DHACA, BORG BORANNA, MÓTMÆLA OG ÞREYTU + FRAMLEIÐSLA METANGASS
Hmmm, skrýtin fyrirsögn gæti einhver maður hugsað sér, tja, veit ég nú ekki, en menn verða að gera það upp hver fyrir sig.
Er nú staddur í Bangladesh, nánar tiltekið borginni Dhaca. Hér er allt á iðandi skriði og ekki hægt að sofa hér á hótelinu vegna framkvæmda, já, það er einhver indverskur Bangladesh-i að bora eins og vindurinn í herberginu fyrir ofan mig hér á hótelinu og svo er hann með ca. 10 álíka snillinga hamrandi nagla og ég held svei mér þá bara að þeir hamri bara allt sem fyrir hamar geti orðið. Þ.a.l. er lítið um svefn þessa dagana hérna og allt á suðupunkti í hausnum á mér. Já, ekki laust við að það hafi myndast þrumuský yfir höfuðinu á karlinum þegar kom í ljós að ekki væri hægt að skipta um herbergi.
Jæja, í aðra sálma. Þegar við mættum á svæðið hérna, var okkur tjáð að við myndum líklega ekki fljúga til baka í nótt (sl. nótt) eins og áætlað var því pólitískt ástand í þessu landi er á suðupunkti líka (eins og höfuðið á mér), í dag er STRIKING DAY, og það á allt eftir að verða vitlaust víst hér seinna í dag, ég bara óskaði þess að þeir vissu hvað þetta þýddi á ensku, því þá væru mennirnir sem bora hér á fullu ekki að VINNA! Skilst mér reyndar að þetta eigi nú bara við um helming þeirra sem hér búa og á að vera eitthvað þvílíkt dæmi gagnvart ríkisstjórninni. Er við athuguðum þetta betur, kom í ljós að búið er að setja vegatálma víðs vegar í kringum borgina og ljóst að við komumst ekki út á flugvöll í dag fyrir miðnætti vegna þessa. Ég sagði nú svona í gríni við einn, "hvað er þetta maður, er ekki bara gaman að fara út og kíkja á þetta, lenti í þessu í Buenos Aires einu sinni og það var bara fjör, allir dansandi og hressir", hann svaraði fljótt, "þetta er ekki Buenos Aires", og sagði þetta með þannig tón að ég ætla ekkert út af hótelinu í dag. Hvað sem því líður, þá er svolítið gaman að sjá þetta land, ýmislegt til hérna, og gjaldmiðillinn er 69 á móti dollar, sem minnir óneitanlega á ísl. krónuna og þ.a.l. finnst mér ég bara vera kominn heim (eða þannig).
Ég ákvað að skreppa í morgunmat hér í morgun. Já, það hefði ég betur látið ógert, því óneitanlega verður að viðurkennast að mikil aukning hefur orðið á heildarmagni metangass á jörð eftir þennan morgunmat. Ég fór auðvitað að hugsa um hvernig nýta mætti þessa auðlind, jú, hvað með metan í stað bútan, fylla á kveikjara og svoleiðis, svo gæti ég gert samning við B.S. (Er það ekki nýja nafið fyrir strætó?)??? Er það ekki snilld. Ég reyndar vona að ég fari að hætta að rappa fljótlega, því þetta er orðið full mikið af því góða og enn ein góð ástæðan til að skipta um herbergi sem ekki fæst!
Það er þó einn plús hérna sem verður að fá að komast að, ég prófaði mango-ís hér í gær, mikið andskoti rosalega er hann æðislega góður, þvílíkt og annað eins, verð að athuga hvort þetta sé til heima, er enn að sleikja út um eftir að hafa fengið tvær kúlur af þessu hér á hótelinu, massa fínt, þannig að maður er nú ekki bara negativur eins og sumir mættu ætla af þessum skrifum mínum. Að lokum fannst mér svo freistandi að kaupa minjagrip hér eins og ég gerði í Baku í Azerbaijan, þ.e. 2 vodkaflöskur (200 mil) á 5 kr. En þá rann upp fyrir mér að ég gæti það ekki því auðvitað er ég á leið til Jeddah aftur og þá þýðir ekkert að vera með það með sér.
Annars er ljóst að við förum héðan eftir miðnætti í kvöld, ekkert mál, og enginn annar en Hjalti snillingur að koma með vélina hingað, sækja karlinn og svo fær hann þess heiðurs njótandi að vera farþegi hjá mér, óskandi reyndar að við værum fljúgandi saman, en það styttist í það með hverjum deginum (hvor svo sem verður kafteinn á undan, skiptir ekki máli, Hjalti, "you can be my wingman any time" :D).
chao for now
Sunday, September 10, 2006
Sunday, September 03, 2006
Salama Leikum, Allah Akhbar og allt það!
Jæja, kominn til Jeddah hér í Saudi og bullið tók ekki nema 5 minútur að byrja er ég mætti. Nenni nú ekki að fara að bölvast yfir því, þá verður maður bara pirraður.
Jæja, en þar sem það er svo lítið að gera hérna, verð ég bara að leirast og bulla eitthvað svona mér til gamans (ekki mikið gaman hér).
Jeg er nú til Jeddah kominn,
jeminn eini hugsa nú,
Hér er enginn áfengissopinn,
Ekki heldur Kristin trú
Svin og sukk fást ei hér,
Svíður suma hart,
Allir hérna hugsa sér,
að hafa sig á burt, snart!
Í nótt flýg ég til Íran, nánar tiltekið Izfahan, hef farið þangað áður, en á bakaleiðinni þurfum við að koma við á “skemmtilegasta og besta stað veraldar”, nei ég er ekki að tala um Kópavog, hvað þá, jú, ekkert annað en Medinah!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Þar sem bacon-ið er framleitt úr úlföldum (að ég held), þar sem vínið er búið til úr kartöflum (óáfengt að sjálfsögðu) og heilarnir búnir til úr sandi (það veit ég fyrir víst).
Skólinn er byrjaður hjá Liljunni og allt farið af stað sem tilheyrir haustinu. Vonandi tekst okkur að klára íbúðarskiptin næst þegar ég kem heim, lítur allt ljómandi vel út og vonandi verðum við algerlega flutt af Fálkagötunni um mánðarmótin. Já, lífið er yndislegt þessa dagana, nema eitt, þ.e. að Lilja er heima en ég úti og það er ekkert sérstaklega skemmtilegt, ástin mín, sakna þín!
Á næstunni er von á smásögu hér á blogginu um Kára og Kulda , vonandi tilbúin næst!
Shukran (takk fyrir).