NÚ ER FROST Á FRÓNI FRÝS Í ÆÐUM BLÓÐ!!!!!!! BÓKSTAFLEGA!
Já, karlinn mættur heim á klakann og verður hér næstu 2 vikurnar.
Þvílík snilld að vera kominn heim þó kalt sé, en reyndar þurfti skerið ekki annað en að vita að karlinn væri á leiðinni, þá hlýnaði ískyggilega :-) Jájá, asahláka um leið og karlinn mætti.
Jæja, London hefur verið tekin með trompi og var það alveg MEGA-GAMAN!!! Lilja mætti út daginn á eftir mér og eyddum við viku þar ásamt famelíunni og brósa, sem var að útskrifast með MASTER í lögfræði!!!!
Hvað gerðum við? Jú, þræddum allt London svæðið eins og það leggur sig, keyptum helling af því sem við áttum alls ekkert að vera að kaupa, t.d. ég enn einn leddara!!! Jú, kíktum líka á alla garða sem skipta máli, Hyde-, Green- og St. James´s Park. Það var svo gaman að vera í St. James´s Park að það var ekkert venjulegt, svo mikið fuglalíf og þegar við settum nammi í hendurnar okkar þá komu dúfurnar og settust á okkur eins og páfagaukar, ekkert venjulega flott! Pelíkanar voru þarna líka og mikið rosalega eru þeir skringilega flottir, hálsinn á þeim og undirhakan hreinasta snilld!
Já, við skemmtum okkur sem sagt konunglega, átum á kvöldin eins og svín, löbbuðum á daginn eins og golfarar og djúsuðum eins og frímúrarar :-)
Karlinn kom ósjaldan við á Starbucks og var það hrein snilld að komast í tæri við almennilegan Starbucks Latte aftur!
Nú hlakkar mann bara til að fara á Avion GEIM-ið um helgina, já, sótti þessa 2 fríu miða sem hver Atlanta maður fær á það í dag, það ríkir mikil stemmning fyrir því og maður vonar bara að sem flestir mæti á það og skemmti sér almennilega!!!
Jæja, ég bið að heilsa í bili og sérstakar kveðjur til allra í Indó í Hajj-inu og Dubai félaganna.
No comments:
Post a Comment