Daginn!
Undur og stórmerki hafa gerst í þessari veröld, bíllinn minn grái er ber hið magnaða heiti Volkswagen Golf frá árinu 1998 hefur verið seldur!!!!! Mikið óskaplega sem ég er farinn að sakna þess að eiga bíl sem alltaf er að bila og þar sem head-ið er farið ásamt því að vera alltaf með púströrsvandræði auk bremsuveikleika, það liggur við að maður kunni ekki að keyra venjulegan bil eftir þetta! Þá er það stóra spurningin, hvað kemur í staðinn. Já, það er nóg af villtum og brjáluðum sölumönnum þarna út sem reyna að ginna mann til sín með alls konar gylliboðum og látum þar sem þeir vilja geta flett peningum manns á milli handa sér! Púff, læt þessa menn eiga sig aðeins í bili, en hvað er til ráðs??? Jú, besta í stöðunni er að vera á massa amerískum kagga, er Cavalier heitir, og eyðir massa bensíni, þetta verður nefnilega allt að vera í stíl, bumban eyðir miklu, þ.a.l. verð ég að vera á bíl sem eyðir miklu, er það ekki ??? Alla veganna erum við hjúin á Fálkagötunni komin á bíl sem Lilja hefur átt um nokkurt skeið og mun hann fást við að redda okkur í gegnum dagsins amstur næstu mánuði.
Að öðru, vegna þess hversu mikið Ómar hælir nýjustu tækni og vísindum, þá smitaðist ég aðeins af honum, skal ég nefna nokkur dæmi um það! Ómar kaupir macintosh tölvu, ég gerði það líka! Ómar er með sjálfvirkt ljós á baðinu því þar er enginn gluggi o.s.frv., það er ég kominn með líka!!! Já, karlinn fékk tengdó til að mæta með borinn í gær (því verkfærahallæri er mikið á þessu heimili) og boruðum við út í gegnum flísarnar á baðinu og tengdum svo nýjan tengil inn á bað, þannig að hvort sem menn ætla að gera númer 1 eða 2, þá fá menn sjálfvirkt ljós sem heldur mönnum við efnið þannig að þeir hitti á tilheyrandi stað!!! Ekkert nema glæsó um það segja!!!
Svo er eitt af aðal atriðuðunum þessa dagana er Yak-52 sem flýgur um loftin blá þessa dagana. Hef ég haft mikið gaman af því upp á síðkastið að taka menn með mér í smá túra og mun ég væntanlega halda því áfram. Gott að vita til þess að menn hafi haft mjög gaman af þessu og ætla ég m.a.s. að reyna að koma mér í góðan túr í dag!
Meira bull kemur inn seinnipartinn. Bless í bili!
No comments:
Post a Comment