Sunnudagur
Já, hvað gerir maður á sunnudegi í Madrid, jú, maður fer á fótboltaleiik með frægasta (ekki alveg allra besta í augnablikinu) knattspyrnufélagi heims, allir halda að ég sé að tala um KR, en það er annað félag nánast jafn frægt í þessum heimi, og heitir það Real Madrid. Já, karlinn kominn með miða á leik í kvöld og nú verður sko stemmning. Beckham á eftir að hlýða á skipanir mínar frá hliðarlínunni og aldrei að vita nema hann setji eitt mark eða svo í leiknum í kvöld! Kemur í ljós, en alveg er ljóst að það verður gríðar góð stemmning með öllu tilheyrandi!
Annars hoppaði ég til Miami um daginn og hafði það gott í 1 sólarhring, gerði nánast ekki neitt, en sporðrenndi nokkrum kjúklingavængjum á Hooters. Eftir að hafa farið yfir pollinn frá Miami til Madridar í gærmorgun, skellti ég mér út á labb með Hjalta og Ásgeiri og lá leiðin að Bernabau leikvanginum þar sem okkur tókst að fá miða á besta stað á vellinum, á svörtu. 55 Euro með alles, get ekki beðið eftir að láta sjá mig þar. Eg ætla að lata Hjalta öskra og öskra, m.a.s. jafn hátt og ég tala í símann, þá heyrist nú vel í mönnum þegar menn byrja á því!
Annars læt ég þetta duga í bili, adios amigos!!!!
No comments:
Post a Comment