Góðan dag!
Nú þarf ég að finna réttan dómstól, ætli móðir náttúra geti ekki verið dómari í þessu máli. Karlinn er nefnilega að spá í að kæra moskítóflugur fyrir kynferðislega áreitni, ástæðan ? Jú, þær eru búnar að éta eyrnasnepilinn vinstra megin á karlinum. Allir sem kunna eitthvað fyrir sér (þið vitið :-)) vita að eyrnasnepillinn er eitt aðal málið og moskítóflugur eiga ekkert að vera að notfæra sér aðstæður á meðan maður er sofandi!!!!!!!!!!
Ekki nóg með það að karlinn hafi ekki getað spilað golf vegna þess að hann fékk svo rosalegt bit á vinstri handlegg (þannig að það verkjar) að þá er farið að ráðast á eyrnasneplana líka, karlinn hlýtur að vera svona þvílíkt góður á bragðið að dýralífið "can´t resist me" :-). Hingað og ekki lengra, ég fylli boeing vélina af DDT næst þegar ég fer í flug og dreifi yfir alla Malasíu, þannig að eftir það verða engir helvítis moskítóar til að angra mig.
Fyrir utan þessa áreitni er lífið eins gott og það getur verið en á morgun liggur leiðin til Gatwick. Það liggur við að karlinn sé með tár í augunum því svo vel líkar honum við Kuala Lumpur. Annars verður þrælfínt að koma til Evrópu aftur þar sem komnir eru rúmir 2 mánuðir síðan karlinn var þar síðast. Reyndar er Gatwick ekki mest heillandi staður jarðar en tilbreyting fyrir karlinn.
Heyrst hefur að Eyjamenn séu að fara að halda massa partý með öllu tilheyrandi eins og þeim einum er lagið, hver er ástæðan fyrir því að karlinn hefur ekki fengið boð í það dæmi???? Alla veganna mun karlinn fara þangað hvort sem partý er eður ei, hlakka til að hitta þar allt síhressa fólkið sem ávalt er í stuði.
Chao for now
No comments:
Post a Comment