Var þá búið að harka í pílagrímaflugi í 10 vikur og alltaf base í Medan. Nokkrar viðkomur í Jakarta þó, og var þetta allt alveg ótrúlega gaman.
Svo eins og Guðs gjöf að himnum ofan, 4 dögum eftir að ég kom heim, birtist mér á afmælisdag bróður míns hún Lilja mín.
Eftir mánaðardvöl heima og mikið grín og gaman, flaug maður með íslenska páskaferðamenn til Allicante og Faro. Svo var förinni heitið til Kuala Lumpur. Þar var golfið tekið í gegn og endaði maður á því áður en maður kom heim að taka þessa þvílíkt öflugu golfferð í Englandi með Berel nokkrum Arnfinnssyni, þvílík snild.
Aftur var farið til KL stuttu eftir golfferðina og þar flogið til Shanghai, Sydney, Melbourne og fleiri góða staði.
Í næsta fríi var svo goslokahátíð í Eyjum tekin með þvílíku trompi að það hálfa væri nóg.
Gatwick var næsti vinnustaður næstu 2 mánuðina með reglubundnum fríum heima sem við Lilja nýttum okkur í sumarbústaðaferðir og Þjóðhátíð í Eyjum, sem stóðst fyllilega undir væntingum þó svo að maður hafi lokast úti á Bakka í þjóðhátiðarfluginu eina nótt. Einnig tókum við Snæfellsnesið og keyrðum það hátt og lágt auk þess að ganga mikið þar um og skoða. Meiriháttar tími.
Næst lá leiðin til Madrid og þar var flogið til Miami og Tenerife North auk Las Palmas, ágætis tími alveg hreint.
Frankfuhrt tók við í næstu útiveru og fékk ég þann heiður að fara nokkrum sinnum til Chicago. Þvílík snilldar borg sem áður hefur verið greint frá á þessum vef.
Rétt fyrir jólin fór maður svo í mikla heimsferð. Já, Luxembourg, Jóhannesarborg, Frankfuhrt, Peking, Hong Kong.
Nýja árið leggst vel í mig, byrjar eins og í fyrra, í loftinu, reyndar í þetta skipti frá Hong Kong til Dubai, en hvað með það, byrjar eins og hið frábæra ár 2005. Mikið óskaplega sem þetta ár á eftir að vera í minnum haft hjá mér sérstaklega ef tekið er tillit til alls ofangreinds og þess maður varð fastráðinn hjá Air Atlanta 1. jan með öllu tilheyrandi, alveg frábært.
Að lokum vil ég segja, Fjölskyldan, Lilja mín, félagar nær og fjær, Air Atlanta og Fálkagata 14 :-) Takk kærlega fyrir frábært ár 2005, megi næstu ár verða eins pottþétt og þetta!
Að lokum verður maður auðvitað að birta lista yfir þær borgir sem fá áramótakveðjur í ár þó seint séu.
Medan
Medinah
Jakarta
Jeddah,
Faro,
Allicante
Kuala Lumpur,
Shanghai,
Dhaka,
Melbourne,
Sydney,
Dubai,
Sharjah,
París,
London,
Manchester,
Orlando,
Kos,
Glasgow,
Dalaman,
Amsterdam,
Madrid,
Miami,
Tenerife North,
Las Palmas,
Frankfuhrt,
New York,
Chicago,
Luxembourg,
Johannesburg,
Tripolí,
Peking,
Hong Kong
No comments:
Post a Comment