Jæja, góðan og blessaðan daginn, eða á Indónesísku "masama paki"
Enn er maður í fríi og hefur það gott, fór út að borða í gær og fékk mér dýrindis humarpasta sem var svo gott að ég var að spá í að taka diskinn með mér á hótelið til að sleikja hann í morgunmat, nei segi svona :-)
Allt gott að frétta af okkur félögunum, hressir og kátir eins og alltaf. Nú er málið bara squash og golf og ekkert annað betra að gera, keypti mér nýjan squash-spaða í vikunni og er hann svo öflugur að Jonathan Powers (squash-spilari) er orðinn skíthræddur við mig :-)
Ég er orðinn svo myndaglaður að það hálfa væri nóg, læt þetta reyndar vera síðustu myndirnar í bili, er orðið ágætt, vona að fólk hafi gaman af. Ég lýsi hins vegar eftir því að félagarnir á einni myndinni fari að nota email og segi manni nýjustu sögurnar af rampinum og hvernig status-inn er á fróni.
Kveð í bili.
No comments:
Post a Comment