Ég verð nú að segja að ég er orðinn ansi heitur fyrir paragliders. Peyji og einn annar peyji sem eru bara toppmenn eru farnir að brúka þetta og þrátt fyrir eitt crash þá er það ekki spurningin að þetta er það sem koma skal!!! Ónýtt að vera alltaf með 4 mótora, kominn tími á einn svona þegar maður er að leika sér.
Hins vegar svolítið súr yfir því að þegar maður ætlar að tjakka á heimasíðunni fyrir paraflug þá er password og eitthvað kjaftæði sem kyndir í Spánverjanum á manni því ekki hef ég einustu hugmynd um hvaða heimsku orð það eiga að vera. KEMST EKKI INN Á SÍÐUNA! Á meðan svo er, fær hún ekki að njóta þess gríðarlega heiðurs að vera linkur á minni síðu! Hananú.
No comments:
Post a Comment