Tuesday, January 18, 2005

Góðan og blessaðan!

Jæja, þá er komið að "Hajj-breakinu" svokallaða. Já, 10 daga frí í Indó til að gera allt sem manni sýnist, ekki amalegt það! Jájá, fórum á Traders í gær, fékk mér snilldar piparsteik með öllu tilheyrandi og auðvitað góð saft drukkin með þessu öllu saman.
Það er aðeins farið að hitna í kolunum hérna, hitinn farinn að hækka upp í 35° á dag í stað 30 áður, og þýðir það að maður þarf að eiga 4 hreina boli á hverjum degi í stað þriggja áður, rakinn eykst með hverjum deginum og allt þetta gerir það að verkum að letin færist einnig í aukana, en það verður tekið á því í dag og alla aðra daga.
Eg get ekki leynt því að ég var að lesa frétt á mbl.is um íslenskt kvenfólk, ræður nú hver sem les hvað honum finnst um þetta, en greinin finnst mér svo fyndin að ég verð að setja hana hér inn.

Hlutfallslega fleiri íslenskar konur eiga titrara en konur annarra þjóða - eða 52% - samkvæmt niðurstöðum alþjóðlegrar kynlífsrannsóknar sem 350.000 manns í 41 landi tók þátt í.
Norska blaðið Dagsavisen segir um rannsóknina, sem gerð var fyrir tilstilli smokkaframleiðandans Durex, að „víbrator-flokkurinn“ sé sá eini sem norskar konur standi sig eitthvað í; einungis frænkur þeirra á Íslandi eigi fleiri „leikföng“ af þessu tagi í náttborðum sínum.
Helmingur norskra kvenna á titrara - 50% - en könnunin leiðir þó í ljós að Norðmenn eru mjög óvirkir í rúminu og konur setji unaðsblossa á svið í sex tilvikum af 10.
Blaðið segir að um leið og hægt sé að gleðjast yfir frammistöðu norskra kvenna í þessum flokki verði niðurstaðan helst grátin hvað varðar samfarir; þar séu Norðmenn aðeins í 28. sæti af 41. Aðeins 102 sinnum á ári njótist norsk pör sem einnig sé undir meðaltalinu fyrir allar þjóðir en það hljóðar upp á 103 sænguryndi á ári eða rúmlega þriðja hvern dag.
Samkvæmt rannsókninni eru Frakkar áfram duglegastir við bólfarir en í landi rauðra vína og osta eru þær iðkaðar að meðaltali 137 sinnum á ári, samkvæmt rannsókninni. Grikkir fylgja þar á eftir með 133 skipti, síðan Serbar- og svartfellingar með 131 skipti.
Þá leiða rannsóknirnar í ljós að fólk á aldrinum 35-44 stundar mest kynlíf eða 116 á ári að jafnaði.
Japanir eru kynkaldastir ef marka má rannsóknina - njótast aðeins 46 sinnum á ári. Munu 30% japanskra kvenna vera handhafar gleðipinna þess er titrari nefnist.
Annað eru uppi á teningnum hjá Kínverjum, nágrönnum Japana. Þeir eiga flesta rekkjunauta eða um 20 á æviskeiðinu. Tróna þeir efstir í þeim efnum en Danir eru í fjórða sæti með 13 og Norðmenn eru á miðjum lista með 11.

No comments: