Jæja gott fólk, þá er karlinn búinn að stilla sveifluna enn og aftur og hún komin á myndband. Það fer ekki í dreifingu fyrr en ég er búinn að vinna Masters mótið í USA á næsta ári!!!
Hvað um það, fínn dagur í dag, afslappaður (fyrir utan 8 km sem ég hljóp, hlaup dauðans) og þægilegur.
Herra Lakchai, kennarinn minn, var ánægður með sveifluna og er enn að líkja mér við Ernie Els, enda ekkert skrýtið því við erum jafn öflugir (not!).
Breyting á plani, ég á ekki að fljúga fyrr en á mánudag, enn og aftur til Melbourne, en með viðkomu í Jakarta á leiðinni til baka daginn eftir.
Karlinn er farinn að búa sig undir simmann sem verður þ. 21. maí og gleymum því ekki að karlinn er líka farinn að undirbúa sig undir heimferð, keypti galla sem þolir -200 gráðu frost og er farinn að safna skeggi fyrir kuldann :-)
Hins vegar verður gaman að fá að kynnast því aftur að það verður ekki komið myrkur fyrr en seint að kveldi dags.
Kveð í bili.
No comments:
Post a Comment