Saturday, July 15, 2006

HOLA Í HÖGGI!!!!!!!!!

Jæja, nú er glatt á hjalla, heldur betur, karlinn smellti holu í höggi á 2. braut á Nesvellinum þ. 11.07 nýverið.
Það er ekki ónýtt að uppgötva það að maður sé á meðal þeirra bestu í þessari grein :)
Höggið var slegið með SW (Sand Wedge), og var þetta hreint magnað golfhögg!!!!!!!

Annars verður maður nú að byrja að afsaka ótrúlegt bloggleysi upp á síðkastið, hrein ritstífla í gangi og ekkert markvert gerst þannig.
Ísraelar komnir í sannkallað banastuð, orð að sönnu, því nú vilja þeir bana Hizbollah (ekki skrýtið), olíuverð hækkar og allur pakkinn.
Það er ljóst að ég fer út næsta miðvikudag, er förinni heitið til Oestend í Belgíu, verð baseraður þar næstu vikur, fljúgandi þaðan til N.Y. og Houston.
Reyndar í lok mánaðarins fer ég til Frankfuhrt á upprifjunarkúrs ásamt fleiru því tengdu, og kannski að maður fái að opna hurðir o.þ.h. til tilbreytingar á vélinni.

Birkir var með skot um að ég væri á reynslulausn á blogginu hjá honum, það er eðlilegt en á næstunni mun maður vera skárri með skrifin.

Sumrið hér er ekki glæsilegt, reyndar eitt það lélegasta sem ég man eftir langa lengi, hvar eru dagarnir sem maður getur setið úti og drukkið kaffi niður
á austurvelli með öllu tilheyrandi, hvar er blíðviðrið, þetta eina sanna sem Ísland var orðið svo frægt fyrir, nú fer maður að vera hræddur við veturinn fyrst sumarið er svona, agalegt!

Næst á dagskrá er golfmót í Garðabæ á morgun, auk þess sem reynt verður að fljúga Yak-inum eitthvað næstu daga áður en haldið verður út til Belgíu.

Kv. Champinn

No comments: