Góðan og blessaðan daginn!
Jæja, mikið djöss hefur maður verið lélegur í bloggi upp á síðkastið, það er bara skömm að segja frá því, enda gekk það svo langt að hele famelien fór að kvarta undan pennaleysi útlandamannsins. Það er kannski ekkert skrýtið því að í pennann hefur vantað blek upp á síðkastið því kálið hefur verið svo gjörsamlega tómt af hugmyndum upp á síðkastið að það er hálf vandræðalegt. Best er að kenna Hjalta bumbu um þetta allt saman, því ef hann hefði ekki komið hingað úr fríi, þá hefði ekki byrjað að rigna hérna svo all djöfullega! Já, um leið og hann kom, kemur þessi þrumurigning alla eftirmiðdaga þannig að netsamband hér hjá okkur sló út og er enn ekki komið í samt lag, takk Hjalti!
Jæja, ég, Amon Ra (sólguðinn fyrir þá sem vita ekki :-)) , fleygði Hjalta til Ástralíu, og viti menn, var ekki sól og blíða alveg eins og þegar ég er heima á fróni, magnað max. Ég sendi company-inu auðvitað upplýsingar um þetta og hef ég heyrt þann orðróm að Hjalti verði bara í landi Ása og Tralla þangað til guð veit hvenær!
Af sólguðinum er hins vegar það að frétta að hann er bara búinn að vera fjögurra daga fríi og hefur spilað golf alla dagana nema einn. Já, helvíti fínt. Hins vegar á laugardaginn síðasta heyrði ég að blíðu vantaði í Hong Kong og skellti mér einn rúnt þangað í fyrsta skipti, enda ekki verið blíða þar síðan akkúrat á laugardaginn. Höfðu þeir beðið eftir mér í öll þessi 27 ár og 366 daga að ég kæmi með blíðuna til þeirra. Þar var tekið á móti honum með pompi og prakt, en þar sem sólguðinn er búinn að gera samning við KL, þá þurfti ég að fara þangað aftur, því þeir verða alltaf að vera í sumri og sól, engu að síður gaman að koma til Hong Kong í fyrsta skipti og jafnvel að maður kíki þangað aftur einhvern daginn. Ef fólk gerði sér ekki grein fyrir því hér að ofan minni ég á 28 ára afmæli sólguðsins á morgun, já, 28 ár! Reyndar halda flestir að þetta sé 48 ára afmæli, en hvað um það, 28 ár er málið og minni ég enn á hvað 1977 módelin eru öflug í þessum heimi, já, 1977 er málið, ásamt 22. apríl :-)
Ég læt þetta duga í bili, mikið rosalega væri gaman að fá eitt email frá Icelandair-guðinum Ómari, en ef fólk vissi ekki, þá kom Ómar út úr höfðinu á Hesti, spratt upp með þvílíkum látum og sagði, Icelandair lifi! Úr varð til Icelandair, er áður hafði heiti Hesthúsið!
Ofangreind goðafræði er uppspuni og eru allir karakterar hér að ofan uppspuni, engin meiðsl urðu á mönnum við gerð þessa bloggs, né öðrum jarðneskum skepnum!
No comments:
Post a Comment