Tuesday, May 04, 2004

Jæja gott fólk, nú hef ég eitthvað fyrir golfdómarann, já, þetta var alveg stórkostlegt. Karlinn á 13. holu á Bungalayja vellinum hérna í KL. Drive á miðja braut, 300 yds, og karlinn farinn að sjá fram á enn einn fuglinn, nei, það kom sko enginn fugl, heldur kom api niður úr tré og tók boltann minn!!!! Ég náði mynd af helvítis melnum er hann var búinn að taka kúluna og fara með upp í tré, svo kom hann niður aftur og gretti sig framan í mig, helvítis melurinn! Það var eins og hann hafi komið aftur bara til þess að kynda í Spánverjanum á karlinum, enda varð ég sjóðheitur (svona þannig), enda að nota glænýjan PRO V1 bolta, þannig að melurinn skuldar mér 400 kall!
Frá golfinu er annars frá því að segja að 74 högg voru slegin á vellinum, en ég geri ráð fyrir því að þessi monkey business hafi nú ekki verið mér í óhag, þ.e. engin víti.
Ég skelli myndinni inn af melnum fljótlega og læt link fylgja með. Gerist vonandi seinni partinn í dag.
Annars var ég að fatta það að maður kemur líklega ekki heim fyrr en 25. maí.
Annars bara gaman gaman og enn og aftur gaman, en maður er farinn að hlakka til að kíkja á alla þegar maður kemur heim.
Svona ef fólk vill vita, þá er hér mistur og 35 stiga hiti (bara svona fyrir þá sem vilja :-)).
Annars er maður að fara í stillingu hjá herra Lakchai á fimmtudaginn, þar verður stutta spilið tekið í gegn og sveiflan tekin upp á myndband, ég held að það sé til að aðrir geti hermt eftir mér (hehehe, nóg af gasi í karlinum þessa dagana :-)).
Jæja, bless í bili, og látið mig vita hvernig maður á að taka á svona monkey business, þ.e. hvað golfdómarinn segir við svona löguðu.
Kveðja til allra!!!

No comments: