Jæja, gott fólk
Þá er karlinn staddur í Brussel en er á leið til Frankfuhrt á morgun sem betur fer, því hér hundleiðist mér! Hér er ekki kjaftur enda sýndi það sig að ég og Hjalti héngum á skype í 3 klst viðstöðulaust og töluðum um nákvæmlega ekki neitt, en það sannar enn og aftur að Hjaltinn er alltaf að brjóta karlmannslögin sem hann bjó sjálfur til :-)
Jæja, Birkir var að svara einhverjum pósti hérna hjá mér og virtist liggja mikið niður fyrir, hann varð greinilega sársvekktur þegar ég uppljóstraði um fjölda bringuhára hans, þeim sannleika hefur hann átt erfitt með að kyngja síðustu misseri, en ljóstraði þá upp öðru sem ég ákvað að spara að nefna, en verður þó nefnt hér. Já, hann mætir í spandex í klassann, rosalegur, maður verður bara að leirast!!!
Spandex-kappinn í Classann mætir,
kokhraustur og frár,
Pósar og pjattast svo engu lagi sætir,
en peyjinn hefur engin bringuhár!
Í örvæntingafullri tilraun hans til að koma í veg fyrir áframhaldandi orðspor ákvað hann að fara í photoshop (forrit til að breyta myndum fyrir þá sem ekki vita) til að reyna að sýna fólki að þetta væri ekki rétt, en því miður Birkir, það virkaði ekki.
Þakka þér samt fyrir að líkja mér við hálendi landsins því það er nú svo fallegt að það er mikið hrós ;)
Annars verð ég að viðurkenna að Birkirinn er drengur góður og góður æfingafélagi og engu yfir að kvarta þegar kemur að hans character, liggur við að lágkúra hafi verið hjá mér að byrja á þessu, en stundum verður maður að krydda tilveruna ;)
Að öðru, heimferð er vonandi 6. ágúst, kannski 7. Það verður að koma í ljós, og hlakkar í manni að koma heim og hitta elskuna mína og hafa það "nice". Það skýrist vonandi á allra næstu dögum hvað verður.
Andlegur undirbúningur er hafinn fyrir framkvæmdir á nýju íbúðinni, konan hefur auðvitað fullt af hugmyndum sem þarf að koma í gagnið, auk þess sem spasl og sprunguviðgerðir fara í gang. Það verður auðvitað bara stuð, og svo er auðvitað snilld að Hjalti sé búinn að brjóta karlmannslögin svo illa að refsingin hans verður auðvitað að skúra hjá mér, og kannski að halda á ryksugunni á meðan ég bora ;)
Jæja, hættur að bulla í bili, óska Sigmundi Einari Mássyni til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn í golfi, snilld hjá gaur, gerði vel og pakkaði liðinu saman, það hefði kannski ekki verið svo auðvelt ef ég hefði verið á landinu ;)
Chao for now!
No comments:
Post a Comment