Friday, March 17, 2006

Here comes the sun!
Svo hljómar fyrsta laglína í hinu fræga samnefnda lagi bítlanna. Mikið var
yndislegt að vera heima og hugsa til þessa lags þegar maður vaknaaði á
morgnana, af hverju? jú, því það er ekki annað hægt en að taka eftir því hversu daginn er farinn að lengja! Já, svo eru meira að segja jafndægur núna þ. 21.
þessa mánaðar, og það er nú ekkert smá stuð þegar dagurinn er loks orðinn lengri en
skilgreind nótt. Magnað!!!!!

Help!
Svo hljóðar annað lag með bítlunum. Já, ég þarf hjálp, hjálp við að koma
hinum nýja Yak-18T sem við félagarnir vorum að festa kaup á, í gott sk?li,
viti menn um skýli fyrir nýja Yak-inn endilega látið champ-ann vita.

Yesterday,
Já, hann er svo "far away". Mikið óskaplega var gaman í gær, mikið stuð með
Hjalta og Arne Krogen hér í Neu Isenburg, en við komum einmitt hingað á þriðjudaginn síðasta og ákvaðum að taka næturlífið aðeins út í gærkvöldi, sátum og drukkum öl og fengum okkur fínar kótilettur með sem brögðuðust eins og best væri á kosið!
Hún sló þó ekki út lambasteikina sem ég bjó til fyrir viku síðan þar sem karlinn eldaði af einskærri snilli heilt læri til að troða í gogginn á glorhungraðri fjölskyldunni, ekki laust við að mamma væri hrædd um að ég væri að slá hana út í kokkinum, en ég auðvitað fullvissaði hana um að svo færi nú aldrei ;)

8 days a week
Já, ég vinn og vinn, eins og skepna, sit á hótelinu og er standby með öllu tilheyrandi og hef ekki gert handtak síðan ég kom út, hins vegar þegar maður er heima í fríi, þá er brjálað að gera í "Yök-unum" nánast 8 daga vikunnar, svo mikið og gaman er að því að hafa 2 Yak-a, alger snilld. Ég set inn myndir af þeim um leið og ég fæ nógu góðar myndir af þeim, þær sem ég er með eru ekki alveg nógu góðar
til þess að setja hér inn. En vinnan fer ekki bara í Yak-ana, heldur erum
ég og Birkir (sem er hel-cut-a?ur!!!) með einkaþjálfara sem tekur okkur svo
rosalega í gegn, þannig að það er ekki nokkur leið að fá engar harðsperur.
Fætur, hendur, axlir og alles, fá svo hrikalega útreið að það styttist í að við verðum alveg hrikalega massaðir með öllu sem því fylgir, sem er rosalegt því við vorum í engu smá formi fyrir ;)

Paperback Writer
Hmmm, magnað max. Gott lag, sem minnir mig óneitanlega á helvítis dagblöðin sem koma inn í hólfið hjá mér óumbeðið! Dagurinn hefst á því að henda heilu frumskógunum af pappír í ruslið, án þess að maður nokkurn tíma líti á það sem stendur á honum, ég vil þetta ekki og er þreyttur á þessum fjanda! Ég er áskrifandi að Mogganum en ekki Fréttablaðinu! Hvað þá Blaðinu, burt með þetta helv....

Nowhere Man
Ekki laust við að hann hafi verið á svæðinu í dag, hvernig, jú, einn hér var svo glær í dag að hann sást varla, þannig að ég var í stökustu vandræðum með hann.

Imagine
Ég segi nú bara eins og Megas í góðu lagi um Krókudílamanninn, "Ímyndið ykkur bara", já, ímyndið ykkur þegar herinn fer burt, þá fæ ég kannski að taka mynd á Keflavíkurvelli án þess að fá hermannn með svaka hólk miðandi á mig eins og terrorista! "Ímyndið ykkur bara" ef herinn hefði ekki komið á frónið. Þá værum við væntanlega með eigin her og alles og Landhelgisgæslan ekki í fjárhagsvanda!!!
"Ímyndið ykkur bara ef ekki hefði komið hún Laufey", hmm, hún væri þá kannski ekki lengur hrein mey :-)

When I´m 64
Lofa að blogga aftur fyrir það ;)

No comments: