Wednesday, July 26, 2006

Hvernig kemstu af í New York!

Gaur: How are you doing?
Ég: cheers
Gaur: How´s it going?
Ég: cheers
Gaur: There you go.
Ég: cheers
Gaur: Want another one?
Ég: cheers
Gaur: Can I help you?
Ég: cheers
Gaur: Are you ok ?
Ég: cheers
Gaur: cheers!
Ég: cheers.

Auðvelt ekki satt!!! :)

Jájá, ekki vandamálið, bara snilld að vera kominn til N.Y. aftur, átti reyndar ekki að gista hér, en þar sem ekki fékkst flug til Houston þá var bara skellt sér á einn auka dag hérna.
Ég tók Oestend út með glæsibrag í fyrrakvöld og gærmorgun! Fór ekki á hótel í Brussel heldur beint inn á herbergi til Hálfdáns flugvirkja í Oestend. Spiluðum pool og drukkum bjór og höfðum það nice, miklu betra heldur en að vera einn í Brussel og vita ekkert hvað maður á að gera. Tær snilld.
Oestend er skrýtið pláss, allt brjálað að gera þar á sumrin en breytist í draugabæ á veturna. Falleg lítil borg, ögn minni en Reykjavík. Bara gott mál. Var Valdi fl.vlrki þarna líka og skemmtum við okkur konunglega þarna.
Ljótt var að lesa um tepruskapinn hjá Hjaltanum í fyrrdag, agalegt að brjóta svona af sér gagnvart karlmennskulögunum, ég sting bara upp á því hér og nú að hann verði "baseraður" í Gatwick í framtíðinni og geti leikið sér með pungfreyjunum þar, það er minn dómsúrskurður :-)
Annnað mál, Birkir kominn með kaskeiti. Það var eitthvað storka minnimáttarkenndinni hjá honum að eiga ekki svoleiðis dót og nú fagnar hann sem aldrei fyrr, kannski að hann verði bara hjá Excel að eilífu vegna þess, svo stoltur er hann að allt í einu er hann ekki barn lengur, heldur kominn með 26 feit! bringuhár sem telst nú töluvert á þeim bænum (að mig minnir engin fyrir ;), hann fer væntanlega beint í world class þegar hann kemur heim og pósar sig þar í speglunum ásamt vinum hans sem hafa líklega ekki fleiri en 25 bringuhár, sjáum til, en ég óska honum til hamingju að vera kominn í bringuháraklíkuna ;) Ég hugsa nú að hann tapi bringuhárakeppninni þegar hann fer að pósa sig með Tyrkjunum þarna í Dalaman, þeir eru loðnari en górillur á besta aldri, ROSALEGT!!!
Nú fer orðleysið að nálgast, og þá er best að kveðja,

CHEERS!!!!!

No comments: