Lallalaralla, larallalallaralla larallalalla lala, darúddí dí daddí darúddíd dí daddí, og svo "því vér erum hraustir menn!!!, látum þá alla, sverfa til stáls" eða eitthvað þannig!
Eins og sjá má er þetta upphaf að hinu vinsæla lagi Hraustir menn, en það á vel við þessa dagana þar sem gym-ið er tekið svoleiðis í bakaríið hérna að það hálfa væri nóg, enda ekki nóg með það heldur er spilað golf á fullu líka þannig að ekki ætti mann að vanhaga hreysti þessa dagana!
Luxembourg er fínasti staður á þessum árstíma, gott að spila golf þó dýrt sé að vísu, snilld að hafa Siggeir snilling sem bílstjóra, en ég hef aðeins pælt í því þó að fá mér bíl og hafa hérna einhvers staðar í Evrópu, jafnvel hér.
Heimför er áætluð á þriðjudaginn, kannski degi fyrr, sjáum til með það, hins vegar fréttist af einum massa gröðum sem skellti sér heim 2 dögum fyrr vegna mikillar stíflu sem safnaðist á einungis 3 dögum hjá honum, hefur honum verið ráðlögð sálfræðiráðgjöf, því hann eins og Michael Douglas hafa greinilega fengið kynlífssýki eftir allt þetta Basic Instinct dæmi :-)
Heil og sæl!
No comments:
Post a Comment