Wednesday, December 06, 2006

Góðan daginn

Adam Smith var göfugur maður, hann sannaði það að markaðurinn leiti alltaf að besta verði gagnvart neytanda með því að vera með virka samkeppni, neytandinn fái alltaf besta verðið ef markaðurinn er 100% frjáls og þannig finni markaðurinn sjálfur besta verðið. Þessi kenning hans teygir sig langt í lífinu, t.d. hjá mér, þar sem ég hef ákveðið að loka þessu bloggi á samkeppnisgrundvelli. Já, blogspot er að reyna að rukka mig um alls konar hluti sem ég fæ frítt á öðrum "host-um" þannig að á þessum samkeppnisgrundvelli ákvað ég að flytja bloggið yfir á
www.blog.central.is/champinn

Það er með þó nokkrum trega sem ég lýk hérna síðastu skrifum mínum á þessari síðu, hún hefur reynst ágætlega þessi ár, en því miður hafa upp á síðkastið eilíf vandræði með þetta gert það að verkum að skrifunum fór mjög fækkandi. Það mun vonandi ekki eiga sér stað á hinu nýja bloggi!!!
Ég bið ykkur að taka vel á móti á
www.blog.central.is/champinn

No comments: