Það er bara ein leið til að lysa því hversu dapur ég hef verið í að skrifa hér á síðuna, já ég er búinn að vera bloggarahaugur!!!
Skilgreining á bloggarahaug:
"Maður er hefur ekki skrifað í 2 mánuði á bloggið, hefur ekki enn neitt til að skrifa um, er í massivu sjokki eftir að hafa verið of lengi í Saudi-Arabíu og er farinn að ýta of oft á " ' " takkann á lyklaborðinu í stað " ð "-takkans".
Jæja, reynum aðeins, eins og sést á skrifum flugbróðursins frá KL þá er hann í fínu formi þar ásamt spússu sinni og dauðöfunda ég manninn fyrir að vera þarna í tærri snilld. Ekki er leiðinlegt heldur að skoða myndirnar hans á myndasíðunni og fær hann hrós fyrir að vera svona öflugur með cameruna! Kveðjur til Hjaltans og Maju frá Champanum og Lilju!
Ég ætlaði að vera massa duglegur síðustu daga og reyna að þvo bílinn og taka bílskúrinn í gegn en hvað gerist þá, stormur með öllu tilheyrandi, m.a.s. landsliðsmennirnir flugu ekki til Íslands í 2 daga af 3!!! Svo leit nú út í morgun að það væri veður, mæti ég út og hvað þá, jú, -13 gráður á mælinum!!!!!!! Veðrið hérna er óþolandi dapurt dag eftir dag og rússinn bíður eftir því að ég kveiki á honum og komi honum í loftið alveg eins og Rudolph sem bíður eftir sveinka en hann þarf nú að bíða í nokkrar vikur enn! Að lokum er ljóst að karlinn er farinn að nálgast 100 kg í bekkpressunni og farinn að hlaupa 5 km á nálægt 25 min, ekki slæmt!!! Jæja, kveð í bili og lofa bloggi hér aftur MJÖG fljótlega!
Kv. Champinn
No comments:
Post a Comment