Saturday, May 01, 2004

Jæja gott fólk, haldið þið að karlinn hafi ekki bara ákveðið að setja bloggsíðu á fótinn þannig að karlinn gæti sagt frá einhverju bulli. Karlinn hefur nefnilega ekkert annað betra að gera því karlinn er búinn að vera í Melbourne (Ástralíu, ef einhver skyldi nú ekki vita það) í 5 daga og erfitt að finna handa karlinum eitthvað að gera daginn áður en karlinn á að fara í flug. Já, flug á morgun til Kuala Lumpur, sem er auðvitað ein af betri borgum alheimsins. Já, það verður stuð stuð stuð er ég reyni við .... og fæ!
Það er ekki nein spurning að karlinum finnst KL nánast ekki síðri en Buenos Aires, en hvað um það, þessar tvær borgir eru báðar alger snilld.
Það er mér sönn ánægja að kynna til leiks á svæðinu flugvélstjórann Adda, sem ég er farinn að kalla "Adda discount", því hann gerir lítið annað en að reyna að fá "discount" hvert sem hann fer og er það bara snilld því ekki veitir af að passa upp á budduna hérna í Melbourne því hér er fjandi dýrt. Þó ekki svo dýrt að karlinn hafi ekki keypt sér Oakley sólgleraugu með styrk, enda þarf styrk þegar karlinn kemur heim til Thule í keppnisgolfið á næstu vikum. Addi flaug með mér hingað ásamt Dave kafteini sem einnig er toppmaður og höfum við haft helvíti gaman að lífinu undanfarna daga.
Golf, karlinn gæti skrifað endalaust um golf, en læt þó duga að karlinn keypti sér nýjan Callaway Fusion 8,5 gráðu stykki, sem karlinn er að þruma 300 yds með á hverri einustu holu, og svo beint að Tigerinn gæti ekki gert svona beint með reglustiku (greyið). En hvað er karlinn að tala um Tigerinn, Els-arinn er bestur þessa dagana þannig að maður verður að setja markið á ná honum á næstu mánuðum (not!). Það hefst ekki bara með drivernum, heldur þarf stutta game-ið að vera í lagi líka, þess vegna keypti karlinn sér bókina frá Dave Pelz um stutta spilið, og karlinn búinn að vera að stúdera hana upp á síðkastið.
Talandi um bækur, þá keypti karlinn sér líka eina helvíti góða "cult" skáldsögu, sem ber það fræga heiti, "The hitchhiker´s guide to the galaxy". Sú bók er bara tær snilld og karlinn nánast hálfnaður með fyrsta hlutann af fjórum, klára líklega alla hlutana innan 2-ja vikna.
En hvað um það, líf og fjör hjá karlinum þessa dagana, og sáttur við lífið.
Það veitir ekki af að karlinn sendi kveðjur til allra svona í upphafi þessa bloggs, ekki síst til strákanna í Eyjum sem auvitað eru orðnir langflottastir á nýmáluðum Piper Chieftain, en ef fólk hefur ekki hugmynd um það sem ég er að tala um, þá eru þetta töffararnir í Eyjum sem eru að fljúga í sjúkrafluginu þar!
Munið svo öll, að vera alveg róleg á ðí!!!

No comments: