Friday, July 28, 2006

Góða kvöldið

Jæja, þá er maður staddur í Houston Texas. Reyndar fer ég heðan í nótt, þannig að ekki eru margir klukkutímar eftir af veru minni hér. Það er ágætt, því hér erum við á flugvallarhóteli sem er reyndar ágætt en hér er því miður ekkert að gera, netið er þó frítt sem er mikil bæting á því sem oft hefur verið.
Houston er reyndar ekki mikið frásögu færandi, ekki glæsileg borg í neina staði, hef reyndar komið hingað áður og fannst mér þá þessi borg vera í töluvert lægri klassa heldur en t.d. San Antonio, Beumont, Dallas og Austin, en þó er hún mun betri heldur en El Paso, en hvað um það.
Flugvöllurinn hér ber frægt nafn, reyndar ekki upp á marga fiska þó, því hann heitir George Bush airport!!!! Það er reyndar allt í lagi, háir mér ekki neitt, en ég verð þó að viðurkenna að allt annað nafn en þetta hefði komið í huga mér ef ég ætti að hafa skírt þennan völl einhverju nafni, hver veit!
Nú styttist í verzlunarmannahelgi heima fyrir og svíður sárt að koma heim akkúrat þegar hún er búin, það verður væntanlega mikið stuð bæði í borginni og út á landi, ég og Lilja eigum svo margar góðar minningar úr Eyjunum að það er hálf sorglegt að missa af þjóðhátíð í þetta skiptið! Hugurinn verður þar þegar að því kemur!
Í nótt held ég til Brussel, verð þar víst í 2 daga áður en ég fer til Frankfuhrt, sjáum til hvort að það verði raunin, en heimkoma er sem fyrr áætluð heim þ. 7. ágúst og hlakka ég til þess að styðja elskuna mína í próflestrinum auk þess að gera nýju íbúðina fína á meðan maður er heima í næsta mánaði.
Vona að allir hafi það gott og kveðjur í bili!

No comments: