Tuesday, May 02, 2006

Góðan dag góðir bloggaragestir!

Jæja, nú er lag, búinn að taka simmann í bakaríið í Frankfuhrt og allt í fínum gír. Það var auðvitað haldið upp á það með pompi og prakt á sunnudagskvöldið og endaði það með smá þynnku daginn eftir.
Karlinn svo sendur með Siggeiri snillingi Sverrissyni til Luxembourg og er þar nú. Hér er ekkert að gera án bíls, þ.a.l. leigðum við félagarnir einn í dag og komum okkur út úr stofufangelsinu sem er í boði Hilton, það er ekki einu sinni hægt að éta þar vegna brauðs sem er jafn hart og tvíbökur ásamt fleiru.
Jæja, nóg af því, spilaði golf í dag og haldið þið að ég hafi bara ekki rekist á haug af Íslendingum á vellinum, þeir voru frá KB Banka (ég kalla hann reyndar núna KGB Banka ;) og voru í fínum gír, reyndar 4 samtals og þ.a.l. gat ég ekki spilað með þeim, svo hitti ég Birgi Leif, margfaldan Íslandsmeistara og atvinnumann í golfi, hann var við æfingur og ég var ekkert að trufla hann því hann þarf að gera betur ef hann vill eiga roð í mig ;)
Golfið gekk annars fínt, glæsilegur dagur, sól og alles, og ekki laust við að maður hafi náð sér í smá brúnan lit, sem allir vita að mér finnst svo fallegur ;)
Náði sem sagt að eyða deginum í sumri og sól og át svo með Siggeiri á fallegum ítölskum restaurant en fékk mér nú ekkert fallegra en pizzu.
Aftur golf á morgun, svo flug til Baku í Azerbajan á fimmtudag. Maður tekur það place út almennilega og kem svo aftur hingað á laugardag til að hanga og gera ekki neitt í heila viku, held ég fari bara í golf ;)
Kveðjur á frón og ákskorun á Birki um meira blogg!!!

No comments: