Wednesday, March 29, 2006

Góðan dag (þó minn sé frekar glær)!

Jájá, kominn til Frankfuhrt þar sem maður hitti auðvitað helling af fólki um leið og maður vaknaði um 2-leytið í gærdag, löng og ströng ferð frá USA að baki og karlinn var bara nokkuð hress. Svo hitti ég Sólon og Rúnu sem ég hafði ekki séð í óratíma, það þýddi auðvitað að maður þurfti að fara út að borða með öllu tilheyrandi. Fín skemmtun en dróst þó heldur betur a langinn og fyrr en varði sló klukkan 2 að morgni. Vakna núna frekar slappur eftir þessa fínu ferð, en þegar öllu er á botninn hvolft var þetta bara meiriháttar gaman.
Jæja, nóg af því.
Árshátíðir eru þessa dagana í fullum gangi, hef ég sjálfur farið á eina og fannst mér dansinn duna og allt í góðu, nema hvað að þegar ein manneskja steig á mig á manndrápsháum hæl finnst mér vert að bjóða upp á smá disco-danskennslu! Eins og þið vitið er þetta nú ekki flókið, en þetta er mitt vísindalega framlag til þess að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur.
Að lokum kveðjur til allra heima, heimkoma 3. april!

No comments: