Tuesday, January 04, 2005

Góðan dag, og gleðilegt nýtt ár!

Ég veit að áramótaávarpið hjá mér kom ekki á réttum tíma, en hér kemur það.

Maðurinn hóf líðandi ár á því að skella sér til Indónesiu til að fljúga þar júmbo-þotu. Eftir það hefur karlinn skellt sér til Saudi-Arabíu, Malasíu, Sameinuðu Arabísku Furstadæmin, Brasilíu, Argentínu, Kína, Taívan, Þýskalands, Luxembourg, Englands, Spánar, Ástralíu, Hollands, USA, Indlands, Lýbanon, Súdan, Marokko, og svo lengi mætti telja. Vil ég hér með nota tækifærið og færa öllum þeim sem í þessum löndum búa, heillaóskir með von um að komandi ár verði þeim gott og gæfuríkt. Á þetta við um Ísland líka. Þetta væri auðvitað alls ekki hægt ef Air Atlanta nyti ekki við og þakka ég öllum þeim sem vinna hjá Air Atlanta fyrir allt. Á nýju ári lítur maður fram á veginn þar sem staðfest er að maður vinnur í 3 vikur og fær frí í 3 vikur, alls ekki slæmt og verður gaman að fá að nýta tækifærið með því að hafa gott frí á milli til að hitta allt það fólk sem maður hafði ekki tök á á liðnu ári. Eyjamenn, hvað get ég sagt um þá, þvílíkir snillingar, hugsa alltaf hlýtt til snillinganna í Eyjum. Bestu þakkir til Flugfélags VM fyrir allt gamalt og gott. Golfið: Golfið var ekki upp á marga fiska í sumar enda gafst lítill tími heima fyrir til þess að spila og njóta þess að keppa við famelíuna, brósi tók mig í bakaríið í sumar og þarf að laga það þetta árið :-) Vonandi tekst manni að halda dampi í golfinu þegar líður á vorið og þá vonandi aðeins meiri tími til þess að njóta þess að spila heima í fáránlegu veðri með öllu því tilheyrandi, skrýtið að maður skuli sakna þess, en lífið er skrýtið. Brósa, mömmu og pabba, þakka ég kærlega fyrir allt! Þetta ár hefur verið svo viðburðarríkt með tilliti til þess að maður er lítið heima og svo flutti litli og síðasti rindillinn af heimilinu í haust, þannig að það er enginn til að taka frá nokkra fermetra á heimili foreldranna. Svo eru það auðvitað flugkveðjurnar. Ómar, Bjarni, Birkir, og allar ramprotturnar, þakka ykkur fyrir allt saman, sjáumst hress á nýju ári.Ekki má gleyma Hjaltanum, flugbróðirinn, klikkar ekki, hvað getur maður sagt, jú, HJALTI, ÞÚ ERT ROSALEGUR!
Að lokum verð ég að þakka Bertel fyrir alla snilldina og vona að fóturinn sé allur að koma til, árið 2005 verður fínt ár í golfinu hjá okkur og taktu nú vel á æfingunum fyrir vorið.
Að lokum vona ég að einhver hafi tekið upp skaupið, verð að fá það lánað! Lifið heil og sjáumst öll hressari en áður, á þessu frábæra ári 2005.

No comments: